Bændablaðið - 27.03.2007, Qupperneq 28
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200728
Líf og starf
Fyrir réttu ári kynnti ég á bænda-
fundum línurit um framleiðslu og
innanlandssölu á mjólk árabilið
1994-2005. Þar benti ég á að þrátt
fyrir að mjólkursala sveiflaðist lít-
ið milli ára þá væru miklar sveifl-
ur í framleiðslunni. Þau kerfi sem
bændur og iðnaðurinn nota til fram-
leiðslustýringar (kvóti og greiðslur
fyrir umframmjólk) virðast því tæp-
lega nægjanlega nákvæm eins og
þeim er beitt. Þar kemur tvennt til:
Í fyrsta lagi er ótrúlega auðvelt að
auka eða minnka framleiðslu með
litlum fyrirvara – og bændur eru
mjög fúsir til að framkvæma slíkar
breytingar. Í öðru lagi hafa skamm-
tíma breytingar ákveðinn „hala“,
það er að segja, skammtímabreyt-
ing veldur langtímabreytingu.
Ástæða þessa er að auðveld-
asta leiðin til að auka eða minnka
framleiðslu til skemmri tíma er að
flýta eða seinka förgun á kúm. Ára-
mót verðlagsársins gera þessa leið
sérlega auðvelda því fjósrými er
ekki takmarkandi að sumarlagi. En
ákvörðun um förgun er ekki einung-
is ákvörðun um mjólkurframleiðslu,
heldur líka ákvörðun um endurnýj-
un kúastofnsins. Þannig getur tíma-
bundin offramleiðsla mjólkur leitt
til óþarflega lítils ásetnings kvígna
sem getur svo valdið skorti á kvíg-
um.
Önnur aðferð við að auka/
minnka framleiðslu tímabundið
er að breyta kjarnfóðurgjöf. Þessi
leið hefur einnig miklar langtímaaf-
leiðingar vegna þess hversu stöðug
mjaltakúrfa einstakra kúa er.
Það virðist þörf fyrir að bænd-
ur og mjólkuriðnaðurinn taki
upp tvenns konar sveiflujöfnun. Í
fyrsta lagi ættu bændur að bregð-
ast minna við ákvörðunum iðnað-
arins um greiðslur fyrir umfram-
mjólk. Ákvarðanir um förgun eða
kjarnfóðurgjöf ætti að taka með
langtímamarkmið búsins í huga en
ekki út frá skammtímaákvörðunum
mjólkuriðnaðarins um greiðslur fyr-
ir umframmjólk. Í öðru lagi þarf
mjólkuriðnaðurinn (eða samtök
bænda) að birta reglulega þriggja
ára spár um framleiðslu og sölu
mjólkur. Slíkar spár eru alltaf háð-
ar einhverri óvissu, en einhvern
veginn virðist þetta takast í öðrum
greinum framleiðsluiðnaðar.
Að lokum að línuritinu um fram-
leiðslu og sölu mjólkur. Fyrir ári
spáði ég mikilli uppsveiflu í fram-
leiðslu og áframhaldandi vexti í
mjólkursölu. Hvort tveggja rættist,
en vöxtur framleiðslunnar var meiri
en ég spáði og vöxtur sölunnar
minni (í þessum tölum er ekki tekið
tillit til sölu Mjólku). Framleiðslu-
aukningin milli ára var sennilega
sú mesta í sögu íslenskrar mjólk-
urframleiðslu og engar líkur eru á
að hún haldi áfram. Miðað við lof-
orð iðnaðarins um greiðslur fyrir
umframmjólk mun þó örugglega
verða einhver aukning.
Sala á mjólk mun væntanlega
halda áfram að aukast en á móti
kemur vaxandi innflutningur
erlendra vara. Það er afar mikilvægt
að bændur og iðnaðurinn sameinist
um áframhaldandi markaðssókn á
erlenda markaði til að mæta aukn-
um innflutningi. Útflutningur MS
er lykillinn að áframhaldandi vexti
íslenskrar mjólkurframleiðslu.
