Bændablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Matvælalandið Ísland – ráðstefna um matvælaframleiðslu á Hótel Sögu:
„Hvernig framleiðum við meiri og betri mat?"
Daði Már Kristófersson auðlinda-
hagfræðingu flutti erindi á ráð-
stefnunni Matvælalandið Ísland
sem haldin var á Hótel Sögu
þriðju daginn 6. nóvember.
Erindi Daða bar yfirskriftina
„Hvernig framleiðum við meiri
og betri mat?“ Sagði hann að
matvæla framleiðslan í heiminum
stæði frammi fyrir tröllvöxnum
áskorunum sem við gætum lagt
okkar af mörkum til að mæta.
Þær áskoranir þyrfti að takast á
við með sjálfbærum hætti.
„Ef við horfum út fyrir
heimsbyggðina er okkur stöðugt
að fjölga. Okkur fjölgar gróflega
séð um 250 þúsund á dag. Þannig
eru 250 þúsund fleiri einstaklingar
í mat í kvöld en voru í gærkvöldi.
Það er alveg ljóst að til að fæða
þennan hóp þarf mjög virka og vel
skipulagða matvælaframleiðslu.
Þessi fólksfjölgun mun samkvæmt
spám halda áfram út þessa öld
ef ekkert óvænt kemur upp á. Í
ofanálag eru stöðugt fleiri sem hafa
meira milli handanna og hafa þar
af leiðandi efni á að neyta matar
ofar úr fæðukeðjunni, sem er jafnan
það sem við gerum ef við getum.
Menn hætta að borða hrísgrjón og
fara frekar að borða kjúklinga.“
Benti Daði á að spár gerðu ráð
fyrir því að matvælaframleiðslan
myndi þurfa að tvöfaldast fram á
miðja öldina til að mæta þessum
áskorunum og að matvælaverð
myndi fara hækkandi.
Þurfum að taka miklu meira
land til ræktunar
„Ljóst er að ef okkur á að takast
þetta, sem ég tel að vísu að sé
fyllilega mögulegt, þá þurfum
við að taka miklu meira svæði
til ræktunar. Við þurfum miklu
meiri rannsóknir, miklu meiri
fjárfestingar í vísindastarfi sem hafa
því miður legið niðri um alllangt
skeið eða minnkað verulega.
Við þurfum einnig að nýta alla
þá tæknimöguleika sem okkur
standa til boða. Við þurfum að
nýta framleiðslumöguleikana til
fullnustu.“
Daði sagði einnig að frá
stríðslokum hefði raunverð matvæla
í heiminum farið lækkandi. Það
lækkunarferli hefði hinsvegar náð botni
um síðustu aldamót og síðan hefði
raunverð matvæla farið hækkandi. Þetta
hefði gerst með nokkrum sveiflum en
síðasti toppur hefði verið 2008. Nú
virtist vera að nást annar toppur þar
sem matvælaverð heimsins væri farið
að rekast á auðlinda takmarkanir. Daði
telur að íslensk matvælaframleiðsla
eigi gríðar lega möguleika. Umhverfis
landið séu ein gjöfulustu fiskimið
heimsins og athyglisvert sé hversu
sterk matvælaframleiðslan í heild
sinni sé sem meginstoð í íslenska
hagkerfinu. Þar sé þó verið að
horfa á tvær mjög ólíkar greinar.
Annars vegar sé mjög ábatasamur
og samkeppnisfær sjávarútvegur á
meðan landbúnaðurinn hafi þróast
út í að vera fremur óarðbær með
mjög takmarkaða samkeppnisfærni.
Skýringuna á slakri stöðu land-
búnaðarins telur Daði vera slök ytri
skilyrði og ýmis innri vandamál sem
hafi fengið að þróast of lengi með
neikvæðum hætti.
Framleiðslumöguleikarnir eru
gríðarlegir
Varðandi aukna framleiðslumögu-
leika í landbúnaði sagði Daði það
nánast eingöngu tæknilega spurn-
ingu.
