Bændablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
„Ostarnir eru mín nördistaástríða“
Eirný Sigurðardóttir í sælkera-
versluninni Búrinu í Nóatúni í
Reykjavík fagnaði fjögurra ára
afmæli verslunar innar í september
síðast liðnum. Hún hefur stækkað
við sig og opnað Búrstofuna, við hlið
verslunarinnar, þar sem aðstaða er
til að halda markaði og námskeið á
vegum ostaskólans sem hún rekur.
„Ég opnaði tveimur dögum fyrir
hrun og þetta er búið að vera mjög
erfitt og upp og niður tímabil en maður
þraukar þetta. Það er ekki endilega af
skynsemi sem maður gerir það heldur
af ástríðu. Hugmyndafræðin lifir í lok
hvers dags og mér þykir afar vænt
um þennan rekstur. Það eru margir
sem koma að þessu og ég hef eignast
marga góða vini á meðal framleiðenda
á þessum tíma svo þetta snýst ekki
eingöngu um mig. Maður hættir ekki
hringekjunni að gamni sínu,“ útskýrir
Eirný.
Eirný segir að desember sé besti
mánuðurinn með tilliti til sölunnar en
að sumrin séu einnig góð. Færst hefur í
vöxt að Eirný sé beðin um að koma að
veislum og standa fyrir örnámskeiðum
í ostagerð.
„Kreppan gerði það að verkum að
neytendur voru tilbúnari að styrkja
einyrkja. Allir eiga veraldlega hluti og
fólk fór að ráðstafa peningum sínum
frekar til matvara heldur en hluta
þegar ráðstöfunartekjurnar skertust.
Matvara er vinsæl gjafavara og það
sem við tókum eftir við hrunið var
að fólk ferðast meira innanlands og
tekur þá með sér pínulítið auka fyrir
sumarbústaðaferðina, nú eða til að
hafa það kósí úti í garði heima.“
Útimarkaður fyrir bændur
Í fyrra hélt Eirný í samvinnu við
Beint frá býli markað á planinu við
verslunina í Nóatúni og þrátt fyrir
slagveður komu yfir þrjú þúsund
manns. Nú verða leikar endurteknir
laugardaginn 8. desember.
„Það er til mikið af gæðavörum
frá íslenskum framleiðendum en það
eru fáir útsölustaðir, þannig að Búrið
og Hjá Frú Laugu eru miðpunktur
fyrir marga á höfuðborgarsvæðinu.
Það skiptir máli fyrir þessa framleið-
endur hvar þeir koma vörunni sinni á
framfæri. Ég er að selja frá rúmlega
20 framleiðendum og þeir eru ekki
allir í Beint frá býli en við hvetjum
alla til að verða aðilar að samtök-
unum. Beint frá býli eru samtök sem
eru að gera mjög góða hluti og styðja
vel við sína félagsmenn,“ segir Eirný
og bætir við:
„Í fyrra voru 22 framleiðendur alls
staðar að af landinu á markaðnum
sem var hér fyrir utan og flestir seldu
upp allar sínar vörur. Viðtökurnar
voru framar vonum. Við ætlum þess
vegna að prófa þetta aftur og stefnum
á að fá til okkar 30 framleiðendur
með sínar vörur því auk rýmisins
úti verður aðstaða hér innandyra við
hliðina á versluninni sem ég opnaði
fyrir stuttu.“
Yfirvegað ostagerðarfólk
Eirný hefur rekið ostaskóla um
nokkurt skeið og með tilkomu nýju
aðstöðunnar við hlið verslunnarinnar
í Nóatúni opnast fleiri möguleikar
varðandi námskeið og markaði.
„Ég hef sett þetta upp sem tvo
tíma af gómsætum fróðleik þar sem
ég hef námskeiðin lærdómsrík og
skemmtileg en ekki of vísindaleg.