Horfur í framleiðslu og sölu á mjólk
Torfi Jóhannesson
ráðunautur, Búnaðarsamtök
Vesturlands
tj@bondi.is
Mjólkurframleiðsla
Á ársfundi danskra kúabænda á
dögunum, flutti doktorsneminn
Jehan Ettema erindi um kyngreint
sæði og efnahagslega þýðingu á
notkun þess. Búnaðurinn sem not-
aður er til greiningarinnar kemur
frá bandaríska fyrirtækinu XY inc.
í Colorado.
Eins og mörgum er kunnugt, hef-
ur verið boðið upp á kyngreint sæði
á Bretlandseyjum frá árinu 2000.
Nýlega var farið að bjóða þennan
möguleika í Danmörku og fjallaði
erindið um áhrif kyngreinds sæðis á
efnhag búanna, að gefnum ákveðn-
um forsendum. Helstu forsendur
voru mishátt hlutfall kvígna og kúa
sem sæddar voru með kyngreindu
sæði og hversu oft kæmi til greina
að nota kyngreint sæði á hverja kú.
Helstu kostir kyngreiningar á
sæði eru að með því má stytta ætt-
liðabil og auka þannig árlega erfða-
framfarir. Kyngreint sæði gerir það
einnig að verkum að hægt er að
stunda talsvert úrval í liðnum móð-
ir-dóttir. Undanfarin ár hefur slíkt
t.d. verið með öllu ómögulegt hér
á landi, þar sem nánast allar lifandi
fæddar kvígur hafa verið settar á til
mjólkurframleiðslu. Einnig dregur
kyngreint sæði úr kálfadauða og
burðarerfiðleikum, einkum hjá 1.
kálfs kvígum, þar sem hægt er að
velja sk. “kvígunaut” á þær, það er
naut sem gefa heldur smávaxnari
kálfa, að ógleymdu því mikilvæga
atriði að kvígukálfarnir sem verið er
að sækjast eftir eru alla jafna minni
en nautkálfarnir og því auðveldara
að bera þeim. Einn kostur enn er
að hægt er að auka virði blending-
skálfa (blendingar af holdakynjum
og mjólkurkynjum), þar sem slíkir
nautkálfar eru verðmætari en kvígu-
kálfarnir.
Þrefalt dýrara sæði
Eins og önnur mannanna verk er
þetta ekki gallalaust. Fyrir það
fyrsta er verð á kyngreindu sæði
mun hærra en því hefðbundna, kyn-
greindur skammtur kostar 250 dkk,
meðan venjulegur kostar 80 dkk.
Búnaðurinn kostar milli 30 og 40
milljónir og afkastar innan við 10
skömmtum á klukkutímann. Að
auki hentar hann nær eingöngu þar
sem notað er sk. biðnautakerfi, þar
Kyngreining á sæði
Af ársfundi Dansk kvæg
Skýringarmynd af tækninni sem notuð er við að kyngreina sæði. Sæðis-
frumur með X litningi mynda kvenkyns fóstur, en Y litningurinn myndar
karlkyns fóstur.
Baldur Helgi Benjamínsson
framkvæmdastjóri Landssambands
kúabænda
bhb@lk.is
Nautgriparækt
Aðalvörnin er aðskilnaður ásetn-
ingslamba og fullorðinna kinda
(smitbera í sýktum hjörðum) svo
fljótt sem unnt er að hausti, bólu-
setning um réttir og upp úr réttum
á sýktum bæjum og fyrir áramót
á öllum hinum bæjunum og þrifn-
aður með fóður og vatn. Síðheimt
lömb skal bólusetja jafnharðan.
Taka skal frá vanþrifagripi eyða
þeim og rannsaka.
Í síðustu tölublöðum Bænda-
blaðsins hefur verið gengið eft-
ir því að skilað sé skýrslum um
bólusetningu ásetningslamba
gegn garnaveiki á svæðum þar
sem bólusetja skal. Það eru þessi
svæði: Suðurland vestan Markar-
fljóts, Vesturland allt til Gilsfjarð-
ar og Bitru, Norðurland allt nema
Miðfjarðarhólf til Skjálfandafljóts,
Austur- og Suðausturland frá Beru-
firði til og með Suðursveit.