„Framleiðslumöguleikarnir þar
eru gríðarlegir. Ísland er mjög stórt
þó það sé ekki mjög frjósamt. Það
væri hægt að framleiða miklu meira.“
Benti Daði á að tölur sýndu hvað lítið
væri í raun nýtt af framræstu votlendi
til matvælaframleiðslu. Vandamálið
í þessari grein væri hinsvegar sam-
keppnisfærni.
Lykilvandamálið liggur í
stuðningnum
„Ég held að lykilvandamálið liggi
í raun og veru í stuðningnum.
Fyrirkomulagi styrkja í land búnaði.
Styrkjakerfið þarf að hvetja til
nýsköpunar og hvetja til arðsem-
isþróunar frekar en stöðnunar eins
og það hefur gert. Það þarf að horfa
til annarra leiða í stuðningi. Ekki
hætta honum, heldur breyta fyrir-
komulaginu, t.d. að huga meira að
fjárfestingastyrkjum til nýsköpunar.
Styrkja landnýtingu til matvæla-
framleiðslu óháð því hver lokaaf-
urðin er, frekar en að binda hendur
og sköpunarkraft bænda í ákveðna
framleiðslu. Skilyrtur stuðningur
við sjálfbærar framleiðsluaðferðir
held ég að sé algjörlega eðlileg og
sjálfsögð krafa ef styrkja á atvinnu-
grein. Síðan þarf að auka rannsóknir
og vísindastarf, sem hefur sýnt sig
að skila miklum árangri.
Núverandi landbúnaðarkerfi
leggur megináherslu á sauðfjár-
og nautgriparækt. Ég get haldið
langt erindi til að rökstyðja hvers
vegna þetta fyrirkomulag, sem
við höfum valið sérstaklega í
mjólkurframleiðslunni, takmarkar
nýbreytni, dregur úr hagræðingu
frekar en að stuðla að henni og
stuðlar ekki að betri afkomu til
lengri tíma. Raunverulega get ég
fært fyrir því rök að yngri bændur í
dag séu ekkert betur settir en ef þeir
nytu engra ríkisstyrkja. Það getur
ekki verið gott fyrirkomulag sem
endar þannig. Við þurfum því að
skilgreina nýja stefnu fyrir land-
búnaðinn til lengri tíma með það
að markmiði að hann geti tekist á
við þær áskoranir sem heimurinn
í heild sinni þarf að takast á við á
komandi áratugum.“
Fjölbreytni mikilvæg
Daði ræddi síðan um hvernig ætti að
búa til betri matvæli en gert er í dag.
Þar ætti að horfa til þess að neyt-
endur sæktust eftir fjölbreytni en
ekki mat í stöðluðu formi. Opinber
verðlagning og viðskiptahindranir
og hindranir á upplýsingaflæði á
matvörumarkaði væru til bölvunar
í slíkri þróun.
„Ég held að markaðstækifæri
fyrir íslenska matvöru séu gríðarleg
þegar upp er staðið. Í fyrsta lagi held
ég að samspil við ferðaþjónustuna
skipti þarna mjög miklu máli. Til
að nýta þau tækifæri þarf að miðla
upplýsingum. Upplýsingar um hvað
ferðamaðurinn vill þurfa að berast til
bóndans.“ /HKr.
Myndir / HKr.
M
AT
VÆL
ALANDIÐ
ÍSLAND
FJÁRSJÓÐUR
FRAMTÍÐAR
Hagsmunaaðilar og fyrirtæki í matvælaframleiðslu tóku
höndum saman og héldu ráðstefnu um Matvælalandið
Ísland á Hótel Sögu þriðjudaginn 6. nóvember síðastliðinn.
Þar var spurt hvernig auka ætti verðmætasköpun og nýta
þær matarauðlindir sem landið býr yfir. Eftir fjölbreytt erindi
úr ýmsum áttum var niðurstaða fundarins sú að fjölmörg
tækifæri lægju í aukinni framleiðslu og sölu á íslenskum mat
og tengdri þjónustu. Húsfyllir var á ráðstefnunni, en erindin
eru öll aðgengileg á myndböndum á vefnum bondi.is.