Bændablaðið - 15.11.2012, Síða 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 20126
Málgagn bænda og landsbyggðar
LOKAORÐIN
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 6.600 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.300.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is
Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
250.000 fleiri í mat, hvert kvöld
LEIÐARINN
Það er ekki ofsögum sagt að
tækifærin í matvælaframleiðslu
á Íslandi séu gríðarleg. Það var
reyndar grunntónn ráðstefnu um
Matvælalandið Íslands sem haldin
var í síðustu viku.
Þó að flestum bændum séu þessi
sannindi ljós sem og þeim sem stunda
útgerð og fiskvinnslu er ekki endilega
sömu sögu að segja af skilningi
stjórnmálamanna á þessu máli. Það
liggur fyrir að Íslendingar hafa yfir
mestu ferskvatnsbirgðum að ráða
á mann sem þekkist í heiminum.
Við höfum líka yfir að ráða meiri
möguleikum í framleiðslu á raforku
með vistvænum og endurnýjanlegum
hætti en flestar þjóðir heims. Við
höfum yfir að ráða einhverjum
gjöfulustu fiskimiðum heims. Þá
eigum við nær óendanlega möguleika
í frekari þróun matvælaframleiðslu á
sama tíma og heimsbyggðin kallar
á tvöföldun matvælaframleiðslu á
næstu áratugum. Þá er líka tæknilega
vel mögulegt að framleiða alla þá olíu
og aðra orkugjafa sem við þurfum hér
á landi með vistvænum hætti. Maður
spyr sig, býr nokkur þjóð betur?
Því er meira en lítið undarlegt að
hér á landi hafi minnihlutahópur náð
því í krafti ríkisstjórnarsetu síðustu
fjögur árin að leiða baráttu fyrir því að
öllum þessum verðmætum verði komið
undir stjórn Evrópusambandsins.
Þó að fólk sem er blindað af
glimmerglysinu í Brussel sjái ekki þá
gríðarlegu möguleika sem Íslendingar
eiga við að búa hafa útlendingar komið
auga á það. Frægar eru deilurnar við
kínverska kaupsýslumanninn út af
kaupum og síðan mögulegri leigu á
Grímsstöðum á Fjöllum.
Kínverjar hafa fyrir löngu séð
möguleikana sem hér er að hafa.
Þeir horfa þar líka til þess að geta
nýtt Ísland sem bækistöð fyrir afar
umfangsmikla námuvinnslu sem er í
uppsiglingu á Grænlandi.
Nú hefur Howard Graham Buffet,
elsti sonur hins heimsþekkta stór-
eigna manns Warren Buffet, sem af
mörgum er talinn farsælasti fjárfestir
21. aldarinnar, einnig uppgötvað
stórkostlega möguleika Íslands. Í
það minnsta var það ekki áhuginn á
fullveldisafsali Íslands til ESB sem rak
hann til að skrölta á einkaþotu sinni
hingað til lands í síðustu viku. Hann
sér möguleikana í kornrækt hér á landi
og hefur hug á að fjárfesta í landi og
það engum smábleðlum. Hann skilur
vel hugtakið fæðuöryggi og veit að
korn mun stíga hratt í verði á komandi
misserum. Þá getur eignarhald á
kornökrum og gott aðgengi að orku
verið eins og að hafa gullgerðarvél í
bakgarðinum. Þarf virkilega útlendinga
til að benda okkur á þetta? /HKr.
Batnandi lífskjör milljóna
manna og stöðug fólksfjölgun er
mikil áskorun fyrir landbúnað
um allan heim. Auka þarf
matvælaframleiðslu á næstu
áratugum svo um munar. Fleiri
og fleiri hafa efni á að kaupa kjöt
eða mjólk í stað þess að neyta nær
einungis kornvöru. Gleymum því
heldur ekki að sóun matar er
jafnframt mikil og mikið óunnið
við að nýta hann betur.
Milljónir heimila í Kína,
Indlandi, Brasilíu og fleiri
fjölmennum löndum munu á
næstu árum kaupa mat sem kostar
bæði meira land og meira vatn
að framleiða. Breytingarnar eru
stórkostlegar og ágangur á auðlindir
í heiminum er mikill. Heimurinn á
enn mikið af ónýttum ræktarlöndum
en þau eru ekki ótakmörkuð.
