Bændablaðið - 15.11.2012, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Með rúmábreiðuna góðu. Talið frá vinstri: Geirlaug Þorvaldsdóttir hóteleigandi, Sverrir Hermannsson móttökustjóri, Snorri Valsson hótelstjóri, Björk
Mynd /HKr.
Hönnuðurinn Bóas Kristjánsson og Hótel Holt kynna nýjung í notkun á ull:
Einstök rúmteppi úr blöndu af íslenskri
ull og vistvænni ítalskri bómull
Hönnuðurinn Bóas Kristjánsson
kynnti á þriðjudag nýjar
rúmábreiður úr blöndu af íslensku
ullarbandi og vistvænni bómull,
sem er ávöxtur þróunar sem styrkt
var af Fagráði sauðfjár bænda.
Er þetta líka gert í samstarfi við
Hótel Holt, sem kaupir slíkar
rúm ábreiður á lúxus herbergi sín.
Hyggjast forráða menn hótelsins
þannig gefa hótelinu enn list rænna
yfir bragð en áður. Sem flestum er
kunnugt voru stofnendur hótelsins,
þau Þorvaldur Guðmunds son og
Ingibjörg Guðmunds dóttir, miklir
list unnendur og er hótelið skreytt
ómetan legum lista verkum. Hótelið
er nú í eigu Geirlaugar dóttur
þeirra.
Bóas segir að þetta verkefni
hafi miðað að því að samþætta
íslenskt ullarband og vistvænt garn
sem gefur ullinni þá eiginleika að
hún stingur ekki eins og þekkt er
t.d. með lopapeysurnar. Undir
það tekur Margrét Bóasdóttir
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
8045 sem stendur á bak við þetta
verkefni.
„Teppið er í raun innblásið af
Geirlaugu og Margréti og meira
þeirra hugmynd þó ég hafi séð um
útfærsluna. Ég er mjög ánægður með
að hafa fengið þetta tækifæri til að
þróa rúmteppið fyrir hótelið.“
Lúxusvara úr íslenskri ull
Þegar við byrjuðum að þróa þetta
og sýndum hóteleigandanum
Geirlaugu Þorvaldsdóttur vöruna
fyrst vorum við mjög ánægð
með að geta boðið lúxusvöru úr
íslensku ullinni. Það hefur ekki
verið til neinn slíkur markaður fyrir
ullina vegna þess að hún stingur
svo mikið. Hún er því ekki notuð
í lúxusvörur nema í mjög litlum
mæli. Við fengum því leyfi til að
nota hana þegar við vorum að vinna
með vistvænar afurðir í keppni
erlendis. Þá notuðum við ítalskt
vistvænt vottað bómullargarn í
bland við íslenska ull. Þetta var
ákveðin undantekning í þessari
keppni vegna þess að íslenska ullin
er ekki með vottun sem vistvæn
vara.“
Bóas segir að vistvæn vottun
á íslensku ullinni geti skipt miklu
máli ef sótt verði með hana inn á
markað fyrir vistvænar vörur. Það
hafi þó ekki skipt máli í þessu
tilviki.
„Út úr þessu kom að við náðum
að gera þetta að mjúku efni sem
stingur ekki. Það náðist annars
vegar út af þessari bómull og
einnig út af ýfingunni á ullinni, sem
reyndar er vel þekkt tækni. Efnið
er því mjög þægilegt, sérstaklega
fyrir svona ábreiður, þótt það sé
enn full þykkt fyrir flíkur. Geirlaug
sá þetta hjá okkur og fannst efnið
spennandi og því ákváðum við að
gera prufu. Allt er þetta unnið hér
heima hjá fyrirtækinu Glófa, sem
prjónar teppin.“
Bóas segir að tiltölulega lítið sé
af bómull í þessu efni, eða um 25%.
Prjónaaðferðirnar skipta líka máli
til að framkalla réttu eiginleikana
og bómullargarnið þarf líka að
vera af réttri þykkt. Síðan er þetta
litað sérstaklega í samræmi við
innréttingar lúxusherbergjanna á
Holti.
