Bændablaðið - 15.11.2012, Page 46
47Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
þeim verður minna um flutninginn ef
þau eru ekki hrædd og stressuð. Passa
verður upp á fóðrun, vatn og hey.
Reynt er að hafa biðtíma hrossanna
á flugvelli sem stystan. Hlutverk
seljenda er að undirbúa hrossin, gera
þau mannvön, snyrta hófa og stuðla
að því að hrossið sé í góðu líkamlegu
ástandi.
Kostnaður við útflutning hrossa
er umtalsverður. Þar ber fyrst að
nefna flugfarið, en það er misdýrt
eftir flughöfnum og því hvort um
stóðhest eða önnur hross er að ræða.
Einnig er kostnaður við að fá útgefinn
hestapassa, við dýralæknisskoðun,
eftirlitsskoðun, akstur frá sölustað til
útflytjanda, fóðrun, akstur á flugvöll,
vinnu við skjalagerð og tollskýrslu
auk annars.
Ferlið er langt
Gunnar útskýrir að útflutningur á
hrossum sé ekki hristur fram úr erminni
á fáeinum dögum. „Þegar sala á hrossi
er komin á er oft haft samband við
okkur, ýmist af kaupanda eða seljanda.
Við setjum þá ferlið í gang, pöntum far
fyrir hrossið hjá Icelandair og byrjum
að afla nauðsynlegara upplýsinga. Við
þurfum til dæmis ítarlegar upplýsingar
um kaupanda, upplýsingar um
hrossið, hvar það er staðsett og
hvernig læknisskoðun það á að fara
í. Við þurfum að senda upplýsingar
út þannig að hægt sé að sækja um
leyfi og undirbúa pappírsvinnu fyrir
komu hrossins. Það þarf að senda
gögn vegna dýralæknaskýrslu sem
Matvælastofnun útbýr og fylgir
hrossinu inn í nýja landið. Við
sendum upplýsingar um hrossið og
útflutningsdag til Bændasamtaka
Íslands svo að hægt sé að gefa út
hestapassa og eignarhaldsskírteini.
Sölureikningur þarf að fylgja með
hrossinu frá seljanda til kaupanda,
farmbréf og tollskýrsla auk annars.“
„Við ýmist sendum svo eftir
hrossinu eða náum í það sjálf. Þegar
það kemur í hús hjá okkur köllum við
til starfandi dýralækni til þess að fylla
út hestapassa og annast sérskoðun
á hrossinu, sé þess óskað, t.d.
röntgenmyndatöku eða annað. Síðan
þarf að kalla til embættisdýralækni
sem yfirfer hrossið, að hestapassinn
stemmi, að það sé ósárt og þoli
flutning, að hófar séu snyrtir og útlit
og heilbrigði hrossins sé í lagi. Síðan
er farið með hrossið tveimur tímum
fyrir útflutning út á flugvöll þar sem
eftirlitsdýralæknir lítur aftur yfir
að allt sé í lagi, bæði hvað hrossin
og útbúnað í flugvél varðar. Eftir
lendingu tekur við ferli erlendis þar
sem hrossin fara í húsnæði sem hannað
er fyrir þessa starfsemi, en sumir
flugvellir hafa byggt upp aðstöðu
til að taka á móti dýrum. Þar kemur
landamæradýralæknir svokallaður og
skoðar hrossin, ber saman hestapassa
og pappíra og gengur úr skugga um
að hrossin séu ósár og heilbrigð.
Tollafgreiðsla fer því næst fram og
nokkrum tímum eftir lendingu eru
hrossin sótt af hestaflutningamönnum
eða eigendum. Þessu er öðruvísi farið
í Bandaríkjunum en þar verða hrossin
að vera tvo til þrjá sólarhringa í sóttkví
eftir komu til landsins. Íslensku
hrossin njóta þó forréttinda vegna
þess hve sjúkdómafrítt landið er og
eru aðeins til málamynda í svona
stuttan tíma á meðan sóttkví hrossa
frá öðrum löndum er mun lengri,“
segir Kristbjörg.
Sveiflur hafa orðið í útflutningi
gegnum árin, bæði vegna aðstæðna
sem skapast hafa hér á landi og og
erlendis. „Margt hefur þarna áhrif, ef
þrengir að í efnahag viðskiptaþjóðanna
má búast við að samdráttur verið í
útflutningi, þar sem fólk leyfir sér
minna og eyðir frekar í nauðsynjar.
Veðurfar getur haft áhrif, bæði
hérlendis sem erlendis, sjúkdómar
eins og áður var rakið og fleira og
fleira,“ segir Gunnar.
