Bændablaðið - 15.11.2012, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Nær 1.800 bæir og stór landsvæði eru
án möguleika á þriggja fasa rafmagni
Alls eru 1.762 bæir á landinu
án aðgengis að þriggja fasa raf-
magni að því er fram kemur í
svari Steingríms J. Sigfússonar,
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðherra, við fyrirspurn Einars
K. Guðfinns sonar alþingis manns
um þriggja fasa rafmagn. Flestir
þessara bæja eru lögbýli. Í svarinu
kemur einnig fram að fjöl mörg
land svæði og jafnvel heilu sveitar-
félögin eru án þriggja fasa raf-
magns, sem er oft hemill á frek-
ari uppbyggingar á viðkomandi
svæðum.
Flestir bæirnir sem eru án þriggja
fasa rafmagns eru á veitusvæði
RARIK eða 1.639 og 123 bæir eru
á veitusvæði Orkubús Vestfjarða.
Hjá RARIK eru bæir skilgreindir
sem lögbýli þar sem er búseta, þó
ekki endilega búrekstur, en í svörum
Orkubús Vestfjarða er um lögbýli í
ábúð að ræða. Á veitusvæði Orkubús
Vestfjarða eru einnig bæir án þriggja
fasa rafmagns, sem ekki teljast til
lögbýla en þar sem rekin er atvinnu-
starfsemi, svo sem ferðaþjónusta.
Stór landsvæði á veitusvæðum
RARIK og Orkubús Vestfjarða eru
einnig að öllu eða miklu leyti án
aðgengis að þriggja fasa rafmagni.
Allir á veitusvæði OR eiga kost
á þriggja fasa rafmagni
Öðru vísi horfir við á dreifiveitu-
svæði Orkuveitu Reykjavíkur.
Dreifbýlis svæði OR er á Kjalarnesi, í
Mosfellsdal og Miðdal. Á því svæði
geta allir sem þess óska fengið teng-
ingu við þriggja fasa rafmagn, en
háspennt rafdreifikerfi Orkuveitu
Reykjavíkur á dreifbýlissvæði er
byggt upp sem þriggja fasa rafdreifi-
kerfi. Meiri hluti lögbýla á svæðinu
er tengdur þriggja fasa rafmagni.
Þrífösun um allt land kostar
17,5 milljarða
Í fyrirspurn Einars Kristins til ráð-
herra var einnig spurt hvort lagt hafi
verið mat á kostnaðinn við að koma
á þriggja fasa rafmagni þar sem það
er ekki núna. Í svari ráðherra segir:
„RARIK áætlar að kostnaður
við þrífösun á dreifiveitusvæði
fyrirtækis ins sé um 15 milljarðar
króna. Þar er um að ræða endur-
nýjun eins fasa loftlína með þriggja
fasa jarðstreng ásamt notendaspenni-
stöðvum.
Orkubú Vestfjarða telur að
gróflega áætlað sé kostnaður við að
tryggja öllum aðgang að þriggja fasa
rafmagni á dreifiveitusvæði fyrir-
tækisins, eins og það er uppbyggt í
dag, um 2,5 milljarðar króna.“
Elstu línunum skipt út fyrst
Einar spurði einnig hvort áætlanir
lægju fyrir um hvernig staðið yrði
að því að tryggja aðgengi að þriggja
fasa rafmagni. Í svari ráðherra segir:
„Frá árinu 1995 hefur RARIK
unnið að endurnýjun loftlínukerfis-
ins með þriggja fasa jarðstrengjum.
Byrjað var á elstu línunum og
þeim sem útsettastar voru fyrir
ísingu. Fram til ársins 2020 hafa
forgang línur byggðar árin 1955-
1965 í framhaldi af gerð fyrstu 10
ára sveitastyrkingar áætlunarinnar,
en þá var lögð áhersla á þéttbýlli
héruð landsins. Strjálbýlustu
sveitirnar voru rafvæddar síðast.
Línur þar eru yngstar og verða því
endurnýjaðar síðast samkvæmt
núverandi framkvæmdaáætlun fyrir
árin 2013-2035.
Í árslok 2035 er áætlað að streng-
væðingunni verði lokið og öllum
notendum þar með tryggður aðgang-
ur að þriggja fasa rafmagni.
Orkubú Vestfjarða hefur ekki lagt
fram heild stæða áætlun um 100%
aðgengi að þriggja fasa rafmagni á
dreifi veitu svæði sínu en á hverju ári
er unnið að endur bótum samkvæmt
framkvæmda áætlun viðkomandi
árs sem tekur mið af ástandi dreifi-
kerfisins.“
Ráðherra tekur fram að framan-
greind svör byggi á umbeðnum
um sögnum frá Orkubúi Vestfjarða,
Orkuveitu Reykjavíkur og RARIK.
/HKr.
