Bændablaðið - 15.11.2012, Page 1
22. tölublað 2012 Fimmtudagur 15. nóvember Blað nr. 383 18. árg. Upplag 60.000
Bráðabirgðatölur liggja nú fyrir
um sauðfjárslátrunina í haust.
Þrátt fyrir áföll í haust sem
óveðrið norðanlands hafði í för
með sér eykst framleiðsla milli
ára um 3,5 prósent sé horft til
tólf mánaða tímabils. Á síðustu
þremur mánuðum, ágúst til og
með október, jókst framleiðslan
um 3,3 prósent en það er sá tími
sem meginþunginn af sláturtíð
stendur. Á því tímabili voru
framleidd 9.598 tonn af kindakjöti.
Á ársgrundvelli eykst framleiðsla
í öllum flokkum, þ.e. dilkakjöti,
ærkjöti, kjöti af veturgömlu og
hrútum.
Sala á kindakjöti eykst líka
verulega milli ára. Á ársgrundvelli,
sé horft til síðustu tólf mánaða,
er aukningin rétt tæp 10 prósent.
Útflutningur dregst hins vegar
saman um sömu prósentutölu milli
ára. Þó ber ekki að draga of miklar
ályktanir af því, einkum í ljósi þess
að útflutningur hefur aukist um 3
prósent síðustu þrjá mánuði borið
saman við sömu mánuði árið 2011.
Stefán Vilhjálmsson, fagstjóri
matvælaöryggis og neytendamála
hjá Matvælastofnun, sem hefur
yfirumsjón með kjötmati, hefur
skoðað þau gögn sem komin eru.
Meðalvigt á landsvísu er að sögn
Vilhjálms um hálfu kílói meiri en
í fyrra og er það hæsta meðalvigt
allra tíma.
Sumarið verið hagfellt
„Hún er ekki alveg staðfest en
bráðabirgðatölur sýna að meðalvigtin
er 16,28 kíló. Í fyrra var meðalvigtin
15,77 kíló, sem var lægra en árið
2010, en þá var hún rétt tæplega 16
kíló. Þetta er sem sagt í fyrsta skipti
sem meðalvigt yfir landið er yfir 16
kílóum.
Flokkun er á svipuðu róli og í
fyrra, holdfylling er kannski ívið
meiri og fita einnig en það er bara
eðlilegt sé horft til hærri meðalvigtar.
Ljóst er að þetta sumar hefur verið
hagfellt fyrir sauðfé og áföll sem
dundu á norðanlands í haust hafa
ekki haft veruleg áhrif á þessa þætti.“
Sprenging í framleiðslu á
hrossakjöti
Gríðarleg aukning er í framleiðslu
á hrossakjöti á landinu samkvæmt
gögnum frá Landssamtökum
sláturleyfishafa. Aukningin er ríflega
55 prósent á milli ára, sé miðað við
tólf mánaða tímabil þar sem október
er síðasti mánuðurinn. Í október var
aukningin enn meiri, tæp 80 prósent
miðað við október í fyrra. Þetta
staðfestir vel frétt Bændablaðsins frá
17. október síðastliðnum, en þar var
einmitt sagt frá því að útlit væri fyrir
að fleiri hrossum yrði slátrað nú en
undanfarin ár.
Ekki er óvarlegt að ætla að
aukningin í hrossakjötsframleiðslunni
verði enn meiri en þessar tölur gefa til
kynna. Í frétt á blaðsíðu 7 í þessu blaði
er haft eftir Guðmundi Svavarssyni,
framleiðslustjóra hjá SS, að mikil bið
sé eftir slátrun hrossa á Selfossi. Þar
séu menn að slá öll met. Sömuleiðis
sögðu sláturhússtjórar vítt og breitt
um landið í frétt Bændablaðsins fyrir
mánuði að mikill fjöldi hrossa væri á
biðlista eftir slátrun.
Það sem af er ári hafa verið
framleidd tæp 1.300 tonn af
hrossakjöti. Þá hefur sala á hrossakjöti
aukist verulega milli ára en sé miðað
við tólf mánaða tímabil er aukningin
13,6 prósent og hefur tekið gríðarlegan
kipp sé horft á muninn milli október í
ár og sama mánaðar í fyrra. Aukningin
milli þessara mánaða er hvorki meiri
né minni en 130 prósent. Útflutningur
milli ára hefur því sem næst tvöfaldast.
Framleiðsla á nautakjöti hefur
einnig aukist; er 8,8 prósentum meiri
á ársgrundvelli en var á síðasta ári.
Þá hefur framleiðslu á alifuglakjöti
aukist um 9,8 prósent miðað við sömu
tímabil en þess ber þó að geta að um
áætlun er að ræða þar sem heildartölur
lágu ekki fyrir við vinnslu fréttarinnar.
Framleiðsla á svínakjöti dregst hins
vegar saman um 2,6 prósent.
/fr
Góð útkoma úr sauðfjárslátrun á þessu hausti:
Meðalvigt hefur aldrei verið hærri
– Hrossaslátrun aukist gríðarlega frá fyrra ári þrátt fyrir mikla slátrun á árinu 2011
Frjótæknar
hóta verkfalli
Frjótæknar hafa sent frá
sér fréttatilkynningu vegna
kjaradeilna sinna við búnaðar-
samböndin. Þar kemur fram að ef
samningar náist ekki fyrir áramót
sé ekkert anað í stöðunni en að
boða til verkfalls.