Ég kalla þetta Ostaást 101, sem er
grunnnámskeið í að læra að þekkja
og flokka þær fjögur til fimm þúsund
ostategundir sem til eru í heiminum.
Að sjálfsögðu er boðið upp á veit-
ingar með. Stelpurnar hjá Sæluostum
byrjuðu að gera sína osta eftir að þær
komu á námskeið hjá mér og mér
finnst mjög skemmtilegt að þetta geti
orðið hvatning fyrir aðra til að gera
eitthvað,“ útskýrir Eirný og segir
jafnframt:
„Ég ber ótrúlega mikla virðingu
fyrir fólki sem lifir á landinu og ég fæ
alveg þrýsting upp í hálsinn þegar ég
hugsa um allt það sem bændur þurfa
að ganga í gegnum. Þá meina ég að
fyrir utan vinnu 365 daga á ári er svo
margt annað sem þarf að huga að, eins
og reglugerðir og skráningar og fleira.
Ofan á alla dagvinnuna eru margir
bændur samt tilbúnir að þróa og gera
nýja hluti og mér finnst það aðdáunar-
vert. Það er enginn í ostagerð nema
af ástríðu því það er ekki gróðavon í
þessu. Ostagerðarfólk er mjög merki-
legt fólk og yfirvegað, það þarf mikla
þolinmæði og ró við ostagerð. Ég er
tilbúin að hlúa að ostinum og selja
hann en ég er allt of mikið fiðrildi til
að gera osta sjálf.“
Bein tenging við náttúruna
Í Búrinu eru að jafnaði um 40
tegundir í ostaborðinu og nær tvö-
faldast sú tala fyrir jólin. Flestir
ostanna koma frá Ítalíu, Frakklandi,
Hollandi og Spáni.
„Maður kemst ekki nær beinni
tengingu við náttúruna en með
ostum. Í grunninn er þetta ótrúlega
einfalt því eingöngu þarf þrjú hráefni,
mjólk, hleypi og salt. Möguleikarnir
eru endalausir og það er ótrúlegt að
geta búið til svona mikið af mis-
munandi brögðum með ostum, alls
kyns krydd, karamella, vín og fleira.
Ostarnir vekja mér meiri ánægju en
nokkuð annað og ég viðurkenni að
þetta er algjör nördistaástríða,“ segir
Eirný brosandi.
Eirný er uppalin í Afríku og
Skotlandi en þar er hluti fjölskyldu
hennar búsettur og flestir vinir.
Hún rak um árabil veisluþjónustu
í Skotlandi áður en hún flutti aftur
til Íslands.
„Ég þekkti fáa þegar ég kom til
Íslands og hafði litla tengingu hingað
heim en búðin er mitt félagslíf og
margir orðnir vinir mínir í gegnum
hana. Búrverjarnir, starfsfólkið mitt,
og allt yndislega fólkið sem kemur að
búðinni sem ég er ákaflega þakklát
fyrir. Ég hef einnig fundið fyrir því
að Íslendingar eru mjög opnir fyrir
breytingum og fylgja þeirri byltingu
sem á sér stað um allan heim þar sem
mikil vakning er hjá fólki að fara
aftur yfir í handgerðu ostana. Fólk
er mun meðvitaðra um upprunann
og það skapar fjölda tækifæra fyrir
bændur.“ /ehg
„Bestu ostar í heimi eru þeir sem búnir eru til úr kindamjólk því hún er svo rjómakennd, feit og sæt,“ segir Eirný í
Búrinu, sem heldur hér á níu mánaða gömlum kindamjólkurosti frá Sardiníu. Myndir / ehg-25°C
LOFT Í LOFT VARMADÆLUR
Ein sú hljóðlátasta á markaðnum
komið og hlustið í verslun okkar
Búrverjarnir Edda Katrín Einarsdóttir, Kristrún Linda Kristinsdóttir og Eirný.
Bændamarkaður verður haldinn á planinu í Nóatúni laugardaginn 8. desember
næstkomandi.