Þrátt fyrir þessa leiðigjörnu eft-
irgangsmuni hefur ekki ennþá tek-
ist að heimta skýrslur um bólusetn-
ingu á öllum bæjum. Fram undir
þetta hafa einstakir menn verið að
láta bólusetja ásetningslömb sín,
sem áttu að vera bólusett fyrir ára-
mót. Þetta má ekki líða oftar, vilji
menn útrýma garnaveiki, sem er
vel framkvæmanlegt, ef menn hafa
sinnu á því. Hver sveitarstjórn á
fyrrnefndum svæðum, á að vita,
á hvaða stöðum sauðfé er í sveit-
inni. Sveitarstjórnirnar eru hvattar
til að fylgjast með framvindu bólu-
setningarinnar, kalla eftir bólusetn-
ingarskýrslum frá bólusetningar-
mönnunum, yfirfara þær og ganga
eftir því með aðstoð héraðsdýra-
læknis og Landbúnaðarstofnunar,
að öll ásetningslömb séu bólusett
hið fyrsta eins og skylt er. Þar sem
ekki fæst viðunandi niðurstaða,
verður að breyta um fyrirkomulag
næsta haust og fela ákveðnum og
nákvæmari mönnum framkvæmd-
ina eftir svæðum og beri þeir
ábyrgð á að allt sé bólusett á því
svæði sem þeir verða settir yfir.
Hvað þarf til þess að uppræta garnaveiki? - Það er hægt!!
Að mörgu þarf að hyggja, en…
Síðast var fjallað um mjaltir og
aðbúnað.
Hér kemur 10 góðu-ráða listinn
vegna mjaltabúnaðar og júgurheilsu.
1. Láttu þjónustumann ævinlega
skoða og mæla mjaltakerfið og
tækin a.m.k. einu sinni á ári.
2. Skiptu um spenagúmmí tvisvar
á ári.
3. Hlustaðu eftir takti og slögum
sogskiptanna. (aðallega vökva-
skiptar)
4. Tryggðu tog fram á mjaltatækin
við mjaltir. (vegna afturspena)
5. Ef þú ert með gamalt rörmjalta-
kerfi og ert að mjólka með fleiri
tækjum en þremur þá hættu
því eða hentu kerfinu og fáðu
þér afkastameira kerfi.
6. Tryggðu nægan og réttan halla á
mjaltakerfinu. (Rörmjaltakerfi
og brautakerfi).
7. Ef sogdælan þín skilar 500 lítra
afköstum eða minna þá er hún
of lítil fyrir fjögur tæki.
8. Fylgstu vel með sogjafnanum
og sogmæli kerfisins. Sogjafn-
inn á að draga loft ef afköst eru
næg.
9. Þvottur mjaltakerfa er óásættan-
legur nái hitastig í sápuþvotti
ekki 72°C.
10. Þvoðu tækin eftir mjaltir mjög
vel að utan svo drulla leki ekki
niður í þvottahylkin.
Góð innri og ytri þrif mjaltabún-
aðar lengir líftíma hans og tryggir
lægri líftölu.
Þessir góðu-ráða listar eru engan
veginn tæmandi en til eru margar
greinar og fróðleikur sem fjallar
ítralegar um alla þætti sem viðkoma
júgurheilbrigði og mjaltatækni.
Bendi áhugasömum á bókina Mjalt-
ir og mjólkurgæði sem gefin var
út 1997 af Bændasamtökunum og
fæst hjá þeim.
Raunar ættu allir kúabændur að
eiga þá bók og lesa reglulega, t.d.
í rúminu á kvöldin ef þeir nenna
ekki að sinna maka sínum.
HEYRT Í SVEITINNI
Kristján Gunnarsson
mjólkureftirlitsmaður Norðurmjólk
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir, Landbúnaðarstofnun
ss@lbs.is
Sjúkdómavarnir
Ársfundur Fagráðs í nautgriparækt
verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri, fimmtudaginn 12. apríl kl.
14. Á fundinum verður farið yfir starfsemi Bændasamtaka Íslands,
Landbúnaðarháskóla Íslands og Landbúnaðarstofnunar í nautgripa-
rækt á árinu 2006.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um nautgriparækt.
Fagráð í nautgriparækt