Bændablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 20124
„Það er alveg ljóst að þetta er
ekki besta árið í búskapnum,“
segir Sigurgeir Hreinsson, bóndi
á Hríshóli í Eyjafjarðarsveit og
formaður Búnaðarsambands
Eyja fjarðar. Vonskuveður undan-
farið hefur leikið bændur og búalið
grátt og var vart á bætandi eftir
þurrkasumar og almennt fremur
rýran heyfeng.
„Við búum á Íslandi og vitum að
það eru ekki öll ár eins. Við nýtum
okkur kosti landsins þegar vel árar
og þurfum að sama skapi að takast á
við erfiðleikana sem ævinlega koma
upp með reglulegu millibili, m.a.
vegna veðurfars.“
Sigurgeir segir að bændur sjái
sjálfir um að moka snjó af heim-
reiðum og halda hlaðinu heima við
bæinn hreinu, þannig að í nógu hafi
verið að snúast við snjómokstur.
„Ég hef alltaf sagt að það sé mjög
óarðbært starf að moka snjó fyrir
sjálfan sig, það er mikil fyrirhöfn og
aukakostnaður og vinna, en því þarf
að sinna engu að síður og vissulega
sjá menn þúsundkallana fjúka.
Það eru ekki bara sveitarfélögin í
þéttbýlinu sem þurfa að eyða miklu
fé í snjómokstur,“ segir Sigurgeir.
Kemur niður á ullargæðum og
þar með verðinu til bænda
Veðrið í nóvember, einkum tvær
undanfarnar helgar, hefur verið
einkar slæmt og gert að verkum
að skepnur eru almennt á húsi.
Sauðfjárbændur rýja fé sitt yfirleitt
í nóvember og segir Sigurgeir að
best sé þegar hægt sé að hafa fé á
beit úti og taka það jöfnum höndum
inn til rúnings. Því hafi ekki verið að
heilsa nú, allt fé sé inni og það komi
niður á gæðum ullarinnar og þar
með því verði sem bændur fái fyrir
ullina. „Hún á það til að skemmast
í inniverunni, er ekki eins góð og ef
kindurnar eru úti, og það þýðir að
bændur fá ekki jafnhátt verð fyrir
ullina. Auðvitað vonuðust menn
til að geta beitt lengur úti fram á
haustið, en því miður er árferðið
þannig að taka þurfti snemma inn,
sem aftur hefur í för með sér að
gjafatími er lengri með tilheyrandi
auknum kostnaði,“ segir Sigurgeir.
Heyfengur var fremur rýr enda
áberandi miklir þurrkar ríkjandi á
liðnu sumri og segir Sigurgeir að
flestir bændur séu tæpir með hey, fáir
aflögufærir. Lengri gjafatími bæti
því ekki ástandið. Ofan á bætist að
grænfóður spilltist víða vegna veðurs
og ágangs gæsa og álfta, sem lögðust
á það í óveðrinu. Þá stórskemmdist
túnbeit, og há sem víða var óslegin
tapaði verulega fóðurgildi sínu og
varð jafnvel að engu.
Sem kunnugt er varð mikið
tjón af völdum óveðurs í byrjun
hausts, girðingar skemmdust eða
eyðilögðust og þá varð mikið
búfjártjón í hamfaraveðrinu.
Kostnaður við fjárleitir í kjölfar
veðursins er einnig afar mikill.
/MÞÞ
Fréttir
Kristján Gunnarsson, mjólkur-
eftirlitsmaður hjá MS-Akureyri,
segir að óveður undanfarnar
helgar hafi vissulega sett strik í
reikninginn varðandi mjólkur-
söfnun en sem betur fer hafi ekki
þurft að hella niður mjólk.
„Óveðurshelgin hin fyrri um
mánaðamótin var okkur erfið
og var ekki farið að safna mjólk
fyrr en á laugardag í staðinn fyrir
föstudagsmorgun, en við vorum
framsýn að því leyti að við komum
tveimur bílum austur fyrir Víkurskarð
á fimmtudagskvöldinu og þeir gátu
hafið söfnun austan heiðar seint
á föstudag þó að skarðið væri
lokað,“ segir Kristján. Að mestu
var lokið við að safna mjólk á
austur svæðinu á laugardeginum og
sunnudagsmorgninum en Víkurskarð
opnaðist ekki að nýju eftir óveðrið
fyrr en síðdegis á sunnudag.