Fréttatilkynningin er svohljóð-
andi:
„Vegna samningsstöðu frjótækna
við Búnaðarsamböndin. Frjótæknar
hafa verið með lausa samninga við
búnaðarsamböndin frá 1. janúar 2008.
Hafa farið fram samningafundir sem
ekki hafa skilað neinum árangri.
Frjótæknar hafa dregist mikið aftur
úr í launum miða við aðrar stéttir. Ef
ekki takast samningar fyrir áramót
2012 er eina í stöðunni að frjótæknar
fari í verkfall.“
Björg Ingvarsdóttir og Snæbjörn
Sigurðsson í Efsta-Dal II í
Bláskóga byggð eru nú ásamt
börnum sínum og tengdabörnum
að byggja 500 fermetra við-
byggingu við fjósið á bænum. Er
byggingin á tveimur hæðum og er
ætlunin að gefa ferðamönnum þar
innsýn í sveitastörfin.
Efri hæðin leysir af hólmi eldra
eldhús og matsal fyrir ferðamenn. Á
neðri hæðinni verður mjólkurvinnsla
ásamt kaffihúsi og móttöku fyrir
fólk sem vill nýta sér gistinguna á
bænum.
Gluggar verða bæði á efri og neðri
hæð þar sem fólk getur fylgst með
öllu því sem fram fer í fjósinu. Einnig
verður gluggi inn í mjólkurvinnsluna
þannig að líka verður hægt að fylgjast
með því sem þar fer fram. Markmiðið
er að veita gestum innsýn í dagleg
sveitastörf og að fólk geti kynnst
sveitalífinu eins og það er í dag.
Nú eru um 45 kýr í Efsta-Dal. Þar
er einnig gistiheimili fyrir 28 manns
ásamt matsal fyrir 30 manns. Síðan
er þar hrossarækt og hestaleiga.
„Við trúum því að þetta virki
því við höfum fundið fyrir miklum
áhuga. Fólk vill fá að fara inn í fjósið.
Það er mjög forvitið um búskapinn
og vill hitta bændurna sjálfa og njóta
veitinga beint frá býli,“ sagði Björg
í samtali við blaðið.
Reiknað er með að nýja aðstaðan
verði klár í apríl næsta vor og hægt
verði að taka á móti ferðamönnum í
fjósið í byrjun júní.
/MHH
Nýtt ferðamannafjós byggt í Efsta-Dal II í Bláskógabyggð
Snæbjörn og Björg í Efsta-Dal II byggja nýja ferðamannafjósið með aðstoð barna sinna og tengdabarna, sem eru komin á kaf með þeim í
ferðaþjónustureksturinn á bænum, sem hefur gengið mjög vel síðustu árin. Mynd / MHH
SS flytur út
lambatyppi
Sláturfélag Suðurlands, SS, hefur
hafið útflutning á lambatyppum og
lungum. Er þetta í fyrsta sinn sem
slíkt er gert, en vaxandi eftirspurn
er erlendis eftir aukaafurðum af
ýmsu tagi.
Vambir hafa áður verið fluttar
út, sem og garnir, ýmiss konar
fita og afskurður. Ráðstöfun kjöts
og annarra afurða var annars með
hefðbundnum hætti. Ferskt kjöt er
hlutað og skorið bæði á Selfossi
og á Hvolsvelli, skrokkar frystir
í heilu og grófhlutaðir á báðum
stöðum. Kjöt er flutt út og sett í
geymslur á Hvolsvelli og Selfossi
og í leigugeymslur til eigin
ráðstöfunar eða útflutnings síðar.
Slátur og innmatur fer í slátursölu,
til frystingar fyrir kjötvinnslu og til
útflutnings. Gærur eru saltaðar á
staðnum og fluttar út jafnóðum.
Lesa má nánar um vel heppnaða
sláturtíð SS á bls. 38.
16
Landsvirkjun reisir tvær
vindrafstöðvar við Búrfellsvirkjun
24-25
Hvernig framleiðum við
meiri og betri mat?
22
„Ostarnir eru mín
nördistaástríða"
Enn bætist í hóp svokallaðra
Íslandsvin,a en á dögunum var
Howard Graham Buffet hér á ferðinni
ásamt föruneyti. Tilgangurinn var að
fræðast um áhrif loftslagsbreytinga
á norðlægum slóðum og kynnast
möguleikum í jarðrækt hérlendis.
Howard G. Buffet er sonur
stóreignamannsins Warren Buffet,
sem er meðal efnuðustu manna
samtímans. Howard er mikill
áhugamaður um fæðuöryggismál en
hann hitti m.a. fulltrúa BÍ á meðan á
dvöl hans stóð hér á landi. Í samtali
við Ólaf R. Dýrmundsson, ráðunaut
hjá BÍ, kom fram áhugi Buffets á að
fjárfesta í landi hérlendis og gera
tilraunir með maísrækt.
Nánar á bls. 8.
Mun Buffet rækta
maís á Íslandi?