Bændablaðið - 27.03.2007, Qupperneq 36
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200736
Í lok vetrar er jafn mikilvægt að
borða kjarngóðan og hollan mat
sem í byrjun hans. Eftirfarandi
uppskriftir innihalda allar kart-
öflur í þó nokkru magni en það
er eitt af því hráefni sem hægt er
að leika sér endalaust með. Upp-
skriftirnar eru í raun viðeigandi
allt árið um kring og eru fylltu
kartöflurnar og kartöflusalatið
tilvalið með góðum grillmat í
sumar.
Kjúklingur vinnumannsins
2 laukar
1 msk. smjör
800 g kartöflur
1 tsk. salt
1 ½ dl jurtakraftur
1 ½ dl mjólk
1 msk. maíssterkja
4 kjúklingabringur
1-2 tsk. ferskt tímían
Aðferð:
Skerið laukinn í sneiðar og steikið
létt á pönnu í smjöri. Skerið einnig
kartöflurnar í sneiðar. Setjið kart-
öflur, lauk og salt í pott og bætið
kraftinum við. Bætið mjólk og
maíssterkju saman við. Setjið lok
á pottinn og sjóðið við vægan hita
í 8-10 mínútur þar til kartöflurnar
eru soðnar.
Skerið kjúklinginn í hæfilega stóra
bita. Steikið upp úr smjöri á pönnu
og saltið. Leggið kjúklinginn ofan
á kartöflurnar í pottinum. Kryddið
með tímían, setjið lokið á og sjóðið
í fimm mínútur til viðbótar.
Berið fram með góðu salati.
Kartöflusalat með ólífum og tab-
asco-sósu
10 meðalstórar kartöflur
450 g blandað grænmeti með maís-
korni (frosið)
10 egg, harðsoðin
18 grænar ólífur, fylltar
Sósa:
1½ dós sýrður rjómi (10% eða 18%)
3 msk. majónes
8 dropar tabasco-sósa
4 msk. dijon-sinnep
Sjóðið kartöflurnar og kælið þær.
Sjóðið grænmetisblönduna í sölt-
uðu vatni í 2-3 mínútur. Kælið í
sigti undir rennandi vatni. Skerið
kartöflurnar í jafnar sneiðar. Saxið
átt egg og notið tvö til skrauts ofan
á réttinn.
Sósa:
Blandið innihald sósunnar saman.
Setjið salatið saman í skál í lögum:
fyrst kartöflur, síðan grænmeti, þá
söxuð egg og kartöflur og að loku
sósa. Endurtekið þar til hráefni er
búið og skreytið efsta lag sósunnar
með eggja- og ólífusneiðum.
Fylltar kartöflur með osti
8 stk. grillkartöflur
4 msk. smjör
2 eggjarauður
½ dl rjómi
salt
pipar
¼ tsk. múskat, rifið eða duft
100 g rifinn ostur
paprikuduft
Aðferð:
Bakið grillkartöflurnar í 200ºC heit-
um ofni í 10 mínútur. Skerið lok af
þeim langsum og skafið innan úr
þeim með skeið. Maukið með eggja-
rauðum, heitum rjóma, kryddi og
smjöri í skál þar til blandan hefur
samlagast. Setjið með skeið í kart-
öflubátana, stráið rifnum ostinum
yfir og svo paprikudufti. Bakið við
200ºC þar til kartöflurnar eru orðn-
ar vel brúnar. ehg
MATUR
Kjarngóðir kartöfluréttir
Þið munið hann
Jörund á Hólmavík
Leikfélag Hólmavíkur frumsýndi
á laugardaginn Þið munið hann
Jörund eftir Jónas Árnason, í leik-
stjórn Skúla Gautasonar. Með hlut-
verk Jörundar fer Gunnar Melsted,
Sigurður Atlason leikur Charlie
Brown, Jón Gústi Jónsson Laddie
og Jóhanna Ása Einarsdóttir er í
hlutverki Stúdíósusar. Fjölmargir
aðrir leikarar taka þátt í uppfærsl-
unni ásamt þriggja manna hljóm-
sveit sem er skipuð þeim Kristjáni
Sigurðssyni, Salbjörgu Engilberts-
dóttur og Stefáni Jónssyni. Auk
þeirra tveggja sýninga sem þegar
hafa verið sýndar eru áformaðar
fjórar í viðbót á Hólmavík og ein
í Bolungarvík. Leikfélag Hólma-
víkur hefur vakið athygli fyrir
ferðagleði sína undanfarin ár en
að þessu sinni gefur umbúnaður
sýningarinnar ekki tilefni til eins
marga ferða og verið hefur. Frá
því leikfélagið var endurvakið árið
1980 hefur það sett upp fjölda leik-
rita ásamt því að taka virkan þátt í
öðru menningarlífi á staðnum, s.s.