„Þá komust bílarnir vestur yfir
fullir af mjólk og með aftanívagna
í stað þess að eiga allt austursvæðið
eftir,“ segir hann.
Söfnun vestan heiðar gekk svona
upp og ofan að sögn Kristjáns og nær
ekkert fyrr en seint á laugardag og var
lokið á sunnudag.
Ekki þurfti að hella niður mjólk
vegna þessa en á sumum bæjum segir
hann að gefið hafi verið leyfi til að
dæla kældri mjólk úr heimilistanki í
vel þvegin ílát til að bjarga málum.
Aftur skall á vonskuveður um
liðna helgi en Kristján segir að hún
hafi ekki verið eins erfið þó að tafir
hafi þá líka orðið á.
Harðfylgi bílstjóranna
skipti sköpum
„Þetta voru erfiðar helgar fyrir
bílstjórana og þeir unnu myrkrana á
milli og eiga heiður skilinn fyrir að
skila allri mjólk í samlag þrátt fyrir
mannskaðaveður,“ segir Kristján og
bætir við að eðlilega sé yfirtíð mikil
þegar svona stendur á og kostnaður
aukist.
„En svona er Ísland og okkar
markmið er að ná allri mjólk og
firra þannig bændur frá skaða vegna
niðurhellingar. Það tókst vegna
harðfylgis bílstjóranna okkar og
er það vel,“ segir Kristján, sem
jafnframt vonar að óveðurshelgar í
líkingu við tvær síðastliðnar helgar
verði undantekning. /MÞÞ
Óveðurshelgar hafa sett strik í mjólkursöfnun fyrir norðan:
Mjólkurbílstjórar unnu myrkranna á milli
og náðu að skila allri mjólk í samlag
Uppfærsla á gagnagrunni:
Truflanir verða á tölvukerfi BÍ
Vegna uppfærslu á Oracle-
gagnagrunni Bændasamtaka
Íslands verður truflun á aðgengi að
tölvu kerfi samtakanna á morgun.
Vegna þessa munu öll tölvukerfi
BÍ liggja niðri í um sólarhring frá
klukkan 17.00 á föstudeginum 16.
nóvember. Áætlað er að þeirri vinnu
verði lokið milli kl. 15.00 og 17.00 á
laugardeginum 17. nóvember.
Vonast er til að notendur verði
ekki fyrir miklum truflunum af
þessum sökum.
Tölvudeild Bændasamtaka
Íslands.
Hrútaskráin 2012,2013 er
komin út og var henni dreift á
netinu í síðustu viku. Prentaða
útgáfan er á leið til bænda. Líkt
og undanfarin ár verður útgáfu
Hrútaskrárinnar fylgt eftir með
fundum um allt land, þar sem
hrútakostur sæðingastöðvanna
verður kynntur.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason,
ráðunautur BÍ , mun
mæta á alla fundina auk
sauðfjárræktarráðunauta á hverju
svæði. Á fundunum verður
ýmsum viðbótarupplýsingum um
hrútakostinn komið á framfæri
og farið verður yfir framkvæmd
sæðingastarfsins á hverju svæði
auk almennrar umfjöllunar um
ræktunarstarfið. Hér að neðan er
að finna yfirlit yfir hvar og hvenær
fundirnir fara fram. Allt áhugafólk
um sauðfjárrækt er hvatt til að
mæta á fundina.
Tímasetningar fundanna
eru eftirfarandi:
Fimmtudagur 15. nóvember
Fimmtudagur 15. nóvember
Grunnskólinn Reykhólum
Föstudagur 16. nóvember
Mánudagur 19. nóvember
Þriðjudagur 20. nóvember
Sjálfstæðissalurinn Blönduósi kl.