Lúðrasveitin beið og beið
Í gegnum svona langa sögu fer ekki hjá
því að ýmislegt óvanalegt hafi gerst og
margar skondnar sögur eru til. Meðal
þeirra eru sögur af ævintýralegum
ferðum með mistraustvekjandi
flugvélum sem notaðar voru til
hestaflutninga í upphafi, svokallaðra
„Afríkuvéla“ sem voru aðeins farnar
að þreytast.
„Ef til vill eru eftirminnilegustu
sögurnar af villtum hrossum sem fóru
út í stórum stíl hér áður fyrr, hross sem
erfitt var að eiga við, ótamin á öllum
aldri, stór og sterk. Óhöpp urðu, hross
sluppu laus á hafnarsvæðum og flug-
völlum erlendis. Stundum gat verið
erfitt að lesta vélar vegna veðurs og
eitt sinn þurftum við að teyma yfir
80 hross um borð upp farþegatröpp-
ur þar sem ekki var hægt að koma
öðrum búnaði að vegna veðurs,“ segir
Gunnar.
„Eitt sinn vorum við að senda 93
hross til Helsinki, eina skiptið sem
hross hafa verið send þangað í beinu
flugi. Allt var tilbúið, hrossin komin
á flugvöllinn og Gunni var sendur
með farþegaflugvél til að taka á móti
þeim þegar þau lentu. Það var lúðra-
sveit mætt á flugvellinum í Helsinki,
sem og heil móttökunefnd. Þá bilaði
vélin, öll hrossin voru send til baka
frá Keflavík, tekin af bílum, gefið
og vatnað. Síðan var lestað aftur og
haldið út á flugvöll. Þá gekk allt vel
og hrossin komust heilu og höldnu til
Finnlands en að vísu var engin nefnd
eða lúðrasveit þegar þau lentu,“ segir
Kristbjörg að lokum. /fr
Starfsmaður Icelandair Cargo er öllu vanur, bæði að keyra lyftara og halda
í hross.
Ferðaþjónusta bænda · Síðumúla 2 · 108 Reykjavík · Sími 570 2700 · Fax 570 2799 · sveit@sveit.is
UPP Í SVEIT ALLT ÁRIÐ -
EINSTÖK UPPLIFUN!
23. nóvember á Reykjavik Natura (áður Hótel Loftleiðir)
Uppskeruhátíð
Ferðaþjónustu
bænda
2011
DAGSKRÁ:
HÁTÍÐARKVÖLDVERÐUR
á Reykjavík Natura (23. nóv.)
Reyktur og grafinn lax með salati og hunangssósu
Lambalæri með steiktum kartöflum, rabarbarasultu og soðsósu
Súkkulaði mousse með vanillusósu og skógarberjum
Um kvöldið mun starfsfólk skrifstofu Ferðaþjónustu bænda
veita tveimur ferðaþjónustubæjum viðurkenningar:
Besta frammistaðan 2011
Hvatningaverðlaun 2011
Allir félagar í Ferðaþjónustu bænda eru hvattir til að mæta á svæðið
Skráning á Uppskeruhátíðina er í fullum gangi hjá Elsu Ágústu,
netfang elsaagusta@farmholidays.is, beinn sími: 570 2726.
09.00 - 09.30 Kaffibollaspjall
09.30 - 09.45 Setning Uppskeruhátíðar (Sigurlaug
Gissurardóttir formaður FFB)
09.45 - 10.00 Sumarið 2011 og tækifærin
framundan (Sævar Skaptason,
framkvæmdastjóri FB hf.)
10.00 - 10.20 Kynning á verkefninu „Ísland
allt árið“ (Inga Hlín Pálsdóttir,
Íslandsstofu)
10.20 - 10.35 Er framtíðarlausnin að byggja?
Hermann Ottósson, Íslandsstofa
10.35 - 11.00 Kaffihlé
11.00 - 12.00 Heimskaffi og umræður. Ísland allt
árið: Hvað vilja bændur gera?
12.00 - 13.00 Hádegisverður
13.00 - 13.20 Hvað gerir góða staði góða?
(Borghildur Sölvey Sturludóttir,
arkitekt FAÍ)
13.20 - 13.40 Úr geymslu í gersemi (Dísa og Óli
ferðaþjónustubændur í Skjaldarvík,
Eyjafirði)
13.40 - 14.00 Eldhúsið, þar sem hjartað slær! (Hansína
B. Einarsdóttir, Skref fyrir skref)
14.00 - 14.15 Kaffihlé
14.15 - 14.30 Horft fram á veginn í gæðamálum
(Berglind, gæðastjóri FB)
14.30 - 14.45 Tækifærin á netinu í gegnum
Ferðaþjónusta bænda (Sævar og
Hildur Fjóla vefstjóri).