„Við lögðum áherslu á að þetta
yrði áfram að mestu leyti ull, sem
héldi þá sínum sérstöku eiginleikum
með að halda vel varma, en samt að
ná fram þessari mýkt.“
Prófaði líka að blanda
mjólkurgarni við ull
–Kom þá ekki til greina að þróa inn í
þessa vöru þráð úr mjólkurpróteini
sem lesendur Bændablaðsins hafa
áður kynnst þér vera að vinna með?
„Jú, reyndar. Við prufuðum það
líka. Enn er 100% mjólkurgarn þó
rosalega dýrt. Það hefði því ekki
svarað kostnaði og í sjálfu sér
hefði það ekki bætt eiginleikana
svo mikið. Fólk þekkir vistvæna
bómull og í samhengi við ullina
gengur þetta vel upp í huga fólks.“
Viðbót við listamenningu
hótelsins
Geirlaug segir að sér lítist ljómandi
vel á þetta.
„Með þessu vil ég halda því
áfram sem upphaflega var hugsað
með þessu hóteli. Það var ekki
byggt eingöngu sem hótel, heldur
ekki síður sem listasafn. Við höfum
gaman af að halda þeirri vinnu
áfram og styrkja íslenska listamenn.
Við vonum að þessi teppi séu bara
byrjunin á því.“
Snorri Valsson hótelstjóri segir
að í framhaldinu hafi komið upp
sú hugmynd að sýna hótelgestum
hvers konar vara þetta sé. Þarna sé
ekki bara um hversdagslegt teppi
að ræða. Því hafi verið brugðið á
það ráð að útbúa kort þar sem Bóas
ávarpar gesti og lýsir fyrir þeim í
stuttu máli tilurð þessarar ábreiðu
og einstakri blöndu af íslenskri
ull og ítalskri vistvænni bómull.
Framan á kortinu er mynd af stúlku
sem er umvafin teppinu og ljóð eftir
Einar Braga sem snúið hefur verið
yfir á ensku af Bernard Scudder.
„Þá munum við kannski nýta
meira ljóðlist og ritlist hér á
hótelinu til viðbótar við málverkin.
Við getum boðið gestum í ferð um
hótelið til að sýna þeim málverkin.
Síðan gætum við gert þetta enn
meira lifandi með því að fá hér
listamenn til að koma í heimsókn,
rithöfunda og ljóðskáld til að
spjalla við gestina og lesa upp úr
verkum sínum. Þannig verði það
enn meiri upplifun að vera á þessu
hóteli. Enda fáum við mikið af
gestum sem eru að leita eftir dvöl
á listahóteli.“
Geirlaug segir að auk þessa
sé starfsmannateymið á hótelinu
mjög samhent úrvalsfólk sem hafi
virkilegan áhuga á vinnunni sinni.
Slíkt skili sér alltaf til gestanna sem
þar dvelji.
/HKr.
Abbey 200
haugsuga
Stærð 9.000 ltr
Árgerð 2006
Verð:
kr. 1.600.000,- án vsk.
(kr. 2.008.000,- m/vsk.)
Case CX80
890 hestafla, árgerð 1998,
5.530 vinnustundir
Verð:
kr. 2.200.000,- án vsk.
(kr. 2.761.000,- m/vsk.)
Til sölu
notaðar vélar
Nánari upplýsingar á
www.kraftvelar.is
Dalvegur 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Weidmeann 1230
liðstýrð smávél, árgerð 2005
Aðeins 1.750 vinnstundir
Skófla og heygreip fylgir
Verð:
kr. 2.100.000,- án vsk.
(kr. 2.635.500,- m/vsk.)
VIÐ ERUM GÓÐIR Í KÖTLUM
Knarrarvogi 4 104 Reykjavík Sími 585 1070
Fax 585 1071 vov@vov.is www.vov.is
Bændablaðið
Smáauglýsingar.
5630300