Bændablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 45
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Hjónin Gunnar Arnarsson
og Kristbjörg Eyvindsdóttir
eru hvað umsvifamest
hestaútflytjenda á Íslandi og ófáir
hrossaeigendur sem hafa selt
hross úr landi hafa leitað til þeirra
í gegnum tíðina. Þau Gunnar
og Kristbjörg eru jafnframt
þekkt hrossaræktarfólk, en
ræktun þeirra er kennd við
Auðsholtshjáleigu. Blaðamaður
Bændablaðsins fylgdist með þeim
hjónum í síðustu viku þegar þau
sendu á þriðja tug hrossa út til
Liege í Belgíu og ræddi við þau
um útflutninginn.
„Við byrjuðum að flytja út
hross í kringum 1985. Þá voru
að fara út um 350 hross á ári með
gripaflutninga skipum á vegum
Sambandsins. Sambandið vann þá
í samstarfi við Félag hrossabænda
og fengu til landsins skip sem fluttu
frá landinu lífhross, sem og hross
til slátrunar erlendis,“ segir Gunnar.
Hross týnd í þrjá daga í hafi
Á þessum árum voru þau hjón að
vinna við tamningu og þjálfun
hrossa og brátt foru þau að selja eitt
og eitt hross til áhugasamra erlendra
kaupenda að sögn Kristbjargar.
„Það kom fljótt í ljós að mjög
erfitt var að koma hrossum út til
kaupanda. Aðeins var um eina
til tvær ferðir á ári að ræða og
hamlaði það mjög viðskiptum.
Við tókum okkur því saman
nokkur og fórum að vinna að því
að opna fleiri möguleika. Við
hófum svo að senda hrossin út
með flugi en því var vægast sagt
illa tekið í byrjun. Það var talin
aðför að gripaskipunum og gæti
grafið undan því að hagstætt væri
að fá þau til landsins. Gripaskipin
komu yfirleitt eitt að vori og eitt að
hausti. Eitt árið lenti haustskipið í
slæmum veðrum og var týnt í hafi í
þrjá sólarhringa. Það var því í raun
mikil framför þegar flugflutningar
komust á og mun hestvænna með
styttri flutningstími og hrossunum
varð minna um flutninginn. Það
hefur jafnframt örvað sölu verulega
og orðið lyftistöng.“
Vikuleg flug
Fyrstu árin fluttu þau Gunnar og
Kristbjörg ekki mörg hross út en
smátt og smátt jókst útflutningurinn.
Nú skipta hrossin sem þau hafa flutt
úr landi þúsundum og telur Gunnar
að þau séu nálægt 13.000. Flogið er
vikulega og oft á tíðum er fleiri en
ein ferð í viku. Hrossin eru flutt á
flugvöll tveimur klukkutímum fyrir
brottför og flugið er um þrír tímar
ef farið er til Evrópu en fimm tímar
til Bandaríkjanna. Hrossin eru því
oft komin í nýja heimahaga aðeins
nokkrum klukkutímum eftir að þau
yfirgefa landið. Icelandair bjóða upp
á hestaflug til Liege í Belgíu, Billund
í Danmörku, Norrköping í Svíþjóð
og New York í Bandaríkjunum. Auk
þeirra hjóna hafa Hestvit ehf., sem er
í eigu Hinriks Bragasonar og Huldu
Gústafsdóttir, og Eysteinn Leifsson
ehf. staðið í útflutningi á hrossum.
Ekki er um eiginlegt samstarf milli
þessara aðila að ræða en á flugvelli
hjálpast fólk að við að lesta hrossin
ef svo ber við.
Hestapestin var áfall
Útflutningur er misjafn milli ára og
hafa komið erfið tímabil þar sem allt
hefur stoppað vegna veikinda sem
komið hafa upp í hrossastofninum.
Stofninn er viðkvæmur fyrir nýjum
sjúkdómum vegna einangrunar
landsins. „Íslandið er eitt fárra
landa í heiminum þar sem alvarlegir
hestasjúkdómar eru ekki finnanlegir.
Smávírusar sem ekki eru merkjanlegir
erlendis og hafa ekki áhrif þar sem
stofninn er sýktur, geta valdið usla
hér á landi. Árið 2010 kom nokkurra
mánaða stopp vegna hestapestarinnar
sem hafði áhrif á útflutninginn. Það
ár dróst útflutningur saman um 430
hross frá því sem var árinu á undan.
Það lítur út fyrir að við séum smám
saman að vinna okkur upp aftur og að
við getum náð um 200 hesta aukningu
í útfluttum hrossum þetta árið, þ.e. að
það fari um 1.300 hross úr landi í ár,“
segir Gunnar.
Mikilvægt að fagmennska ráði för
Útflutningur lifandi dýra er alltaf
viðkvæmur og að mörgu að hyggja.
Æskilegt er að hrossin séu mannvön
og bandvön eftir tveggja vetra aldur,
Gunnar og Kristbjörg gáfust upp á sjóflutningum og hófu að fljúga hrossum út:
Hafa flutt um 13.000 hross úr landi
– Hestapestin var áfall fyrir sölu og útflutning á hrossum en nú er bjartara fram undan
Myndir / Freyr