þorrablótum, góufögnuðum, bæjar-
hátíðum og kaffileikhúsi. kse
Hér að neðan sést leikhópurinn
en til vinstri er Sigurður Atlason
fremst í hlutverki Charlie Brown
en Gunnar Melsted fyrir aftan í hlut-
verki Jörundar.
Þrír efstu í upplestrarkeppninni frá vinstri Ása Svanhildur, Kristveig Anna
og Jóhann Viðar. Ljósm. ÖÞ
Stóra upplestrarkeppnin tíu ára
Glæsilegt lokakvöld á
Sauðárkróki
„Upplestrarkeppnin er nú hald-
in hér í sjöunda sinn, en það eru
liðin tíu ár síðan þetta verkefni
var sett á laggirnar. Upplestrar-
keppnin er ekki bara keppni, hún
er líka þróunarverkefni. Hún er
haldin að frumkvæði áhugafólks
um íslenskt mál í samvinnu við
skólaskrifstofur, skóla og kenn-
ara. Hún er ekki skylduverkefni
fræðsluyfirvalda og þátttaka í
henni er frjáls en það er augljóst
að hún er að festa sig rækilega
í sessi og þykir orðið sjálfsagð-
ur þáttur í skólastarfi sjöunda
bekkjar um allt land,“ sagði Ingi-
björg Hafstað umsjónarmaður
keppninnnar í Skagafirði þegar
hún ávarpaði keppendur og gesti
á lokakvöldinu sem haldið var á
Sauðárkróki á dögunum.
Átta krakkar úr fjórum skólum
kepptu til úrslita á lokakvöldinu en
áður hafði verið forkeppni innan
hvers skóla. Svo óheppilega vildi
til að þrír keppendur frá Siglufirði
komust ekki til Sauðárkróks vegna
veðurs og var þetta annað árið í
röð sem það gerist. Úrslit urðu
þau að Jóhann Viðar Hjaltason úr
Varmahlíðarskóla sigraði. Í öðru
sæti varð Kristveig Anna Jónsdótt-
ir úr Árskóla og þriðja varð Ása
Svanhildur Ægisdóttir einnig úr
Árskóla. Þetta var tvímælalaust
kvöld unga fólksins. Flutningur
krakkanna á texta var góður og
augljóst að þar lá talsverð æfing
að baki, ekki síst í að flytja efni í
hljóðnema. Á milli atriða var svo
tónlistarflutningur þar sem börn og
unglingar úr Tónlistarskóla Skaga-
fjarðar léku á ýmis hljóðfæri. Það
var Sparisjóður Skagafjarðar sem
veitti peningaverðlaun til þriggja
efstu í keppninni en auk þess veitti
Edda bókaútgáfa öllum keppendum
bókaverðlaun. ÖÞ
Bolungarvík
Gert við tennur á ný
Tannlæknar frá Ísafirði hafa lýst
yfir áhuga á að koma til starfa
og sinna skólatannlækningum í
Bolungarvík. Bæjarráð fagnaði
því í bókun á fundi á dögunum
að tannlæknar skuli koma aftur
til starfa í sveitarfélaginu. Bæj-
arsjóður greiðir kostnað vegna
viðgerða á búnaði til tannlækn-
inga á heilsugæslustöðinni enda
er hann í eigu sjóðsins.