Bændablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 20128
Fréttir
Grísakjötskafli Kjötbókarinnar var
formlega opnaður í vikunni í Hótel-
og matvælaskólanum í Kópavogi,
en við það tækifæri fengu nemendur
og kennarar við skólann kynningu
á bókinni. Kjötbókin er gefin út á
rafrænu formi og er hún aðgengileg
án endurgjalds á slóðinni www.
kjotbokin.is. Nú á einungis
eftir að klára fuglakjötskaflann
en fyrir var búið að opna
lambakjötskafla, hrossakjötskafla
og nautakjötskaflann. Matís
stendur að útgáfu Kjötbókarinnar
en búgreinafélögin hafa veitt styrki
til vinnslu hennar.
Í Kjötbókinni geta notendur
fundið yfirgripsmiklar upplýsingar
um kjöt, t.d. ólíka skrokkhluta,
heiti á bitum og skurðum og ekki
síst vandaðar ljósmyndir. Þá
eru tenglar á ýmsar uppskriftir,
rannsóknaskýrslur og annan
fróðleik sem tengist kjöti. Kosturinn
við rafbókarformið er einkum sá
að auðvelt er að uppfæra efnið og
bæta við nýjum upplýsingum eftir
því sem tímar líða.
Kúabú í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi eru nú 28 talsins.
Meðalkúabúið í hreppnum hefur
greiðslumark (framleiðslurétt)
nálægt 244.000 lítrum. Meðalstærð
kúabús á landsvísu telur um
185.000 lítra.
Heildarmagn innveginnar
mjólkur úr hreppnum nam hins vegar
um 7.371.000 lítrum árið 2011 og
hefur það aukist jafnt og þétt hin
síðari ár. Það nemur tæplega 6%
af allri innveginni mjólk í landinu.
Meðalkúabúið í sveitarfélaginu
leggur því inn um 263.000 lítra
mjólkur.
„Já, það er rétt, Skeiða- og
Gnúpverjahreppur státar af því að vera
stærsti mjólkurframleiðsluhreppur á
Suðurlandi, við erum að sjálfsögðu
mjög stolt af því,“ sagði Kristófer
Tómasson sveitarstjóri. /MHH
Mjólkurframleiðsluhreppurinn
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Kjötbókin vex og dafnar
Halldór Runólfsson skipaður skrifstofustjóri afurða
Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir
hjá Matvælastofnun, hefur verið
skipaður skrifstofu stjóri afurða
í atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytinu, að því er kemur fram
í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Halldór var valinn úr hópi 23
umsækjenda í stöðu skrifstofustjóra
afurða. Meðal verkefna sem
skrifstofan sinnir eru búvöru-
framleiðsla, matvælaframleiðsla
og matvælaöryggi, fæðuöryggi,
dýra- og plöntusjúkdómar, inn-
og útflutningur matvæla, lífræn
framleiðsla og dýravelferð.
Halldór hefur gegnt stöðu
yfirdýralæknis síðustu 15 ár en áður
starfaði hann
hjá Hollustu-
vernd ríkisins.
Í samtali við
Bændablaðið
sagðist Hall-
dór spenntur
fyrir því
að takast á
við nýjar
áskoranir í
starfi en hann gerði ráð fyrir því að
það yrði ekki fyrr en færi að halla
að áramótum sem hann tæki að
fullu við starfinu. Enn væri eftir að
hnýta lausa enda í starfi hans sem
yfirdýralæknir.
Hópur fagmanna var saman kominn í Hótel- og matvælaskólanum þegar
Mynd / TB
Í síðustu viku var stofnandi
Howard G. Buffet sjóðsins á
ferðinni hér á landi ásamt tveggja
manna föruneyti. Hann heitir
fullu nafni Howard Graham
Buffet og er elsti sonur hins
heimsþekkta stóreignamanns
Warren Buffet, sem af mörgum
er talinn farsælasti fjárfestir 21.
aldarinnar. Sjóðurinn vinnur að
mannúðar málum víða um heim
og hefur m.a. þau markmið
að efla ræktun og matvæla-
framleiðslu á harðbýlum svæðum,
í stríðshrjáðum löndum og þar
sem fátækt er mikil. Tilgangur
fararinnar til Íslands var að
kynna sér landbúnað og mögu-
leika í jarðrækt og hvaða áhrif
loftslagsbreytingarnar munu hafa
hér á norðurslóðum.
