Bændablaðið - 15.11.2012, Síða 43
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Guðrún Hadda Bjarnadóttir
handverks listakona býr í
Fífilbrekku í Eyjafjarðar sveit
og hefur einnig komið sér þar
upp vinnustofu sem hún nefnir
Dyngjan – listhús. Hún býður
upp á fjölbreytt námskeið sem
öll eiga það þó sameiginlegt að
snúast um fornt íslenskt hand-
verk.
Guðrún Hadda er fædd og uppalin í
Kópavogi en bjó um árabil í Svíþjóð,
þar sem hún kynntist þarlendu
handverki. Þegar hún flutti aftur
heim til Íslands bjó hún og starfaði
um nokkurra ára skeið á Akureyri.
Árið 2004 keypti fjölskyldan
tvær lóðir í Eyjafirði og nefndi
Fífilbrekku, en þangað flutti hún
að loknum byggingaframkvæmdum
árið 2010. „Þetta er alveg frábær
staður, hér ríkir kyrrð og friður og
hér er gott að starfa og búa,“ segir
hún, en auk þess að halda hund eru
nokkrar íslenskar landnámshænur í
bústofni fjölskyldunnar. Lífið snýst
fyrst og fremst um listsköpun og að
miðla þekkingu, en Hadda er þekkt
fyrir að halda fornum íslenskum
menningararfi á sviði handverks
á lofti.
Tengist landbúnaði og búskap
Námskeiðin sem hún hefur í boði
tengjast öll landbúnaði og búskap;
„Ég vil mjög gjarnan viðhalda
þjóðlegri hefð og varðveita gamalt
handverk,“ segir hún. Meðal
þess sem Hadda býður upp á eru
námskeið í vattarsaumi, tógvinnu
og jurtalitun auk prjónanámskeið
s. Þá er einnig í boði námskeið í
gerð tólgarkerta og að vinna með
hálm, svo eitthvað sé nefnt af
þeim fjölbreyttu námskeiðum sem
áhugasamir geta nýtt sér, til gagns,
ánægju og yndisauka.
Hadda segist leggja áherslu á
nytjalist og myndverk. „Ég hef
alltaf haft áhuga á nytjahlutum, að
búa til eitthvað nýtilegt úr margs
konar efnivið,“ segir hún. Á nám-
skeiðunum kennir hún þátttakend-
um að vinna hlutina frá grunni. Á
prjónanámskeiðunum, sem standa
yfir í fjögur skipti, er m.a. farið yfir
hönnun, frá því hugmyndir kvikna
að flík, til dæmis peysu, sjali eða
hverju sem er raunar, og að frá-
gangi, sem Hadda segir að skipti
miklu máli.
Akrarnir færa okkur gott
handverksefni
Varðandi hálminn nefnir hún að
korn hafi verið ræktað víða um
heim til brauðgerðar og hálmur
nýttur í bæði nytja- og skrautmuni,
en stutt er síðan kornrækt hófst hér
á landi og hefðin á að afraksturinn
sé nýttur á annan hátt en sem fóður
er enn sem komið er ekki sterk.
Hadda telur þó að nýting á hálmi
hér á landi sé löngu gleymd hand-
verkshefð. „Nú eru akrarnir aftur
komnir í íslenskar sveitir og þeir
færa okkur þetta fína íslenska hand-
verkshráefni,“ segir hún. „Það er
gott að kunna að nýta allt sem til
fellur og hálminn er hægt að nota
m.a. í vefnað eða gerð skrautmuna.“
Eitt námskeiðanna er vattar-
saumur, en Hadda nefnir að á árinu
1889 hafi fundist vattarsaumaður
vettlingur þegar verið var að grafa
fyrir nýju húsi á Arnheiðarstöðum á
Fljótsdalshéraði og var talið að hann
væri frá 10. öld. Vattarsaumur er
forn saumaaðferð sem Íslendingar
notuðu áður en þeir lærðu að prjóna.
Við vattarsaum er notuð stór nál úr
tré, beini eða málmi, en aðferðin
virðist hafa fallið í gleymsku og
dá. Konur í Svarfaðardal höfðu þó
haldið henni til haga og notað til að
búa til mjólkursíur úr kýrhalahári.
Sýning um
Miklagarðsaltarisklæðið
Um þessar mundir er Hadda sam-
hliða námskeiðshaldinu að vinna að
sýningu á Miklagarðs altarisklæðinu
svonefnda, en Mikligarður er aflögð
kirkja í námunda við Fífilbrekku.
Klæðið er frá 16. öld, en hún segir
að Íslendingar eigi einna heilleg-
ustu refilsaumsklæði sem til eru
og víða séu til bútar en hér á landi
heilleg klæði. „Ég nota veturinn í
að undirbúa þessa sýningu, sem ég
hef raunar enn ekki ákveðið hvar
verður haldin, og hef svo í kjölfarið
áhuga á að bjóða upp á námskeið í
refilsaumi. Þetta er mjög spennandi
verkefni og ég hlakka til að takast
á við það,“ segir hún.
Hadda mun bjóða upp á nám-
skeið sín nú í vetur og um að gera
að hvetja þá sem áhuga hafa á að
læra af henni handverksaðferðir
af margvíslegu tagi til að setja
sig í samband og skrá sig. „Það
verður mikið um að vera hjá mér í
Dyngjunni á næstu mánuðum og ég
vona bara að sem flestir hafi áhuga
á að kynna sér hvað er í boði,“ segir
Hadda. /MÞÞ
Hadda í Fífilbrekku í Eyjafjarðarsveit býður upp á fjölda handverksnámskeiða:
Vill viðhalda þjóðlegri hefð og varðveita gamalt handverk
Námskeiðin sem Hadda býður upp á tengjast öll landbúnaði og búskap. Hér er hún við vefstólinn í vinnustofunni. Myndir / MÞÞ
– listhús og sést í baksýn.
Litun á garni er hluti af gamla handverkinu. Prjónarnir eru aldrei langt undan.