Bændablaðið - 15.11.2012, Síða 41
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Fyrsti snjódagur runninn upp,
að minnsta kosti á Norðurlandi
og austur yfir, með tilheyrandi
leiðindum fyrir flesta sem þurfa
að vera úti að aka.
Það er því ekki seinna vænna
ef það er ekki búið þá þegar að
stika heimreiðarnar og bæta
brotnar stikur. Þarna er ég helst að
hugsa um mjólkurframleiðslubæi
því það er ekkert grín að setja
mjólkur bílinn í vafaakstur á
mjórri heimreið í vondu veðri,
snjóþunga eða hálku sjáandi illa
veginn eða alls ekki og hætta
bæði lífi og limum bílstjórans.
Og svo auðvitað tjóni á bílnum
með tilheyrandi vandræðum
þegar bílinn vantar í margar
vikur og mánuði vegna innistöðu
á verkstæði.
Á örfáum árum hafa fjórir
mjólkurbílar á svæði MS Akureyri
lent svo illa útaf á heimreiðum að
þeir fóru algjörlega á hliðina og
stórskemmdust. Ekki hafa ennþá
orðið slys á mönnum vegna þessa.
Auk þess má telja ótal tilvik
þar sem minni háttar útafakstur
hefur orðið og litlar eða engar
skemmdir hafa orðið á bílum
en hins vegar hefur þurft að fá
stórvirkar vinnuvélar til að draga
bílana upp.
Ekki trassa moksturinn!
Svo þarf auðvitað að moka
heimreiðar á losunardögum en þar
er því miður víða pottur brotinn
og mjólkurbílar orðið að hjakka
fram og aftur í óratíma til að ná
mjólkinni.
Það tefur bílinn mjög mikið að
þurfa að keðja á mörgum bæjum
vegna ófærðar.
Hængur er á víða þar sem
Vegagerðin á að sjá um mokstur
heimreiða en þar er farin
fjallabaks leið í boðskiptum,
þannig að bóndinn þarf að tala við
sveitarstjórann og sveitarstjórinn
við Vegagerðina og sums staðar
Vegagerðin við verktaka, sem sagt
Einbjörn, Tvíbjörn, Þríbjörn og
jafnvel Fjórbjörn.
Þetta er afturför hvað varðar
skil virkni og í ofan álag hafa
sveitar stjórar eða odd vitar
brugðist misvel við, sumir ágæt-
lega og til sóma, vilja allt gera,
en því miður er einn og einn með
ótrúleg leiðindi og stæla svo ekki
sé meira sagt. Það fengum við að
reyna síðastliðinn vetur.
Því bið ég nú mjólkurbændur
þar sem þetta á við að hugsa nú vel
til mjólkurbílanna og bílstjóranna,
og ekki gleyma því að þið eigið
bílana og fyrirtækið því slysalaus
mjólkurbíll og styttri aksturstími
þýðir auknar líkur á betri afkomu
fyrirtækisins og meiri líkur á
hærra verði fyrir mjólkina.
Hjónin á Hrafnagili í stórræðum
Í síðasta pistli fjallaði ég meðal
annars um framkvæmdir og
uppbyggingu og nefndi þar nokkra
bæi þar sem breytt hefur verið í
sjálfvirkar mjaltir eða verið að
byggja ný fjós.
Við þetta er því að bæta að
nú hafa þau Hrafnagilshjón Jón
Elvar Hjörleifsson og Berglind
Kristinsdóttir tekið þá ákvörðun að
henda út hringekjunni, þeirri einu
á landinu, í skiptum fyrir tvo Lely-
mjaltaþjóna.
Í tilefni af því þarf að byggja
við fjósið smávegis og breyta
hringekjuhúsinu því þar er gólfið
metra lægra en í fjósinu.
Verð að viðurkenna að ég hrópaði
ekki húrra þegar Jón Elvar stórvinur
minn staðfesti sögusagnir um þessa
breytingu, en gangi ykkur engu að
síður vel með þetta, ágætu hjón.
Á Hrafnagili er framleiðslu réttur
tæplega ein milljón lítra.
Nýtt fjós á Litlu-Reykjum
Ábúendur á Litlu-Reykjum á
Reykjahverfi í S-Þing. eru byrjaðir
að byggja nýtt fjós en þar búa þau
hjónin Þráinn Ómar Sigtryggsson
og Ester Björk Tryggvadóttir. Eru
Valþór og Hilmar synir þeirra
byrjaðir búskap með þeim og munu
taka við búinu í fyllingu tímans.
Nýja fjósið er 57 bása
lausagöngu fjós, stálgrind með
ileiningum með haug hús undir öllu
og steinbita gólf yfir skafið með
sköfuróbóta.
Byrjað verður með nokkurra
ára gamla láglínu 2 x 3 Tandem
mjaltabás frá De-laval í mjaltagryfju
en stefnt á mjaltaþjón eftir einhver
ár þegar vel árar. Þá verður gamla
fjósið sem er ágæt bygging nýtt í
uppeldi og fyrir geldneyti.