14.45 - 14.55 Hentar gistibókin öllum
félagsmönnum Ferðaþjónustu
bænda?
14.55 - 16.00 Það sem bændur vilja sagt hafa ...
orðið er laust!
Fundarstjóri: Elías Bj. Gíslason Ferðamálastofu
17.00 Óvissuferð
19.30 Hátíðarkvöldverður á Reykjavík Natura
22. nóvember: Opið hús á skrifstofu
Ferðaþjónustu bænda í Síðumúla 2
13.00 - 14.00 Kynning fyrir nýja/nýlega félaga í
Ferðaþjónustu bænda
13.00 - 16.00 Vinnusmiðja um gistibókina og
vefsöluna
(Ath. sama dagskrá er á skrifstofunni 22. og 24.
nóvember - spurning hvað hentar félögum betur)
24. nóvember: Námskeiðið „Ólíkir menningar-
heimar“ og opið hús 24. nóvember í Síðumúla 2
09.00 - 12.00 Ólíkir menningarheimar
13.00 - 14.00 Kynning fyrir nýja/nýlega félaga í
Ferðaþjónustu bænda
13.00 - 16.00 Vinnusmiðja um gistibókina og
vefsöluna
Allir félagar eru hvattir til að taka þátt í vinnusmiðjunni.
(Ath. sama dagskrá er á skrifstofunni 22. og 24.
nóvember - spurning hvað hentar félögum betur)
Í tengslum við Uppskeruhátíðina höfum við fengið
sérstakt tilboðsverð á gistingu á Reykjavik Natura.
0 . - .30 Kaffibollaspjall
0 . .45 Set ing Uppskeruhátíðar
(Sigu laug Gissurardóttir for-
maður FFB)
09.45-10.05 Ferðaþjónusta bænda út frá
sjónarhorni viðskiptavinarins
(Ingibjörg
Guðjónsdóttir, Íslenskir
fjallaleiðsögumenn)
10.05-10.25 Allt í einum pakka: Gistibók –
vefsala - bókunarvél (Hildur Fjóla
Svansdóttir FB hf.)
10.25-10.55 Kaffihlé
10.55-11.15 Hvað þýðir það að selja sig dýrt?
(Friðrik Pálsson, Hótel Rangá)
11.15-11.35 Vakinn sem gæðavo tun fyrir
ferðaþjónustubændur (Berglind
Viktor dótti FB hf.)
11.35-12.00 Umræður um Vakann (fulltrúar
frá FFB, FB hf. og Ferðamálastofu
sitja fyrir svörum)
12.00-13.00 Hádegisverður í boði
Ferðaþjónustu bænda hf.
13.00-13.20 Svört atvinnustarfsemi – afleið-
ingar og ábyrgð (Jakob Björgvin
Jakobsson, lögfræðingur á
skatta- og lögfræðisviði Deloitte
ehf.)
13.20-13.40 Landsmennt – markviss
stuðningur við fræðslu (Kristín
Njálsdóttir frá Landsmennt)
13.40-14.00 Hin fullkomna eldhúsbók
(Guðmundur Helgason á Núpi
og þátttakendur í þróunarverk-
efninu Eldað í sveitinni)
14.00-14.20 Leynast tækifæri í hjólaferða-
mennsku á Íslandi? Kynning
á hjólaferð félaga í Skotlandi/
Englandi með Íslandsstofu
(Bergþóra í Fögruhlíð og Stefán
á Hótel Natur)
14.20-15.00 Almennar umræður og kaffihlé
15.00-16.00 Húmor í samskiptum og þjón-
ustulund (Edda Björgvinsdóttir,
leikkona og gleðipinni)
Fundarstjóri: Erna Hauksdóttir, Samtök ferða-
þjónustunnar
17.00 Óvi s ferð
20.00 Há íðarkvöldverður á Gra d
Hotel Rey javík
Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda 2012
Nýjar áskoranir – ný tækifæri
föstudaginn 23. nóvember á Grand Hótel Reykjavík
Ná ari u plýsingar og skráning er hjá Elsu Ágústu;
netfang: elsaagusta@farmholidays.is, beinn sími: 570-2726.
Opið hús
á skrifstofu
Ferðaþjónustu bænda
22. nóvember
Fimmtudaginn 22. nóv. verður heitt á
könnunni fyrir félagsmenn á skrifstofu
Ferðaþjónustu bænda í Síðumúla 2. Þá
verður m.a. vinnusmiðja um Gistibók auk
þess sem farið verður yfir mál sem snerta
aðild að félagsskapnum og samskipti við
skrifstofuna.