Hafsvæðin eru víða gjörnýtt en möguleikar tengdir
fiskeldi miklir. Vatn er af skornum skammti en nú
eru á fjórða tug þjóðríkja ekki sjálfbær með vatn.
Verð á matvælum heimsmarkaðarins hefur
hækkað verulega samkvæmt tölum FAO. Þannig
er fortíðin en spár um framtíðina eru jafnvel enn
dekkri um þróun næstu 10 ára. Ekki aðeins að
fólksfjölgun og aukin velmegun séu drifkraftar,
heldur er verið að nýta korn, sykur og annan
jarðargróða til að framleiða eldsneyti. Orkuverð
og matarverð eru nátengdar stærðir. Hækkandi
olíuverð þýðir ekki síður hækkandi matarverð.
Hvernig á að bregðast við?
Ef rýnt er í spár þá er enginn sem fjallar um
afturhvarf til fyrri tíma. Auðvitað verða verðsveiflur
tengdar ástandi efnahagsmála en fyrst og fremst
eru þær háðar sveiflum náttúrunnar. Veðurfar
hefur þar mikið að segja og áhrif þurrka, kulda
eða úrkomu geta skorið úr um örlög heilla þjóða.
Þjóðríki verða að hugsa um fæðuöryggi sitt en það
er grundvallaröryggismál hverrar þjóðar.
5-10% af mat eru heimsmarkaðsvara
En er maturinn til? Matur hefur verið viðskiptavara
í langan tíma. Birgðir matvæla og jafnvel
væntingar um uppskeru hafa verið boðnar til kaups
á fjármálamörkuðum. Matur er hins vegar ekki
stöðug vara eins og iðnaðarvara og því eru sveiflur
í verði gríðarmiklar. Lítil umframeftirspurn hækkar
verð verulega, lítil umframframleiðsla getur að
sama skapi lækkað verð á mörkuðum langt undir
hefðbundna sveiflu. Þannig hefur matur aldrei og
getur aldrei orðið að hreinni markaðsvöru hins
frjálsa og opna heimsmarkaðar, vegna sveiflu í
náttúru og vegna öryggissjónarmiða þjóða. Þetta er
grundvöllur þess að ríki styðja og verja landbúnað
sinn. Ekki skal haldið fram hér að tölur um birgðir
matvæla séu rangar, en þegar þær eru rýndar eru
þær hættulega litlar. Síðan er spurt hvort þær séu
raunverulegar. 5-10% af öllum mat
í heiminum eru í raun á markaði.
Því er um 95% af öllum mat sem
framleiddur er neytt innan ríkja.
Innlend matvælaframleiðsla
er grunnstoð samfélagsins
Fyrir Ísland, sem eyríki, er innlend
matvælaframleiðsla grunnstoð
samfélagsins. Í breyttum heimi
eru líka tækifæri. Ísland á einstaka
möguleika og okkar er að nýta
þá. Til að hefja umræðu um þau
tækifæri verður að vera ljóst að
horfa þarf mjög langt fram í tímann.
Stundarfyrirbæri eða skyndilausnir
duga ekki. Margt hefur verið nefnt í
umræðu um möguleika okkar. Hins
vegar vill brenna við að menn sjá
ekki skóginn fyrir trjánum, svo
sem að nauðsynlegt sé að breyta
núverandi kerfi með þeim hætti að best sé að breyta
stuðningi sem nú fer til framleiðslu á mjólk og kjöti
og færa til annarra þátta. Að taka af einum til að
veita öðrum. Að ekki eigi að horfa til endanlegrar
afurða við stuðning og formgera hann sem stuðning
á land. Þetta kemur allt til greina en samt skal
varað hér við reynslu af slíkum tilraunum sem við
þekkjum vel innan ESB, þar sem framleiðsla hefur
nánast horfið á ákveðnum landsvæðum.
Öll stefnumótum á að einblína á hag bóndans
og neytanda sem á endanum greiðir fyrir vöruna.
Kerfi sem horfir til stuðnings á land óháð afurð
hækkar landverð og veikir frumframleiðendur.
Engar töfralausnir eru til.
En við getum undirbúið okkur og það höfum
við gert, m.a. í nýjum búnaðarlagasamningi sem
markar stefnubreytingu. Fyrst og fremst þurfum
við sterka umgjörð, framsýna löggjöf og traustara
starfsumhverfi en við búum við nú. Eigum við ekki
að byrja á því?
