Bændablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 33
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
$
!"#***'%'
+ %
5 64
7) 0633
,
,
)
33'
2
3 ,
4
6
3) )6
53 )'2
% 3 )
.0'
' !
skerpir alla hnífa, axir, sláttuvélablöð, skóflur.
Dreifing:
WORKSHARP HNÍFABRÝNIÐ
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Eitt Nýja-Sjáland á ári!
– Af ársfundi alþjóðasamtaka mjólkuriðnaðarins IDF í Höfðaborg 4. til 8. nóvember
Dagana 4. til 8. nóvember sl. var
árleg ráðstefna alþjóðasamtaka
mjólkuriðnaðarins, International
Dairy Federation, haldin í Höfða-
borg í Suður-Afríku. Ráðstefnuna,
sem ber heitið World Dairy Summit,
sóttu um 1.200 fulltrúar kúabænda
og fyrirtækja í mjólkuriðnaði
og tengdum greinum frá öllum
heims hornum. Var hún haldin í
glæsilegri ráðstefnumiðstöð, Cape
Town International Convention
Centre, og var aðbúnaður allur
sem og skipulagning til mikillar
fyrirmyndar.
Að þessu sinni sóttu þrír
Íslendingar ráðstefnuna; Bjarni
Ragnar Brynjólfsson, skrifstofustjóri
SAM, Jón Axel Pétursson, fram-
kvæmda stjóri sölu- og markaðs sviðs
MS, og Baldur Helgi Benjamínsson,
framkvæmdastjóri Lands sambands
kúabænda. Samtök afurðastöðva í
mjólkuriðnaði eru aðildarfélag IDF.
20 milljarða lítra aukning
Árið 2011 var hagstætt til
mjólkurframleiðslu á heimsvísu.
Framleiðslan varð alls 749 milljónir
tonna, aukning um 2,5%. Neysla
mjólkurafurða jókst um rúmlega 1
kg frá fyrra ári og er 107 kg. Ísland,
Finnland, Bretlandseyjar og Ástralía
eru í sérflokki hvað varðar neyslu á
mjólkurafurðum, yfir 300 kg á mann
á ári. Neysla víða í Afríku og Asíu er
innan við fimmtungur þessa en eykst
mjög hratt. Til að halda í við árlega
neysluaukningu, sem er að mestu til-
komin vegna aukins kaupmáttar íbúa
í nýmarkaðsríkjum Suður-Ameríku
og Suðaustur-Asíu, þarf að bæta
við framleiðsluna sem nemur allri
mjólkurframleiðslu Nýja-Sjálands.
Á hverju einasta ári. Slíkt er ekkert
áhlaupaverk.
Heimsmarkaðsverð hátt –
aðfangaverð einnig
Allar líkur standa til að heims-
markaðs verð mjólkurafurða verði
hátt næsta áratuginn, því er t.d. spáð
að smjörverð hækki um þriðjung
fram til 2020. Það sem ræður
heimsmarkaðsverði á hverjum tíma
er jaðarkostnaður við þá framleiðslu
sem þarf að bæta við árlega, 20
milljarðar lítra. Um þessar mundir
er sá kostnaður tæplega 50 kr./l.
Sú staðreynd að litlar sem engar
opinberar birgðir mjólkurafurða
eru lengur til hefur aukið mjög á
verðsveiflur á þessum markaði.
Þær sveiflur hafa aukið áhuga
vogunarsjóða á því að spila með
þessar vörur. Hækkanir á fóðurverði
undanfarin misseri eru farin að hafa
talsverð áhrif á mjólkurframleiðsluna,
sérstaklega í hinum vestræna heimi.
Litlar líkur eru taldar á því að
þær hækkanir gangi til baka á
næstunni og óvíst er hversu miklu
af kostnaðarhækkunum er hægt að
velta út í verðlag afurðanna. Leitinni
að leiðum að bættum rekstri er því
engan veginn lokið.
Mjólkuriðnaður í frumframleiðslu
Mikil gerjun er í rekstrarformi og
eignarhaldi kúabúanna þessi misserin.
Mjólkuriðnaðurinn, sérstaklega í
þeim löndum þar sem vöxturinn er
mestur, fjárfestir í auknum mæli í
frumframleiðslunni sjálfri. Ástæða
þessa er að vinnslufyrirtækin vilja
stjórna framboðinu og tryggja gæði
hrámjólkur, sem víða er ábótavant.