Aðdragandi heimsóknarinnar
var ekki langur og til að mynda var
haft samband við Bændasamtökin
samdægurs og beðið um fulltrúa til
að snæða kvöldverð með Buffet.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson,
landnýtingar ráðunautur BÍ, hitti
Buffet og fylgdarfólk hans, grunlaus
um hvaða fyrirmenni þarna voru á
ferðinni.
„Fólkið sem ég hitti var að
ljúka vikuferð um heiminn og
hafði áður verið í Suður-Ameríku,
Afríku og Grikklandi. Meðal
annars höfðu þau heimsótt búgarða
sem sjóðurinn styrkir, en Howard
Buffet er með starfsemi víða um
heim. Hingað komu þau frá Aþenu
á einkaþotu en áætlað var að fara
síðan til Grænlands að skoða ísbirni
og ljúka ferðinni í Ameríku. Hér
voru þau innan við tvo sólarhringa
en voru nýkomin úr þyrluferð um
hálendið þegar ég hitti þau,“ sagði
Ólafur.
Er hægt að rækta maís á Íslandi?
Ólafur segir að tilgangur ferðarinnar
til Íslands hafi verið að meta áhrif
loftslagsbreytinga á norðurslóðum
og kynna sér góðar og slæmar
afleiðingar þeirra. „Þau hafa verið
að meta ástandið á jaðarsvæðum
þar sem eru miklir þurrkar, en
hér norður frá voru þau að velta
fyrir sér ræktunarmöguleikum
við köld skilyrði. Howard hafði
ekki komið hingað áður, en hann
hafði þær hugmyndir að hér færi
veðurfar hlýnandi þannig að hægt
væri að rækta meira en gert er í
dag. Mestan áhuga höfðu þau á
kornrækt, sérstaklega maís, en hann
vildi fá upplýsingar um ræktunina
hjá okkur. Ég sagði honum frá því
hvernig kornræktin hefði þróast
hér í gegnum tíðina og hvaða
korntegundir við værum með.
Maísræktin var prófuð hér fyrir
nokkrum árum en uppskeran var
rýr vegna stutts vaxtartíma. Howard
fannst það athyglisvert og ögrandi
og langaði til að skoða betur hvort
hægt væri að finna maísafbrigði sem
gæti þrifist hérlendis.“
Hvetur til aukinnar
matvælaframleiðslu
Ólafur sagði að áhugi Howard Buffet
á fæðuöryggismálum væri mikill.
„Hann lagði áherslu á það í sínu máli
að þjóðir heimsins drægju alls ekki úr
matvælaframleiðslu. Það væri mikil
þörf á mat og allar þjóðir ættu að huga
að aukinni framleiðslu.“ Ólafur sagði
jafnframt frá því þegar hrunið varð hér
á Íslandi og uppi varð fótur og fit þegar
ekki var hægt að ábyrgjast kornfarm
sem var á leiðinni til landsins vegna
gjaldeyrisskorts. „Þarna fundum við
fyrir því hvað það þýðir að búa á eyju.
Á þessu höfðu þau mikinn áhuga og
sögðu það ekki einungis vera plágur
og þurrka sem ógnuðu fæðuörygginu
heldur líka ótryggt efnahagsástand.“
Buffet spurði töluvert um jarðveg
hér á Íslandi og Ólafur fór yfir það
með honum. „Hann er fyrst og fremst
bóndi og hefur heilmikla þekkingu á
búskap. Hann virtist t.d. gera sér góða
grein fyrir því að jarðvegur hér á landi
væri mjög breytilegur.“
Skyldi vaka fyrir Howard G. Buffet að
eignast land á Íslandi?
„Howard tók það skýrt fram að þar
sem hann væri að rækta vildi hann
nota gott ræktunarland. Hann sagðist
geta hugsað sér að koma til Íslands og
taka á leigu eða kaupa jafnvel land til
að prófa sig áfram við maísræktina og
hafa samstarf við innlenda bændur.
Hann spurði hvernig það væri að
kaupa land hérna en ég sagði honum
að það væru ýmsar hömlur á því. Hins
vegar væri hægt að gera vissa hluti
ef það væri í samræmi við skipulag
í sveitarfélögum. Ég benti honum
líka á að hér á landi væri mönnum
umhugað um umhverfismál og það
væri t.d. mikill áhugi á að vernda
votlendissvæði, sem hann hafði fullan
skilning á. Niðurstaðan var eiginlega sú
að hann hafði áhuga á að kanna hvað
væri til af harðgerðum maísafbrigðum
sem gætu hugsanlega hentað við köld
skilyrði áður en lengra yrði haldið. Ég
minntist raunar á það að fyrir 40 árum
hefði maísrækt verið nær óþekkt á
Bretlandseyjum en þar hefðu skilyrðin
batnað síðustu áratugi. Þar er nú
framleitt töluvert af maís,“ sagði Ólafur,
sem hvatti Buffet til þess að koma
hingað að sumarlagi og skoða aðstæður.