16.00
Þriðjudagur 20. nóvember
Reiðhöllin Svaðastöðum,
Sauðárkróki, kl. 20.00
Miðvikudagur 21. nóvember
Hótel Smyrlabjörg, Suðursveit,
Miðvikudagur 21. nóvember
Hótel Klaustur, Kirkjubæjar-
klaustri, kl. 20.00
Fimmtudagur 22. nóvember
Hótel Hvolsvöllur, Hvolsvelli,
Fimmtudagur 22. nóvember
Félagsheimilið Þingborg
kl. 20.00
Föstudagur 23. nóvember
Félagsheimilið Hlíðarbæ,
Kræklingahlíð, kl. 20.00
Laugardagur 24. nóvember
Félagsheimilið Ýdalir, Aðaldal,
Laugardagur 24. nóvember
kl. 20.00
Mánudagur 26. nóvember
Félagsheimilið Dalabúð,
Búðardal, kl. 20.00
Þriðjudagur 27. nóvember
Hótel Hérað, Egilsstöðum,
Miðvikudagur 28. nóvember
(staðsetning auglýst síðar)
Miðvikudagur 28. nóvember
Fimmtudagur 29. nóvember
Staðarborg í Breiðdal kl. 11.00
Allt áhugafólk um sauðfjárrækt
er hvatt til að mæta á fundina.
Sauðfjárræktarfundir
á næsta leiti
Í nóvember verður boðið upp
á fræðslufundi um frjósemi og
ræktun víða um land.
Á fundunum verður farið yfir
helstu niðurstöður nýs kynbótamats
í nautgriparækt og þann nautakost
sem í boði er í vetur. Einnig verður
farið yfir frjósemi nautgrip og þá
þætti sem hafa áhrif á árangur
sæðinga og frjósemi á búinu,
s.s aðstöðu til sæðinga, fóðrun,
beiðslisgreiningar og fleira. Farið
verður sérstaklega yfir mikilvægi
góðrar frjósemi fyrir sjáfbært
ræktunarstarf, sem og afkomu
búsins og hvernig nýta má kosti
NorFor-fóðuráætlanagerðar til að
bæta frjósemi á búinu.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
og Berglind Ósk Óðinsdóttir munu
sjá um erindi og að leggja fram efni
á fundunum.
Fyrsti fundurinn verður mánu-
daginn 19. nóvember, skipulag
fundanna verður eftirfarandi en
nánari upplýsingar verða auglýstar
nánar á hverju svæði fyrir sig.
Mánudagur 19. nóvember
Skaftafellssýslur
Þriðjudagur 20. nóvember kl. 12
Rangárvallasýsla
Fimmtudagur 22. nóvember kl. 12
Dalir
Föstudagur 23. nóvember kl. 12.
Húnavatnssýslur báðar
Mánudagur 26. nóvember kl. 12
Eyjafjörður
Þriðjudagur 27. nóvember kl.12
S-Þingeyjarsýsla
Miðvikudagur 28. nóvember kl. 12
Árnessýsla
Fimmtudagur 29. nóvember kl. 12
Borgarfjörður
Föstudagur 30. nóvember kl. 12
Skagafjörður
Þriðjudagur 4. desember kl. 12
Austurland
Fimmtudagur 6. desember kl. 11
Snæfellsnes
Nautgriprækt:
Fræðslufundir um
frjósemi og ræktun
Þorgeir Halldórsson, mjólkurbíl-
stjóri hjá MS Akureyri, hefur staðið
í ströngu eins og aðrir bílstjórar hjá
fyrirtækinu, en óveður síðastliðnar
á svæðinu. Hér er Þorgeir að taka
síðustu helgi.
Ekki besta árið í búskapnum segir formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar:
Nýtum okkur kosti landsins þegar vel árar en
þurfum líka að takast á við erfiðleikana
Kindurnar á Núpum í Aðaldal að viðra sig. Nú er algerlega jarðlaust fyrir
sauðfé og má búast við að gjafatími sauðfjár verði allt að mánuði lengri í
vetur en í fyrra. Þá var mjög góð tíð í nóvember og kindur úti á beit á sumum
bæjum langt fram eftir mánuðinum. Mynd / Atli Vigfússon
Mynd / Benjamín Baldursson
Sigurgeir á Hríshóli segir afar
óarðbært starf að moka snjó fyrir
sjálfan sig, því fylgi kostnaður og
hreinsa heimreiðar og hlöð við bæi
sína.