Bændablaðið - 15.11.2012, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201214
Landshlutaverkefnin í skógrækt
voru í byrjun september flutt undir
umhverfis- og auðlindaráðuneyti í
kjölfar breytinga í stjórnarráðinu.
Nú á haustdögum hefur ráðherra
heimsótt verkefnin til að kynna sér
starfsemi þeirra.
Undir lok október var komið
að Norðurlands skógum, en þá
heimsótti Svandís Svavarsdóttir,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
starfsmenn NLS í Gömlu gróðrar-
stöðinni á Akureyri. Henni
til fylgdar voru þeir Jón Geir
Pétursson sérfræðingur og Andrés
Ingi Jónsson, aðstoðarmaður
ráðherra. Starfsfólk og stjórn
Norðurlands skóga kynnti stöðu
verk efnisins í dag, hvernig vinnu-
ferlið væri við gerð skógræktar -
áætlana og það úttektar kerfi sem
notað væri til að fylgjast með lifun
í nýgróðursetningum. Gagnlegar
umræður spunnust í kjölfarið um
skipulagsmál og landnýtingu.
Í kaffihlé var farið í göngu
umhverfis Gömlu gróðrarstöðina og
Hallgrímur Indriðason hjá Skógrækt
ríkisins kynnti sögu hússins og
svæðis ins ásamt hugmyndum um
framtíðar skipulag þess. Heimsóknin
tókst í alla staði vel og voru menn
sammála um mikilvægi slíkra
heimsókna þar sem tækifæri gefst
til að ræða málin og skiptast á
hugmyndum og skoðunum. /MÞÞ
Umhverfisráðherra í heimsókn
hjá Norðurlandsskógum
Gestir og heimamenn í garði Gömlu gróðrarstöðvarinnar. Talið frá vin-
stri: Andrés Ingi Jónsson, aðstoðarmaður ráðherra, Jón Geir Pétursson
sérfræðingur, Valgerður Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurlands skóga,
Skógrækt ríkisins og Bergsveinn Þórsson hjá Norðurlandsskógum.
Gluggar
PVC
Suðurlandsbraut 24, 2h. S. 533 4010 rek@rek.is
Samgönguminjasafn Skagafjarðar
hlaut 2,3 milljónir króna styrk
frá Menningarráði Norðurlands
vestra, sem úthlutaði á dögunum
stofn- og rekstrarstyrkjum fyrir
árið 2012. Alls fengu átta aðilar
styrki að þessu sinni, samtals að
upphæð 10,3 milljónir króna, en
umsóknir bárust frá 17 aðilum
og var óskað eftir rúmum 30
milljónum króna.
Samgönguminjasafnið fékk
hæsta styrkinn að þessu sinni, 2,3
milljónir króna, en Spákonuhof á
Skagaströnd hlaut 2 milljónir, sem
og Selasetur Íslands á Hvammstanga.
Þá fékk Textílsetur Íslands á
Blönduósi 1,5 milljónir króna og
Kakalaskáli í Skagafirði 1 milljón.
Þrjú verkefni hlutu 500 þúsund
krónur; Grettistak ses í Húnaþingi
vestra, Félag áhugamanna um
uppbyggingu Riishúss á Borðeyri
og Nes listamiðstöð á Skagaströnd.
Menningarráð Norðurlands vestra
skipa sveitarfélögin á Norðurlandi
vestra, en á starfssvæði þessu eru
sjö sveitarfélög; Akrahreppur,
Blönduósbær, Húnaþing vestra,
Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið
Skagaströnd, Skagabyggð og
Sveitarfélagið Skagafjörður.
Fram kemur á heimasíðu Samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra að
Menningarráð sé samstarfsvettvangur
sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra fyrir menningarmál og hafi
meðal annars það hlutverk að
standa fyrir öflugu þróunarstarfi í
menningarmálum, úthluta fjármagni
til menningarverkefna á Norðurlandi
vestra samkvæmt ákvæðum
samningsins og hafa eftirlit með
framkvæmd hans.
Samgönguminjasafnið
fékk hæsta styrkinn
Farið verður yfir allar bótakröfur
Síðastliðinn föstudag opnaði
félagsskapurinn Beint frá býli
markað í Borgarnesi með yfir-
skriftinni Beint frá býli – Matur
& handverk. Markaðurinn verð-
ur opinn í vetur; á föstudögum
frá 13 til 19 og á laugardögum frá
12 til 16. Í desember er fyrirhugað
að hafa einnig opið á sunnudög-
um frá 12 til 16. Markaðurinn er
til húsa á Brúartorgi – við hliðina
á Framköllunarþjónustunni.
Rósa Hlín Sigfúsdóttir,
handverks kona í Borgarnesi með
meiru, er í hópi þeirra sem standa
að markaðnum. „Við höfum fengið
frábærar viðtökur. Mjög margir
komu fyrstu helgina og versluðu
við okkur og við fundum fyrir
mikilli jákvæðni gagn vart þessu.