„Hann spurði hvort Bændasamtökin
gætu útvegað sér sambönd við menn
sem væru að sinna jarðræktarmálum
og sagði ég það velkomið. Hann
var ekkert endilega á því að fara í
samstarf við háskólastofnanir heldur
vildi hann sjálfur og hans fólk sjá
um tilraunastarfið. Markmiðið væri
hins vegar að auka þróunarstarf og
auka fæðuframleiðslu og gera hana
öruggari.“
Er fyrst og fremst bóndi
„Ég vissi ekkert um manninn áður en
ég kom til fundarins. Þegar ég sat við
borðið við hlið hans fannst mér hann
vera bóndi – stórbóndi sem stofnunin
hlyti að hafa boðið í þetta ferðalag. Ég
skynjaði hann alls ekki sem yfirmann
hópsins,“ sagði Ólafur. „Ég áttaði mig
ekki á því fyrr en morguninn eftir að
bóndinn sem ég var að ræða við var
mjög vel stæður og mér er það til efs að
ég eigi eftir að snæða með jafnríkum
manni. Ef ég verð einhverntíman
spurður um það hvað við borðuðum þá
er þetta svarið: Ég fékk mér þorsk og
kartöflur en hann fékk sér hamborgara!
Howard G. Buffet hitti einnig Árna
Snorrason, forstjóra Veðurstofu
Íslands, en þeirra fundur snerist
um loftslagsmál. Að sögn Árna
ræddu þau um áhrif hlýnunar og
loftslagsbreytinga á norðurslóðir,
m.a. á breytingar á gróðurfari og
vistkerfum. /TB
Howard G. Buffet sjóðurinn
vinnur á heimsvísu við að treysta
fæðuöryggi. Buffet, sem er stofnandi
sjóðsins og formaður, starfrækir
þrjú tilraunabú í Illinois, Arizona
og í Suður-Afríku. Hann rekur líka
eigin bú í Illinois og Nebraska þar
sem hann ræktar m.a. sojabaunir,
maís og hveiti. Sjóðurinn styrkir
landbúnaðarverkefni sem stuðla að
framþróun til þess að mæta vaxandi
þörf fyrir matvæli. Lögð er áhersla
á að vernda jarðveg og næringarefni
hans auk þess að nýta vatn með
skynsamlegum hætti. Þegar Buffet
stofnaði sjóðinn vann hann mest að
náttúruverndunarmálum en hefur nú
lagt meiri áherslu á aukna ræktun
og möguleika við að brauðfæða
heimsbyggðina í framtíðinni.
Áhugi hans á Íslandi byggist á því
að kanna hvort hlýnandi veðurfar á
norðurslóðum geti leitt til aukinnar
og fjölbreyttari ræktunarmenningar.
Howard G. Buffet er einn af
„sendiherrum gegn hungri“ hjá
Sameinuðu þjóðunum og hefur í
gegnum starf sitt hjá sjóðnum styrkt
bændur til góðra verka í Gvatemala,
El Salvador, Níkaragva og víðar.
Hann hefur einnig talað fyrir því að
þjóðir hugi að jarðveginum sjálfum,
næringarbúskap og verðmæti hans í
stað þess að leggja höfuðáherslu á
áburðargjöf og nýjar nytjajurtir.
Auk þess að starfa að mannúðar-
málum og rekstri sjóðsins hefur
Buffet skrifað bækur um fæðuöryggi,
náttúruvernd og mannúðarmál, tekið
mikið af ljósmyndum og ferðast um
allan heim. Þá situr hann í stjórnum
ýmissa fyrirtækja, en Coca Cola er
líklega þeirra þekktast. Fyrir nokkru
tilkynnti faðir hans, Warren Buffet,
að „Howie“ myndi taka við sæti hans
í Berkshire Hathaway, fyrirtækinu
sem heldur utan um fjárfestingar
Buffet-veldisins. Hlutverk Howards
yrði fyrst og fremst að viðhalda
íhaldssamri stefnu fyrirtækisins eftir
hans dag.
Sonur Warren Buffet kynnir sér loftslagsmál og íslenskan landbúnað:
Getur hugsað sér að kaupa land á Íslandi
-
Mynd / Utanríkisráðuneyti BNA
Mynd / TB
Mynd / SIU.edu