/HB
Tækifærin eru okkar
Ferðaþjónustan í Vogafjósi við
Mývatn er bær mánaðarins í
nóvember að mati starfsfólks
skrifstofu Ferðaþjónustu bænda.
Vogafjósið hefur vaxið og dafnað
allt frá því að fjölskyldan að
Vogum fór fyrst að bjóða gestum
að skoða fjósið.
Jörðin er búin að vera í eigu sömu
fjölskyldunnar kynslóð eftir kynslóð
í um 120 ár. Í dag rekur fjölskyldan
gistiheimili með 26 vel útbúnum
herbergjum með baði, veitingahús
og sveitaverslun í fallegu umhverfi
við Mývatn.
Rekstraraðilarnir, þau Ólöf
Þ. Hallgrímsdóttir, Jón Reynir
Sigurjónsson, Leifur Hallgrímsson
og Gunnhildur Stefánsdóttir,
leggja mikinn metnað í reksturinn
og vanda til verka, hvort sem um
er að ræða þjónustu við gesti eða
við matargerð. Fallegt umhverfið
með sína fjölbreyttu möguleika til
afþreyingar hjálpar þar einnig til.
Þetta hefur skilað sér í ánægðum
gestum eins og umsagnir þeirra gefa
til kynna.
Vogafjós hefur frá upphafi lagt
áherslu á tengingu við landbúnað í
sinni starfsemi. Mikill metnaður er
lagður í matargerð, en bærinn er einn
af frumkvöðlum Beint frá býli, félags
heimavinnsluaðila.
Veitingastaðurinn er einstaklega
vel staðsettur með útsýni yfir vatnið
og þar er einnig sveitaverslun þar
sem hægt er að kaupa afurðir búsins
auk handverks og taka með sér heim.
„Þegar við ákváðum að halda
áfram að framleiða mjólk á bænum
fengum við hugmyndina um að opna
fjósið og fara út í ferðaþjónustu.
Sum borðin á veitingastaðnum eru
við glugga inn í fjósið og gestum
okkar býðst þannig að fylgjast með
þegar við mjólkum kýrnar daglega
kl. 7.30 og 17.30. Það er líka hægt að
fá að smakka spenvolga mjólk beint
úr kúnum, sem vekur gjarnan lukku
hjá yngri kynslóðinni,“ segir Ólöf Þ.
Hallgrímsdóttir, gestgjafi í Vogafjósi.
„Okkur finnst gaman að geta
boðið fólki að njóta veitinga frá
býlinu. Hér er hægt að gæða sér á
ýmsum heimagerðum og lífrænum
afurðum sem við vinnum hér á
bænum, eins og reyktum silungi,
hverabrauði, tvíreyktu hangikjöti
og ostum. Okkur finnst mikilvægt
að fólk viti hvaðan maturinn kemur
og hvað í honum er.“
Aðventudvöl í nóvember
og desember
Vogafjós býður upp á sérstaka
aðventu dvöl í nóvember og
desember.
„Þá förum við í jólabúning og
gestum gefst tækifæri á að eiga góðar
stundir hér í sveitinni, heimsækja
Jarðböðin og Fuglasafn Sigurgeirs,
baða sig í Grjótagjá og síðast en
ekki síst heimsækja jólasveinana í
Dimmuborgum. Mataráherslan er
ekki síður sterk í kringum þennan
viðburð en hinn 17. nóvember í
ár þegar við munum bjóða upp á
kaffihlaðborð í tengslum við heimboð
jólasveinanna og svo verðum við
með sérstakan árbít helgina 8.-9.
desember þar sem mývetnskar krásir
beint frá býli verða á boðstólum,“
segir Ólöf að lokum.
Val á bæ mánaðarins byggist á
umsögnum gesta og mati starfsfólks
skrifstofu Ferðaþjónustu bænda. Sjá
nánar á
http://www.sveit.is/baeir/baer_
manadarins
Vogafjós er bær mánaðarins í nóvember
BÆR MÁNAÐARINS – NÓVEMBER 2012
Vannæring fer vaxandi í heiminum samkvæmt tölum FAO og auka þarf matvæla-
framleiðslu verulega á komandi árum til að metta vaxandi íbúafjölda jarðarinnar.