Bændablaðið - 27.03.2007, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200737
ÞÓR HF | Ármúla 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070
Smágröfur frá KUBOTA
Hafið samband við sölumenn okkar
og fræðist nánar um
japönsku KUBOTA
smágröfurnar.
Beltavagnar frá KUBOTA.
Burðargeta 1 tonn eða 2,5
tonn.
Frá KUBOTA, einum stærsta
framleiðanda á smágröfum, bjóðum
við gröfur í stærðum frá 800 kg upp
í 8 tonn.
Litir íslenska hestsins eftir Frið-
þjóf Þorkelsson er kærkomin bók
fyrir alla ræktendur og kaupend-
ur íslenskra hrossa. Í bókinni er
farið ítarlega yfir litafjölbreytni
og sjaldgæfa liti folalda og full-
orðinna hrossa. Farið er yfir þró-
un lita frá folaldsaldri til fullorð-
insára og gefur það góða sýn á
framtíðarliti folalda.
Áratuga vinna að baki
Höfundurinn hefur unnið áratugum
saman að því að ljósmynda alla liti
og öll litbrigði sem þekkt eru og hef-
ur það krafist mikillar þolinmæði
því fá hestakyn státa af jafnmikilli
fjölbreytni í litum og það íslenska.
Friðþjófur Þorkelsson fæddist í
Skerjafirði árið 1932. Hann nam við
Iðnskólann í Reykjavík, tók próf það-
an árið 1952 og hefur haft lifibrauð
sitt af húsasmíði. Friðþjófur var ung-
ur þegar hann féll fyrir hestamennsk-
unni og fékk hann sinn fyrsta hest í
fermingargjöf frá foreldrum sínum.
Hann hefur tekið ógrynni hestaljós-
mynda og náð góðum árangri í hesta-
keppnum hérlendis.
Ágúst Sigurðsson, rektor Land-
búnaðarháskóla Íslands, ritar for-
mála og dr. Anne Phaff Ussing
líffræðingur veitti vísindalega ráð-
gjöf. Bókin, sem kom út á síðasta
ári, er gefin út á fjórum tungumál-
um; íslensku, ensku, þýsku og
dönsku. ehg
Litum íslenska hestsins gerð góð skil
LITIR ÍSLENSKA HESTSINS
FRIÐÞJÓFUR ÞORKELSSON
Góugleði á
Hólmavík
Hólmvíkingar, nærsveitungar og
gestir þeirra gerðu sér glaðan dag
á góugleði á dögunum. Metaðsókn
var á góugleðina og viðraði vel til
hátíðarhalda. Létu menn sig ekki
muna um að smíða nýtt svið í stúk-
unni í félagsheimilinu þar sem nýta
þurfti upprunalegt leiksvið undir
borðhald. Að venju var það karlpen-
ingurinn sem sá um undirbúning-
inn og stóð sig með mikilli prýði.
Uppistaðan í skemmtiatriðunum
var myndband um vesturíslenskan
ferðalang sem kemur til Hólmavík-
ur og skoðar sögustaði þar. Einnig
voru sett á svið nokkur leikin atriði
og mikið sungið. Maturinn var fram-
reiddur af veitingastaðnum Café
Riis og sáu því heimamenn um allt
sem til þurfti. kse
Ingimundur Pálsson og Ágústa
Ragnarsdóttir
Þorstein Sigfússon, Bjarni Stefánsson og Victor Örn Victorsson hressir
og kátir á Góunni. Myndir: Jón Halldórsson.
Prjónaði á
sig lopapeysu
Dagur Fannar Magnússon, nem-
andi í 9. bekk í Vallaskóla á Sel-
fossi, gerði sér lítið fyrir í vetur
og prjónaði á sig lopapeysu í vali
í textílmennt og bútasaumi hjá Þur-
íði Ingvarsdóttur kennara. Hann
prjónaði peysuna bæði í tímum og
heima hjá sér og hefur hún þegar
komið sér vel því Dagur fór t.d. í
henni á skíði um daginn. Þuríður
gefur nemanda sínum bestu ein-
kunn fyrir prjónaskapinn. Á með-
fylgjandi mynd má sjá Dag í lopa-
peysunni góðu sem fer honum sér-
staklega vel. MHH
Dagur Fannar í lopapeysunni sem
kemur sér vel núna þegar veturinn
er loksins búinn að ná sér á strik.