Bændablaðið - 27.03.2007, Page 33
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200733
Samband garðyrkjubænda
auglýsir eftir umsóknum um styrki
til þróunarverkefna vegna 5. gr.
Aðlögunarsamningsins
Samband garðyrkjubænda auglýsir eftir umsóknum um
framlög til þróunarverkefna vegna ársins 2007, samkvæmt
5. gr. Aðlögunarsamningsins milli ríkisstjórnar Íslands og
Bændasamtaka Íslands/Sambands garðyrkjubænda.
Viðmiðunarreglur um kröfur til styrkumsókna og verklagsreglur
um úthlutun og afgreiðslumáta umsóknanna má finna á
heimasíðu Sambands garðyrkjubænda, www.gardyrkja.is
Þar eru einnig umsóknareyðublöð til útfyllingar.
Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
Sambands garðyrkjubænda á netfanginu
helgahauks@gardyrkja.is
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2007.
Vakin er athygli þeirra sem hyggjast sækja um rannsóknarstyrki
að breytingar eru fyrirhugaðar á umsóknarfresti vegna þeirra
styrkja.
Því er þeim sem hyggja á slíkar umsóknir einnig frjálst að
senda inn umsóknir að þessu sinni.
Stjórn Sambands garðyrkjubænda
Í nokkrum tilfellum á seinni árum,
hefur riðuveiki náð að magnast
upp, áður en eigendur og dýralækn-
ar hafa áttað sig, einkum þegar
enginn hefur átt von á veikinni og
hún hefur virtst langt undan. Síð-
ast, þegar það gerðist, var kláði
og fiðringur í húð, sem tekið var
eftir í nokkrum kindum talinn vera
ofnæmi eftir bit af starrafló. Í öðru
tilfelli var talið að um væri að
ræða bólgur í húð af ígerðarsýkl-
um, í enn einu tilfelli var haldið að
um snefilefnaskort væri að ræða. Í
öllum þessum tilfellum varð þetta
til þess að smithætta magnaðist á
viðkomandi bæ með tilheyrandi
hættu fyrir aðra bæi. Margar kind-
ur veiktust og dóu eða var lógað
og þótt þær læknuðust ekki af lyfj-
um, sem ekki var von, var ekki
rannsakað á réttan hátt, hver orsök
einkennanna var. Sending af haus
eða heilasýni slíkra kinda að Keld-
um hefði strax leitt fram hið rétta.
Á það skal bent, að nú er unnt að
greina riðuveiki í kindum með
hinni nýju aðferð, þótt þær hafi leg-
ið mánuðum saman í gröf.
Að undanförnu hafa búfjáreft-
irlitsmenn verið á ferðinni milli
staða þar sem búfé er haldið til
að athuga fénaðinn og aðstæður.
Þeir verða á ferðinni næstu vikur.
Þeirra hlutverk er mikilvægt. Þeim
er skylt að spyrjast fyrir um og
láta héraðsdýralækna og/eða Land-
búnaðarstofnun vita um kindur
með grunsamleg einkenni sem líkj-
ast riðueinkennum eða garnaveiki.
Þá verður séð til þess að skepn-
urnar verði athugaðar eigendum
að kostnaðarlausu. Rúningsmenn
eru einnig á ferðinni um allt land
og handleika mikinn fjölda kinda.
Þeir eru í sérstöku lykilhlutverki
við að uppgötva riðuveiki fyrst-
ir manna. Veikin er langvinn og
kemur fyrst fram við álag eins og
handfjötlun rúningsmanna, þótt
ekkert hafi orðið vart við einkenni
áður. Kindurnar geta barist um í
hálfgerðu æði, þær geta brugðist
við með því að kjamsa og sleikja
út um, þær geta snarast um koll og
lamast hálfpartinn um skeið. Í öðr-
um pistli í þessu blaði er lýst ein-
kennum riðuveiki í stuttu máli, en
fyrstu einkennin geta verið mjög
breytileg og það villir fyrir við
greiningu. Fái rúningsmenn grun
um riðuveiki skulu þeir tilkynna
það héraðsdýralækni eða yfirdýra-
lækni strax (Landbúnaðarstofnun)
og skilja rúningstæki og hlífðarföt
eftir á bænum, og þrífa og sótt-
hreinsa í samráði þessa aðila. Allt-
af skulu rúningsmenn sýna fyllstu
þrif við ferðir sínar milli bæja,
þótt ekki sé riðugrunur í nánd, sótt-
hreinsa tækin þegar farið er milli
bæja á sama svæði en fara helst
ekki með tæki milli varnarhólfa og
alls ekki af riðusvæðum til ósýktra
svæða.
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir, Landbúnaðarstofnun
ss@lbs.is
Sjúkdómavarnir
Búfjáreftirlitsmenn og rúningsmenn eru lyk-
ilmenn til að finna fyrstu tilfelli af riðuveiki
Söluaðilar:
Undir fólksbíla og jeppa
275/65R17
530 5700
Hjólbarðahöllin
Fellsmúla 24,
108 Reykjavík
Réttarhálsi 2,
110 Reykjavík
Gúmmívinnustofan
587 5588
Ægisíðu 102,
107 Reykjavík
HjólVest
552 3470
431 1777
Hjólbarðaviðgerðin
Dalbraut 14,
300 Akranesi
555 1538
Dekkið
Reykjavíkurvegi 56,
221 Hafnarfjöður
566 8188
Bæjardekk
Langatanga 1a,
270 Mosfellsbær
215/60R16
255/65R17
sumarde
kkÓdýr
26
15
/
T
A
K
TÍ
K
7
.3
.2
00
7
10.9009.900 10.900kr. kr. kr.
Sendum um land allt
Fjármála-
ráðgjöf.
Bændur !
Undirritaður kynnir gjaldeyristengd lán bankana.
Engar veðbætur og mun lægri vextir,
jákvæð eignamyndun, lánstími eftir vali.
Ýtarleg ráðgjöf, leitun tilboða hjá bönkunum og
eftirfylgni vegna skuldbreytinga og nýrra lána.
Hef 2 ára reynslu af því að vinna fyrir bændur.
Hafðu samband og leitaðu þér upplýsinga hjá mér,
það gæti sparað þér milljónir á ársgrundvelli !
Framtíð Fjármálaráðgjöf ehf
Tölvupóstur :tomlenka@ simnet.is og 660-7748.