Bændablaðið - 15.11.2012, Síða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 20122
Fréttir
Aðalfundur ERL
Bændur eru hvattir til að tilkynna
Bændasamtökunum um tjón af
völdum álfta og gæsa.
Hægt er að gera það með sérstöku
eyðublaði sem hægt er að nálgast á vef
Bændasamtakanna, www.bondi.is.
Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin
hjá búnaðarsamböndunum.
Upplýsingarnar eru m.a. notaðar til
að meta hversu víðtækt vandamálið
er.
Tjón vegna
álfta og gæsa
Aðalfundur ERL (Eigenda og
ræktenda íslenskra landnáms-
hænsna) verður haldinn laugar-
daginn 17. nóvember nk. kl. 14.
Fundurinn verður haldinn í kaffi-
stofu Bændasamtakanna á 3. hæð í
Bændahöllinni við Hagatorg.
Dagskrá fundarins
Ávarp formanns og skýrsla
stjórnar. Venjuleg aðalfundar-
störf. Kosningar. Önnur mál.
Kaffiveitingar í boði stjórnar.
Mætum sem flest og eigum góða
stund saman. /Stjórnin
Aðalfundur Æðarræktarfélags
Íslands haldinn í Reykjavík
laugardaginn 10. nóvember 2012
skorar á stjórnvöld að leggja fram
sambærilega tillögu um breytta
skipan á minkaveiða á Íslandi
og lögð hefur verið fram um
breytta skipan refaveiða á Íslandi.
Tillagan miði að því að stuðla að
útrýmingu villts minks á Íslandi.
Þá segir í ályktun félagsins:
„Tryggja verður að reglur um
minka bú og eftirfylgni með þeim
séu með þeim hætti að minkar sleppi
ekki með nokkru móti úr búrum
og húsum minkabúa út í náttúruna.
Ennfremur að minkabú taki þátt í
kostnaði við útrýmingu minks á
meðan minkar finnast á landinu og
taki þar með að hluta þátt í að bæta
það tjón sem leiðir af starfseminni.
Sem lið í virku eftirliti með loðdýra-
búum og starfsemi verði séð til þess
að öll lífdýr í loðdýrabúum verði
örmerkt í framtíðinni. Það eru miklir
hagsmunir æðarbænda og íslenskrar
náttúru að þetta innflutta aðskotadýr
hverfi af landinu.“
Einnig ályktað um refa- og
minkaveiðar
Samhliða fyrrgreindir ályktun sendi
Æðarræktarfélagið frá sér eftir-
farandi ályktun um endurgreiðslu
virðisaukaskatts vegna refa- og
minkaveiða.
„Aðalfundur Æðarræktarfélags
Íslands haldinn í Reykjavík laugar-
daginn 10. nóvember 2012 skorar
á Alþingi að samþykkja frumvarp
til laga um breytingu á lögum um
virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með
síðari breytingum. Til að hvetja
til veiða á ref og mink er brýnt að
virðisaukaskattur af veiðunum fáist
endurgreiddur í stað þess að nota
veiðarnar sem tekjustofn fyrir ríkis-
sjóð eins og nú er gert.“
Fagnar þingsályktunar tillögu
um breytta skipan refaveiða
Þá fagnaði aðalfundur félagsins
þingsályktunartillögu um breytta
skipan refaveiða á Íslandi. Flutnings-
menn tillögunnar eru Ásmundur
Einar Daðason, Gunnar Bragi
Sveinsson, Vigdís Hauksdóttir, Birkir
Jón Jónsson, Höskuldur Þórhallsson,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Einar
K. Guðfinnsson, Ólöf Nordal,
Jón Gunnarsson, Guðlaugur Þór
Þórðarson og Árni Johnsen.
Ályktaði félagið sérstaklega
um þetta frumvarp. Þar segir að
Aðalfundur Æðarræktarfélags
Íslands haldinn í Reykjavík
laugardaginn 10. nóvember 2012
fagni þingsályktunartillögu um
breytta skipan refaveiða á Íslandi.
„Þingsályktunartillagan stuðlar
að því að halda refastofninum innan
eðlilegra marka og draga þannig úr
tjóni af völdum refs. Æðarræktarfélag
Íslands leggur þunga áherslu á
að þingsályktunartillagan verði
samþykkt og umhverfis- og
auðlinda ráðherra verði falið að
breyta skipan refaveiða á Íslandi.“
Þingsályktunartillagan hljóðar
svo:
Alþingi ályktar að fela
umhverfis- og auðlindaráðherra að
breyta framtíðarskipan refaveiða.
Markmiðið verði að refastofninum
verði haldið innan eðlilegra marka
en svo það náist feli breytingarnar
eftirfarandi í sér:
a. Að refaveiðar verði ekki bannaðar
á ákveðnum landsvæðum,
b. Að teknar verði aftur upp greiðslur
úr ríkissjóði vegna fækkunar refa,
c. Að rannsóknir verði á hendi vís-
indamanna en veiðistjórnun,
þ.e. skipulagning, stjórnun
og leiðbeiningarþjónusta við
veiðimenn, á hendi reyndra
veiðimanna,
d. Að samið verði við Samband ísl-
enskra sveitarfélaga eða
landshlutasamtök sveitarfélaga
um að sjá um skipulagningu
veiðanna og greiðslur til
veiðimanna,
e. Að greiðslur fyrir hlaupadýr og
grenjavinnslu verði þær sömu um
land allt.
Ráðherra leggi fyrir Alþingi fyrir 1.
apríl 2013 frumvarp til laga um þau
atriði sem krefjast lagabreytinga.
/HKr.
