Bændablaðið - 27.03.2007, Page 34
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200734
Gæði á góðu verði
Höldur á Akureyri er söluaðili V&Þ á Norðurlandi, sími 461 6061
Á dögunum las undirritaður um
atburð frá miðri nítjándu öld er næt-
urgestur á kotbæ einum gat ekki sof-
ið og varð þess vegna vitni að því
þegar lítill horaður drengur skreið
úr holu sinni inn í baðstofu og sat á
miðju gólfi milli rúmanna, þangað
til húsráðandi sagði við hann það
sem er fyrirsögn þessa pistils. Þess
vegna hefur ritari fyrirsögn skrifa
sinna á þennan veg, að efni það
sem fjallað er um fær líkan skilning
(ekki sama) hjá yfirvöldum, og þarf-
ir drengsins hjá húsbónda. Drengur-
inn var sjálfsagt niðursetningur, ég
fæ ellilífeyri. Og af manni einum,
þar sem ég bar upp mín mál, var ég
í stríðnistón kallaður sveitarómagi.
Þá gat ég ekki varist þeirri hugsun
að til væru á Íslandi þeir sem hlynnt-
ir væru menningarbyltingunni í
Kína, að enginn mætti eiga neitt, þá
ætti að berja á honum.
Það er orðið langt síðan sett voru
lög um framfærslu, krónur og aura,
svo að þeir sem ekki hafa mátt til að
skapa sér viðurværi gætu samt lifað
án þess að ganga á milli betlandi eða
nærast eingöngu af góðvildinni. All-
ir skattborgarar í marga áratugi hafa
tekið þátt í þessari gjörð yfirvalda,
til að búa öllum sem eiga möguleika
á, að lifa, en það var og er svo sann-
arlega skorið við nögl. Því til stað-
festingar verð ég að segja sögu af
sjálfum mér, en í þessari grein ætla
ég ekki að rekja annað ranglæti sem
snýr að eldra fólki.
Ég var í marga áratugi bóndi, og
tók vitanlega þátt í því sem ég hef
rakið að reka þjóðfélag okkar. Svo
þegar vinnugetu minni fór að hnigna
það mikið að ekki var hægt að halda
öllu í lagi, þá var ákveðið að selja.
Gamall bóndi hefur skilning á öllu
öðru frekar en standa í svoleiðis
málum en mér var sagt að þyrfti að
borga af svokölluðum söluhagnaði
rúm 38% til ríkisins. En mér var
aldrei sagt að máli skipti hvað selj-
andinn væri gamall. En það er ein-
mitt erindi mitt til ykkar sem lesið
þetta og verðið í sömu stöðu, þegar
þið farið frá búum ykkar eða öðrum
atvinnurekstri, sem í mörgum tilfell-
um dugar bara til að kaupa sér íveru-
hús, og ekkert meira en það, því svo
mikill er verðmunur á fasteignum.
Ef ég hefði selt sextíu og sex ára eða
yngri hefði ég borgað þessi 38% en
vegna þess að ég var sextíu og sjö
ára voru það 48%. Ég fékk bréf frá
Tryggingastofnun á haustdögum
þess efnis að mér hefði verið ofborg-
aður ellilífeyrir vegna tekna. Tekna
af sömu upphæðinni og ég borgaði
38% skattinn af. Öryrkjum hafa á
sama hátt verið reiknaðir auka skatt-
ar, ef hægt er að ná einhverju af
þeim, sem birt hafa verið ljót dæmi
af. “Svona gerir maður ekki”. Að
skattleggja aldraða og öryrkja meira
en aðra.
Flestir eru mér sammála að þetta
sé öðru vísi en á að vera, margir
hafa haft stærri orð en ég um hvað
þetta sé vitlaust. En svo hafa sum-
ir reynt að snúa út úr þessu, með
því að þetta sé öðruvísi reiknað hjá
Tryggingastofnun og það sé ekki
skattur. Þó biður stofnunin um að
þetta sé borgað strax, þar er starfs-
fólki gert að vinna þetta svona, sam-
kvæmt því sem löggjafin býr þeim
í hendur. Siðmenntaðar þjóðir hafa
á margan hátt reynt að búa fólki
þolanleg lífskjör með greiðslu af
almannafé sem allir taka þátt í, eft-
ir því sem efni leyfa, og sannarlega
hefur það til dæmis komið barna-
fjölskyldum til góða, og engum
sem ungur er finnst lítillækkun að
taka við þeirri hjálp. Bara aldraðir
fá sérstakt viðurnefni að bera; ellilíf-
eyrisþegar, sem mörgum þykir nið-
urlæging, því það fólk man tal um
vanvirðu að þurfa lífshjálp. Og þeir
eru enn meðhöndlaðir samkvæmt
því eins og ég hef lýst.
Ég hef haft samband við fjóra
ráðherra um þetta. Og reynt mik-
ið til að ná sambandi við þann
fimmta, sem sagðist vera stolt af
því sem gert var fyrir gamla fólkið.
“Hún er ekki stolt af þessu”, sagði
aðstoðamaður ráðherra. Ekki til að
leiðrétta minn hlut því það er orð-
ið að veruleika gagnvart mér, held-
ur má þetta ekki svona ganga, að
aldraðir verði á milli þilja í þjóðfé-
laginu eins og litli drengurinn sem
minnst var á í upphafi.
Grétar Haraldsson frá Miðey
„Skammastu upp í skotið þitt“
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Háþrýstidælur
Vinnuþjarkar ætlaðir til
daglegra nota
HD 10/25-4 S
Vinnuþrýstingur
30-250 bör
500-1000 ltr/klst
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
Túrbóstútur + 50%
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
Vinnuþrýstingur
30-160 bör
230-600 ltr/klst
15 m slönguhjól
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
Túrbóstútur + 50%
Fundur um þjóðlendu-
mál á Blönduósi
Þriðjudaginn 20. mars sl. stóð
Búnaðarsamband Húnaþings og
Stranda fyrir fundi á Blönduósi
um þjóðlendumál. Frummælendur
voru Ólafur Björnsson lögfræðing-
ur, Guðný Sverrisdóttir, formað-
ur Landssamtaka landeigenda á
Íslandi og Gunnar Sæmundsson,
stjórnarmaður í landssamtökunum.
Um 140 manns sátu fundinn og var
hann bæði málefnalegur og fróð-
legur. Þessa dagana eru fleiri bún-
aðarsambönd að skipuleggja fundi
um þjóðlendumálin. Fram kemur
á heimasíðunni landeigendur.is
að stjórn landssamtakanna skor-
ar á búnaðarsamböndin að stofna
til svipaðra funda um allt land á
næstu vikum.