Friðgeir á Breiðumýri í ham
Friðgeir Sigtryggsson á Breiðu-
mýri er að áforma miklar breytingar
á fjósinu og fjárfesti í notuðum
láglínu mjaltabás frá De-laval og
hyggst afleggja rörmjaltakerfinu og
básafjósinu og setja kýrnar á hálm
og einhverja legubása, sameina
hlöðuna fjósinu og hafa upphækkun í
mjaltabásnum þar sem kýrnar ganga
upp til mjalta, en mjaltamaðurinn
stendur í gólfhæð fjóssins, þ.e.a.s.
fer ekki ofan í gryfju. Þetta er þekkt
víða erlendis.
Þá er enn að bætast við
framkvæmdalistann á svæðinu.
Er það vel og sýnir djörfung og
dug mjólkurbænda. Augljóst er
að menn eru ekki að tapa trúnni á
kúabúskapinn og er það gleðiefni.
Bravó fyrir ykkur bændur!
Kristján Gunnarsson
Fyrir norðan í byrjun vetrar
Sunbeam-Oster fjárklippur
Sunbeam-Oster fjárklippur
Varahlutaþjónusta og sala á fjárklippum.
Startarar, alternatorar, varahlutaþjónusta
sími: 696-1050 netfang: oksparesimnet.is
Vinnuverndar- og réttinda-
námskeið fyrir bændur
Í Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri var á dögunum haldið
námskeið sem ber heitið Vinnu-
verndar- og réttinda námskeið fyrir
bændur. Í lýsingu segir að nám-
skeiðið sé fyrir bændur, búalið og
aðra áhugasama.
Námskeiðið veitir bókleg réttindi
til að stjórna dráttarvélum í réttinda-
flokki I og lyfturum í réttindaflokki J.
Námskeiðið er hefðbundið vinnuvél-
anámskeið en er lagað að bændum.
Sérstaklega er fjallað um gerð áætl-
unar um öryggi og heilbrigði (áhættu-
mat starfa) á vinnustað og gerð æfing
í því. Lagðir eru fram gátlistar fyrir
bændur til að gera áhættumat.
Námskeiðið byggist upp á fyrir-
lestrum, myndum, myndböndum og
verkefnum. Leiðbeinendur eru starfs-
menn fræðslu - og vinnuvéladeildar
Vinnu eftirlitsins. Allar nánari upp-
lýsingar um námskeiðin gefur Ásdís
Helga Bjarnadóttir í síma 433-5000
en námskeiðið verður haldið víða um
land á næstu vikum.
/ÁÞ
Mynd / Áskell Þórisson
Keppnin Eftirréttur ársins 2012 var
haldin þriðjudaginn 6. nóvember á
Hilton Nordica Hótel. Alls voru 36
skráðir til keppni og spennandi rétt-
ir bornir fram. Sigurvegari keppn-
innar var Fannar Vernharðssson á
veitingastaðnum Vox. Keppnis rétt
höfðu þeir sem lokið höfðu sveins-
prófi í matreiðslu, konditori og
bakaraiðn eða eru á nemasamningi
í fyrrnefndum greinum.
Í öðru sæti var Stefán Hrafn
Sigfússon í Mosfellsbakaríi og í þriðja
sæti var Hermann Þór Marinósson á
Vox. Þrenn verðlaun voru veitt:
1. sæti: Gjafabréf – flug til Evrópu.
2. sæti: Gjafabréf og gjafakarfa.
3. sæti: Gjafakarfa.
Að sögn Hafliða Ragnarssonar, for-
manns dómnefndar, var gaman að sjá
svo marga taka þátt í keppninni og
greinilegur áhugi fyrir því að skapa
spennandi nýjungar úr góðu hráefni.
Keppni sem þessi sé til þess fallin að
draga það besta fram hjá fagfólki.
Þetta er þriðja árið í röð sem keppnin
er haldin og fjölgar keppendum ár frá
ári. Súkkulaðiframleiðandinn Cacao
Barry er aðalstyrktaraðili keppninnar
að því er fram kemur á vefsíðunni
freisting.is sem er fréttavefur um
mat og vín.
Haustið með hvítu súkkulaði
og berjum
Þema keppninnar var „Haustið
með hvítu súkkulaði og berjum“
Lagt var upp með að eftirrétturinn
innihéldi Cacao Barry Blanc Satin
hvítt súkkulaði, berjapúrru og ber
frá Cap´Fruit. Keppendur komu
með allt tilbúið og máttu mæta með
aðstoðarmann. Hægt var að baka og
hita á staðnum og skila þurfti fjórum
eftirréttum á diskum. Uppskriftum
þurfti einnig að skila á blaði og á
tölvutæku formi ásamt stuttri lýsingu
á eftir réttinum fyrir dómarana. Þá
mættu keppendur til leiks með sín
eigin áhöld, en diskar voru á staðnum
þó að keppendum væri heimilt að
koma með eigin diska en þá ómerkta.
Ekkert hráefni var hins vegar fáanlegt
á keppnisstað.
Keppendum var úthlutaður tími í
eldhúsinu á keppnisstað og fékk hver
keppandi 20 mínútur til að setja eftir-
réttinn á diska. Fengu þeir ítarlega
lýsingu á keppnisreglum og aðstöðu
að lokinni skráningu.
Grunnhráefnapakki til æfinga var
útvegaður af Garra. Var öllum kepp-
endum skylt að vera í einkennisklæðn-
aði sem var svartar buxur, kokkajakki
og húfa.
Keppni matreiðslumanna Eftirréttur ársins 2012:
Fannar Vernharðsson á Vox sigraði
Myndir / Odd Stefán/Smári
-