Æðarræktarfélag Íslands ályktar um eldi og veiðar á mink og ref:
Vill hertar reglur um minkarækt á Íslandi
– Minkabúin verði algjörlega dýrheld og öll loðdýr verði örmerkt í framtíðinni
Æðarbændur fjölmenntu á aðalfund Æðarræktarfélags Íslands sem haldinn var á Hótel Sögu síðastliðinn laugardag. Myndir / HKr.
Bændur athugið. Orlofshús BÍ að
Hólum eru laus og standa ykkur
til boða.
Tilvalið að taka sér smá haustfrí
frá amstri dagsins og njóta fallegs
umhverfis í vel búnum húsum.
Nánari upplýsingar gefur
Halldóra á skrifstofutíma BÍ í síma
563-0360.
Orlofshús BÍ
að Hólum
Engin skilyrði fyrir hundaeign jafnvel þó að um schäfer- og dobermann-varðhunda sé að ræða:
Geðheilbrigðisvottorðs krafist á innfluttum hundum
en engar kröfur gerðar til væntanlegra eigenda
Á dögunum bárust af því fréttir
að hundur hefði lagst á fé skammt
frá Svalbarðseyri við Eyjafjörð.
Var talið ljóst að hundurinn
væri af husky-tegund. Hundar af
þeirri tegund þurfa gríðarmikla
hreyfingu og ljóst að fái þeir hana
ekki geta þeir tekið upp á að haga
sér með þessum hætti.
Elfa Ágústsdóttir, dýralæknir
á Akureyri, sagði í viðtali við
Akureyri-Vikublað, sem flutti fréttir
af dýrbítnum, að einungis væri
tímaspursmál hvenær alvarlegt slys
yrði á barni af völdum hunda sem
gengju lausir.
Sögur af hundum sem leggjast
á fé eru fráleitt nýjar af nálinni og
leiða af sér þá spurningu hvort um
einhverjar takmarkanir sé að ræða
varðandi hundahald eða hvort eig-
endur hunda þurfi að uppfylla ein-
hver skilyrði.
Í reglugerð um innflutning gælu-
dýra og hundasæðis kemur fram að
óheimilt sé að flytja til landsins til-
teknar tegundir hunda, fjórar talsins.
Er þar um að ræða Pit Bull Terrier,
Fila Brasileiro, Toso Inu og Dogo
Argentino.
Allar þessar tegundir eru
stórvaxnir, öflugir hundar sem
einkum hafa verið ræktaðir sem
árásar- eða bardagahundar. Auk
þess er bannað að flytja til landsins
blendinga úlfa og hunda.
Ekki er um aðrar hömlur á hunda-
eign að ræða utan þess sem sam-
þykktir sveitarfélaga innihalda.
Á að aflífa skilyrðislaust
Halldór Runólfsson yfir dýralæknir
segir að krafist sé geðheilbrigðis-
vottorðs á hundum af nokkrum
tegundum, svo sem schäfer- og
dobermann-hundum. Hið sama
gildi um sæðisgjafann, sé flutt inn
sæði hunda af þessum tegundum.
Hins vegar séu ekki settar kröfur á
eigendur hunda.
„Þetta er þekkt í öðrum löndum,
að eigendur verði að fara á námskeið
til að fá leyfi til að halda hunda af
ákveðnum tegundum. Það er hins
vegar mjög umfangsmikið verkefni
og við höfum ekki farið út í það.
Mín skoðun er sú að leggist hundar
á fé, að ég tali ekki um ef þeir bíta
fólk, eigi að beita gamla laginu og
sjá sóma sinn í að aflífa þessa hunda.
Hundi sem hefur einu sinni bitið er
ekki treystandi til framtíðar.“
/fr
Svampar í sauðfé
ófáanlegir
Svampar sem notaðir hafa verið
til samstillingar gangmála í ám
eru nánast ófáanlegir á landinu.
Ástæðan er að umræddir svampar,
sem heita Veramix, fást ekki hjá
birgjum erlendis. Svamparnir
eru framleiddir í Grikklandi og
hráefni í þá hafa ekki fengist frá
Bandaríkjunum.
Icepharma, sem flytur inn og
selur umrædda svampa, fékk ekki
upplýsingar um stöðu mála fyrr en
fyrir skömmu og var þá brugðist við
með því að láta aðila vita eftir föngum,
að sögn Harðar Sigurðssonar, sölu- og
markaðsstjóra fyrirtækisins. Verið er
að reyna að finna sambærilega vöru
til að bjóða upp á í stað Veramix en
það hefur ekki tekist til þessa.
„Ég hef talað við fyrirtækið í
Grikklandi sem framleiðir svampana
og það ætlar að reyna að flýta
framleiðslunni eins og hægt er. Því
miður verður það líklega of seint fyrir
flesta sauðfjárbændur sem notast við
þessa svampa því það verður aldrei
fyrr en um mánaðamót. Við höfum
verið í sambandi við framleiðendur
í Írlandi sem framleiða svipaða vöru
og þeir eru að kanna málið. Þar snýst
málið um hvort fyrirtækið hefur
útflutningsleyfi á viðkomandi lyfi en
fáist það flutt til landsins væri hægt
að selja það á undanþágu.“
Hörður segir að erfitt sé fyrir
Icepharma að bregðast við þessari
stöðu. „Þetta er sérhæft lyf og nú er
staðan sú að við höfum ekki getað
fengið það annars staðar, það er
vöntun á því alls staðar. Í framtíðinni
verðum við líklega að eiga þessi lyf
á lager frá árinu áður til að lenda ekki
í þessari stöðu.“
Líkur eru því á að notast verði við
stungulyf til að samstilla gangmál nú.
Þess ber að geta að með reglugerðar-
breytingu frá því í apríl í fyrr er felld
úr gildi heimild til að aðrir en dýra-
læknar megi koma svömpum fyrir
nema með sérstökum undanþágum.