Dæmi um þetta er OLAM, stærsta
mjólkursamlag Indónesíu, sem
nýlega keypti öll hlutabréf í
New Zealand Farming Systems
Uruguay, sem rekur nokkur kúabú
í Úrúgvæ, með alls 72.000 kýr.
Annað dæmi er kínverska samlagið
Mengniu, sem hyggst fjárfesta í
mjólkurframleiðslu fyrir 60-70
milljarða í Innri-Mongólíu í Kína
á næstu þremur árum til að koma
upp 8-12 risavöxnum kúabúum. Í
kjölfarið hyggst fyrirtækið hætta að
sækja mjólk til smærri framleiðenda
á svæðinu. Þá eykst stærð einstakra
vinnslustöðva mjög hratt.
Arla Foods UK er að reisa
mjólkur pökkunarstöð í nágrenni
London með vinnslugetu upp á einn
milljarð lítra árlega. Bú í duftvinnslu
hafa vinnslugetu upp á 200 þúsund
tonn á ári, og ostabú eru ekki byggð
fyrir minna en 100 þúsund tonn.
Vatn er olía 21. aldarinnar
Á ráðstefnunni var mjög mikil
umfjöllun um vatnsmálin og áhrif
mjólkurframleiðslunnar á vatns-
búskap. Það er ekki að undra, enda
er landbúnaður langstærsti notandi
ferskvatns á jörðinni og talið er að
um 800-1.000 lítra af vatni þurfi
til að framleiða einn lítra af mjólk.
Ef svo fer fram sem horfir í
aukinni eftirspurn matvæla verður
eftirspurn eftir vatni 60% meiri en
framboðið eftir 18 ár, árið 2030.
Við því þarf að bregðast nú þegar.
Talsmaður Nestlé, fjórða stærsta
mjólkursamlags veraldar, kynnti
áform félagsins um „vatnslaust“
mjólkursamlag, „Zer-eau“, sem
nýtir sér þá staðreynd að mjólk er
88% vatn. Vinnslan þar verður með
þeim hætti að ekki verður þörf á
aðkeyptu vatni.
Þá vekur það athygli að veru-
legur hluti af mjólkurframleiðslu
heimsbyggðarinnar fer fram á
svæðum þar sem vatn er af skorn-
um skammti. Í því hljóta að felast
tækifæri fyrir þjóð sem státar af
mestu ferskvatnsbirgðum á íbúa í
veröldinni.
Undir lok ráðstefnunnar
gafst tækifæri til að heimsækja
Welgegund-búið í nágrenni
Höfðaborgar. Það var í eigu
fimm bræðra og var búskapurinn
afar fjölbreyttur; 1.500 Holstein-
mjólkurkýr og 2.500 ha akuryrkja
(hveiti á veturna og maís á sumrin),
ásamt 120 ha vínrækt. Einnig átti
fjölskyldan mjólkursamlagið Fair
Cape, sem framleiddi drykkjarmjólk
og jógúrt.
Fleiri atriði þessarar áhugaverðu
ráðstefnu verða tekin til umfjöllunar
í næstu tölublöðum Bændablaðsins.
/BHB
Welgegund-býlið í Suður-Afríku. Mynd / BHB
Baldur Helgi Benjamínsson í fjósinu
á Welgegund-býlinu.
Kýr á 64 kúa hringekju-mjaltaróbot á Welgegund-býlinu.
Frátaka í Fair Cape.
Landgræðsla ríkisins
Auglýsing um styrki úr Landbótasjóði
Landgræðslunnar árið 2013
Landgræðsla ríkisins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki
úr Landbótasjóði Landgræðslunnar, en sjóðurinn úthlutar árlega
styrkjum til margvíslegra landbótaverkefna til bænda og annarra land-
eigenda, sveitarfélaga, félagasamtaka og annarra umráðahafa lands.
Við ákvörðun um styrkveitingar er m.a. lögð áhersla á:
Við mat á umsóknum er ennfremur tekið tillit til þess hvort gerð hafi
verið landgræðslu- og landnýtingaráætlun til a.m.k. 3ja ára fyrir það
svæði sem ætlunin er að vinna með.
kostnaði þess að mati Landgræðslunnar. Landgræðslan veitir ráð-
jafnframt eftirlit með framvindu þeirra og metur árangur.
á skrifstofu Landgræðslunnar í Gunnarsholti.
Umsóknarfrestur er til 10. desember nk. og umsóknir skal senda á
netfangið land@land.is eða til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti,
851 Hella.
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti, 851 Hella
Veffang www.land.is - Netfang land@land.is