Bændablaðið - 27.03.2007, Page 35
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200735
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is
www.utflutningsrad.is
Heimsmeistaramót
íslenska hestsins
í Hollandi
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
04
46
6.-12. ágúst 2007
Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram dagana 6.-12.
ágúst nk. Mótið verður haldið í Oirschot sem er í nágrenni
Eindhoven í Hollandi. Útflutningsráð Íslands hefur tekið á leigu
tjöld á sýningarsvæðinu og vill kanna áhuga fyrirtækja á að taka
þátt í sýningunni og kynna vörur sínar og þjónustu.
Markaðsnefnd um íslenska hestinn tekur þátt í kostnaði þátt-
takenda á sameiginlegu sýningarsvæði Útflutningsráðs.
Mótshaldarar gera ráð fyrir að um 25.000 gestir muni sækja
mótið.
Áhugasömum um þátttöku eða nánari upplýsingar er bent
á að hafa samband við Berglindi Steindórsdóttur,
berglind@utflutningsrad.is, eða Björgvin Þór Björgvinsson,
bjorgvin@utflutningsrad.is. Síminn er 511 4000.
Líf og lyst
Ungmennafélögin Baldur, Samhygð og Vaka í Flóahreppi sýna um þessar mundir gamanleikinn Draum á Jóns-
messunótt eftir William Shakespeare í félagsheimilinu Þingborg. Leikritið hefur fengið frábærar viðtökur hjá
áhorfendum enda um bráðskemmtilegt verk að ræða, þar sem leikarar fara á kostum. Leikstjóri er Gunnar Sig-
urðsson en alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni, auk aðstoðarfólks. Sýningaáætlun má finna á heimasíðunni;
www. floahreppur.is. Allar sýningar hefjast kl. 20.30. Miðapantanir í síma 486-3319 eða 845-9719. MHH
Draumur á Jónsmessunótt í Þingborg
Leikararnir 12 sem taka þátt í uppfærslu á verkinu í Þingborg, allt áhugaleikfólk úr ungmennafélögunum þremur,
standa sig með mikilli prýði í sýningunni.
Stefán Geirsson í Gerðum og Margr-
ét Valdimarsdóttir í Gaulverjabæ í
hlutverkum Demetríusar og Helenu
fögru.
Draumur 3: Unnur Jónsdóttir frá Lundi í Lundarreykjadal og Tómas Karl
Guðsteinsson frá Egilsstöðum leika Hermíu og Lísander í verkinu.
Leikfélag Hofsóss hefur í vetur
æft leikritið „Ef væri ég gullfisk-
ur“ eftir Árna Ibsen.
Leikstjóri er Þröstur Guðbjarts-
son og hlutverk eru tíu. Leikritið
er svokallaður farsi þar sem bæði
peningar og framhjáhald koma
við sögu. Leikritið var frumsýnt
nú fyrir helgina og verður sýnt
næstu tvær vikur í félagsheimilinu
Höfðaborg á Hofsósi.
Fríða Eyjólfsdóttir formað-
ur leikfélagsins segir að búið sé
að æfa öll kvöld og aðra hverja
helgi síðan í byrjun febrúar. Leik-
arar koma af svæðinu frá Hólum í
Hjaltadal og norður í Fljót og hafa
flestir stigið á svið áður, auk þess
er álíka fjöldi af aðstoðarfólki.
Vert er að vekja athygli á félags-
starfi sem þessu því við að koma
upp sýningu sem þessari legg-
ur fólk á sig ómælda vinnu við
æfingar og jafnvel fjárútlát þeir
sem þurfa að aka um langan veg
meðan á þessu stendur til viðbótar
sinni daglegu vinnu.
Leikfélagið á Hofsósi hefur ver-
ið virkt á undanförnum árum. Það
tók sér raunar frí á síðasta ári en
2005 setti félagið upp Góðverkin
kalla sem fékk mjög góðar viðtök-
ur.
Myndin var tekin á æfingu á Ef
væri ég gullfiskur. Á henni eru í
hlutverkum sínum talið frá vinstri
Fríða Eyjólfsdóttir, Ingólfur Arnar-
son,Elín Ólafsdóttir og Helgi Thor-
arensen. Mynd og texti ÖÞ
Ef væri ég gullfiskur, sýnt á Hofsósi
Þrettánda Strandagangan
Strandagangan fór fram í þrett-
ánda sinn á Steingrímsfjarðar-
heiði laugardaginn 17. mars. Sjö-
tíu keppendur tóku þátt í þessari
skíðagöngu sem er ein af sex í svo-
nefndri Íslandsgöngu. Stranda-
gangan er sú eina sem haldin er
í þetta fámennu byggðarlagi en
Strandamenn hafa löngum verið
duglegir iðkendur gönguskíða.
Veður var nokkuð hagstætt,
tveggja gráðu frost og lítill vindur
en nokkur þoka á heiðinni Keppt
var í nokkrum vegalengdum, 1 km,
5 km, 10 km og 20 km og gengið
með hefðbundinni aðferð. Auk
verðlauna í hverjum flokki og fyrir
sveitakeppni er keppt um Sigfúsar-
bikarinn sem gefinn er af Heilbrigð-
isstofnuninni á Hólmavík til minn-
ingar um Sigfús A. Ólafsson sem
lengi var héraðslæknir á Hólmavík.
Að þessu sinni kom bikarinn í hlut
Andra Steindórssonar á Akureyri
sem gekk 20 km á tæpum 69 mín-
útum.
Eftir gönguna var boðið upp á
glæsilegt kaffihlaðborð og verð-
launaafhendingu í félagsheimilinu
á Hólmavík. kse
Um 50 keppendur leggja upp í hópstarti í öllum vegalengdum nema 1 km.
Hressir Strandakrakkar að lokinni göngunni. Frá vinstri: Einar Friðfinnur
Alfreðsson, Númi Leó Rósmundsson, Jamison Ólafur Johnson og Kol-
brún Ýr Karlsdóttir. Myndir: Ingimundur Pálsson.
Andri Steindórsson með bikarinn.