Orkumál
Bæir án þriggja fasa rafmagns hjá RARIK
Kjósarsýsla 17
Borgarfjarðar- og Mýrasýsla 192
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla 88
Dalasýsla 125
Húnavatnssýslur 175
Skagafjarðarsýsla 165
Eyjafjarðarsýsla 90
Þingeyjarsýslur 162
Múlasýslur 289
Skaftafellssýslur 118
Rangárvallasýsla 117
Árnessýsla 101
Samtals: 1.639
Bæir án þriggja fasa rafmagns hjá OV
Norður-Ísafjarðarsýsla 18
Vestur-Ísafjarðarsýsla 8
Vestur-Barðastrandarsýsla 29
Austur-Barðastrandarsýsla 13
Strandasýsla 55
Samtals 123
Bæir, aðrir en lögbýli, án þriggja fasa
rafmagns á dreifiveitusvæði OV
Krossholt á Barðaströnd
Brjánslækur
Laugarhóll í Bjarnarfirði
Hnjótur
Flókalundur
Djúpavík
Breiðavík
Norðurfjörður
Broddanes
Sveitarfélög sem eru algjörlega
án þriggja fasa rafmagns
Tjörneshreppur - á dreifiveitusvæði RARIK
Árneshreppur - á dreifiveitusvæði Orkubús Vestfjarða
Sveitarfélög hjá RARIK að mestu
án þriggja fasa rafmagns
(Berufjörður, Hamarsfjörður og Álftafjörður)
Síða, Fljótshverfi, Landbrot, Meðalland,
Skaftártunga og Álftaver
Sveitarfélög hjá RARIK að miklu leyti
án þriggja fasa rafmagns
– Vesturland:
Lundarreykjadalur, Mýrar, Kolbeinsstaðahreppur,
Laxárdalur og Fellsströnd/Skarðsströnd
– Norðurland vestra:
Miðfjörður, Vatnsnes, Svínavatn, Svartárdalur,
Skagi og inndalir Skagafjarðar
– Norðurland eystra:
Innsti hluti Eyjafjarðardala, Bárðardalur,
Melrakkaslétta og Langanes
– Austurland:
Jökuldalur, Jökulsárhlíð/Hróarstunga, Mjóifjörður,
Breiðdalur og Lónsfjörður.
– Suðurland:
Selvogur.
Svæði hjá Orkubúi Vestfjarða
algjörlega án þriggja fasa rafmagns
Norðan Bjarnafjarðarháls
Sunnan Þorpa á Ströndum, norðan Blævardals
og sunnan Nauteyrar í Ísafjarðardjúpi
Sunnan Króksfjarðarness
og norðan við Bjarkarlund
Vestan Bíldudals og austan Dufansdals í Arnarfirði.
Ekkert þriggja fasa rafmagn er í Vesturbyggð
sunnan og austan Patreksfjarðar.
Án þriggja fasa rafmagns milli Súðavíkur og Látra.
Þriggja fasa strengur er með þjóðvegi
frá Reykjanesi að Látrum
Án þriggja fasa rafmagns vestan Þingeyrar
og vestan Núps. Ingjaldssandur er án þriggja fasa
rafmagns og nokkrir aðrir bæir í Önundarfirði
Án þriggja fasa rafmagns utan við Tálknafjörð
Eldamennska er leikur einn!
„Eldum íslenskt með kokkalandsliðinu“
er matreiðslubók þar sem einfaldleikinn
er í fyrirrúmi.
Aðeins 5 hráefni í hverjum rétti.
Fáanleg í helstu bókaverslunum
og í netverslun www.sogurutgafa.is
Þriggja fasa rafmagn
Lágspennudreifikerfið er rekið
með þriggja fasa riðstraumi sam-
kvæmt staðli um lágspennu.
Samkvæmt því skal málgildi
spennu á afhendingarstað í enda
heimtaugar vera:
230 V á milli fasa og N-leiðara og
400 V á milli fasa í þriggja fasa,
fjögurra leiðara kerfum.
230 V á milli fasa í þriggja fasa,
þriggja leiðara kerfum.
Spenna á afhendingarstað má
vera á bilinu +6% til -10% miðað
við ofangreind málgildi.
Heimild: Fallorka.is
Rafsegulsvið
Oft heyrist talað um að
rafsegulsvið í kringum raflínur
geti verið hættulegt mönnum og
dýrum. Rafsegulsviði hefur m.a.
verið kennt um hættuna á aukinni
tíðni Alzheimer hjá þeim sem
vinna mikið við rafmótora eða
tæki knúin slíkum mótorum.
Aldrei hefur samt tekist að
sanna slíkt með óyggjandi hætti
þó að faraldsfræðileg rannsókn í
Bandaríkjunum hafi gefið ákveðnar
vísbendingar um að slíkt geti verið
mögulegt.
Víst er að mannsheilinn notar
raf straum til að senda skipanir um
starfsemi líkamans. Því er ekki
óeðlilegt að álykta að utanað komandi
truflanir á rafsvið í kringum fólk geti
haft áhrif á rafboð heilans og þannig
hugsanlega valdið skaða. Nefna má
að dæmi eru um að rafsegulbylgjur
frá sólinni hafa hreinlega slegið út
heilu raforkukerfunum á jörðinni.
Fæstir gera sér þó grein fyrir að
einföld raftæki á heimilum manna
geta skapað jafn mikið rafsegul-
svið í kringum sig eða meira en
öflug spennivirki. Umfang raforku-
mannvirkis getur því hæglega fengið
fólk til að draga rangar ályktanir um
rafsegulsviðið í kringum það.
Samkvæmt upplýsingum af
vefsíðunni fallorka.is er rafsegulsvið
frá hrærivél í eldhúsi svipað og
frá spennistöð. Þá er rafsegulsvið
frá 220.000 V háspennulínu með
100.000 kW álagi um 0,02 mikrotesla
í 200 metra fjarlægð eða jafn mikið
og frá reiðhjóli með ljósum.
Það var ekki merkilegt rafsegul sviðið
í kringum línurnar á þessum fallna
rafmagnsstaur í Mývatnssveitinni
í haust.