Það er greinilegt á við brögðunum
að svona markað hefur vantað í
okkar byggðarlag. Við erum tíu
sem stöndum að þessu og komum
úr ýmsum áttum. Nokkrir eru í
félaginu Beint frá býli, enda er
helmingurinn af þessum tíu úr
sveitunum hér í kring. Við leigjum
líka út pláss gegn vægu gjaldi og
gefum þannig fleirum kost á að
slást í hópinn.“
Heklaðar nýburahúfur og
broddur
Rósa segir að á markaðnum kenni
ýmissa grasa. „Fyrstu helgina var
æði margt í boði, bæði af handverki
og eins af matvöru: Af handverki
voru til að mynda margar tegundir
af tækifæris kortum, heklaðar seríur,
heklaðir skartgripir, kerti, útsaumað
handklæði, heklaðar nýburahúfur,
ýmsar glervörur, silfurskart og skart
úr hraunmolum, glervörur, munn-
þurrkutöskur, glerlampar með
lopapeysumunstri, mikið úrval af
lopavörum, bæði venjulegum og
þæfðum, eins og t.d. sokkar, vett-
lingar, bjórvettlingar, húfur, barm-
merki, lyklakippur, sápupokar, vín-
flöskupokar, hitaplattar, töskur og
margt fleira.
Af matvöru má nefna úrval af
nautakjöti, ostar, skyr, broddur, ís,
sultur, marineruð síld, þurrkaðir
sveppir, hvítlauksduft og sleikjóar.
Þá var þarna að finna smyrsli og
tinktúrur.“
Auk Rósu Hlínar er markaðs-
fólkið í Borgarnesi eftirfarandi:
Hanna Sigga frá Mýrarnauti (nauta-
kjöt, hakk og steikur), Helga frá
Rjómabúinu Erpsstöðum (ostar,
skyr, ís og fleira góðgæti), Agnes
á Hundastapa (svínakjöt, heima-
lagaðar sultur, kerti og ullarvörur),
Anna Dröfn frá Kvíaholti (brjóst-
sykursgerð), Júlía frá Hvanneyri
(ullarvörur; t.d. þæft smokkahulstur
undir lykla og skraut í barminn),
María Þórarins Borgarnesi (tæki-
færiskort og prjónavörur), Kristín
Ólafs úr Borgarnesi (lampar úr
öryggisgleri með lopapeysum-
unstri), Gígí Jóns úr Borgarnesi
(ullarvörur; t.d. hulstur utan um
munnþurrkur og töskur úr þæfðri
ull), Eygló Harðar úr Borgarnesi
(handverk úr gleri og hraunmolum)
og Rósa Hlín úr Borgarnesi (heklar
skartgripi og býr til smyrsli og
tinktúrur).
Markaðurinn er kominn með
Facebook-síðu þar sem fleiri
myndir og frekari upplýsingar er að
finna: http://www.facebook.com/
beintfrabylimaturoghandverk.
/smh
Beint frá býli markaður í Borgarnesi
Fjölbreytt úrval handverks og matvöru
Anna Dröfn frá Kvíaholti með brjóstsykurinn sinn.
Líklegt þykir að tjón sem varð
á raftækjum á heimilum í
Suður-Þingeyjarsýslu vegna
rafmagnstruflana í óveðri í byrjun
nóvember hlaupi á milljónum.
Orkufyrirtækin hafa unnið að því
að undanförnu að upplýsa hvað
olli tímabundinni spennuhækkun
á afmörkuðu svæði í sýslunni í
kjölfar staðbundinnar truflunar í
raforkukerfinu og liggur fyrir að
hana megi meðal annars rekja til
mistaka í viðbrögðum, segir í frétt
á vefsíðu RARIK.
Þar kemur einnig fram að þó ekki
liggi enn endanlega fyrir hjá hverjum
bótaskyldan hvílar sé það mat
orkufyrirtækjanna að um sé að ræða
tjón sem greiða beri bætur fyrir að
uppfylltum skilyrðum þar að lútandi.
Fyrirtækin hafa komið sér saman um
að fela tryggingarfélögum sínum
að yfirfara allar bótakröfur vegna
atviksins og skera úr um bótaskyldu.
Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir
tjóni af völdum spennuhækkunarinnar
eru hvattir til að skila inn skriflegum
tjónaskýrslum á skrifstofu RARIK að
Óseyri 9, Akureyri.
Á vefsíðunni 641.is segir meðal
annars frá því að stór þvottavél hafi
eyðilagst í Stórutjarnaskóla, en hún
kosti nokkur hundruð þúsund krónur.
Að auki hafi símkerfið í skólanum
bilað og fleira gefið sig. Þá eru
nefndir straumbreytar, tölvuskjáir,
tölvur, uppþvottavélar, þvottavélar,
helluborð, loftræstiviftur í fjósum,
mjaltakerfi í að minnsta kosti einu
fjósi bilaði og rafmagnsstýringar fyrir
hin ýmsu tæki og tól skemmdust eða
eru hreinlega ónýt eftir rafmagns-
truflanirnar.
Dýr vinnslutæki hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa á Laugum í
Reykjadal skemmdust og eru sum
ónýt. Vinnsla lá niðri af þeim sökum
um tíma.
Fréttir
Valgerður Jónsdóttir og Svandís
Svavarsdóttir.