Bændablaðið - 15.11.2012, Síða 47
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur
Manninum er eðlislægt að glíma
við náttúruöflin í þeim tilgangi að
laga aðstæður að þörfum sínum
og til þess er beitt ýmsum ráðum,
stórum sem smáum. Gróðurskálar
eru ein slík aðferð og þekkt allt frá
tíma Rómaveldis.
Garðyrkjumenn í Róm ræktuðu
plöntur frá landvinningasvæðum
herforingjanna og notuðu til þess
sólreiti og gróðurskála. Rómverjar
þekku ekki gler og í stað þess notuðu
þeir ljóshleypna steintegund, Lapis
stecularis, sem höggvin var í þunnar
flögur og er ekki ósvipuð silfurbergi.
Í Pompei á Ítalíu hefur fundist
ræktunarhús frá 1. öld eftir Krist,
svokallað specularium. Þar voru
múrsteinshillur sem plönturnar stóðu
á og leiðslur fyrir heitt loft í veggjum.
Á framhlið hússins var grind sem
klædd var með Lapis stecularis. Það
var þó ekki fyrr en á tíma endur-
reisnarinnar og landafundanna miklu
sem gróðurskálar náðu einhverri
útbreiðslu. Þeir urðu tísku fyrirbrigði
og stöðutákn. Á þeim tíma barst
mikill fjöldi plantna til Evrópu
frá nýlendunum. Grasafræðingar
þekktu ekki plönturnar og áttu fullt
í fangi með að gefa þeim nafn og
skrásetja. Fæstar af þessum plöntur
þoldu evrópska veðráttu og efnaðir
áhugamenn um gróður kepptust við
að reisa gróðurskála á landareign
sinni. Garðyrkjumenn prófuðu sig
áfram og voru furðu fljótir að átta
sig á sérþörfum hverrar tegundar
fyrir sig.
Gróðurskálar á hjólum
Fyrstu gróðurskálarnir voru nær
eingöngu notaðir fyrir appelsínutré.
Trjánum var plantað í jörð en
skálarnir voru á hjólum og var keyrt
yfir trén yfir vetrar tímann. Seinna
var farið að rækta trén í kerjum eða
stórum pottum og þau borin inn í
skála á haustin og aftur út að vori.
Eftir að gler kom til sögunnar voru
rúður litlar og aðeins hafðar á suður-
hlið skálanna en ekki leið á löngu
þar til farið var að nota gler í þakið
líka. Í fyrstu voru framfarir litlar í
gerð gróðurskála en um miðja 19.
öld voru tekin stór skref fram á við
með tilkomu þynnra og sterkara
glers.
Gróður- eða garðskálar nútímans
eiga sér langa hefð, þótt saga þeirra
hér á landi sé ekki löng. Hvað sem
því líður hefur tilgangur þeirra alltaf
verið sá sami, að lengja sumarið og
njóta betur vors og hausts. Njóta
þess sem fallegar plöntur hafa upp á
að bjóða, bæði liti og ilm, og mynda
aðstæður þar sem plöntum og fólki
líður vel.
Það hefur löngum sannað sig að
fátt hefur betri áhrif á mannlífið en
fallegur gróður og gróðurilmur.
Gróðurskálar og byggingarefni
Hér á landi, þar sem er oft vinda-
samt og sumur stutt, er notagildi
gróðurskála slíkt að ekki þarf
að réttlæta byggingu þeirra. Það
ætti að vera sjálfsagt að hanna
gróðurskála við nýbyggingar og
auðvelda ætti fólki að byggja
skála við eldra húsnæði. Út frá
fagurfræðilegu sjónarmiði ætti að
láta skálana falla vel að húsunum.
Best er að nota ál, plast eða timbur
í burðargrindina. Í grunninn er gott
að nota járnbenta steypu sem þarf
að ná niður fyrir frost. Framræsla
verður að vera góð svo vatn safnist
ekki fyrir í grunninum.Veggirnir
þurfa að standa að minnsta kosti
10 til 15 sentímetra upp úr jörðinni
og vera 10 til18 sentímetra þykkir.
Ef um er að ræða timburgrind eru
steyptar í grunninn járnstoðir sem
halda þakinu uppi. Sé grindin úr áli
er hún boltuð við grindina.
Í upphituðum skálum má draga
verulega úr hitakostnaði með því að
hafa veggi í borðhæð og einangra
vel og gæta þess að einangra öll
samskeyti. Gólf gróðurskálans þarf
að vera sterkt og þola vel vatn,
óhreinindi og upplitun af völdum
sólarljóss. Gólfið er best að steypa
eða helluleggja og æskilegt er að
hafa niðurfall með vatnslás á hverja
10 fermetra. Einnig má notast við
leirflísar, járnrimla eða vatnsvarið
timbur. Gólfið þarf að vera þannig
að hægt sé að bleyta það til að auka
loftraka í þurrum veðrum. Ef rækta
á plöntur á gólfinu er best að steypa
í það ker. Kerin þurfa að vera vel
einangruð og með niðurfalli. Þau
eiga að vera um 60 sentímetra djúp
en lengd og breidd þeirra fer eftir
stærð skálans. Einnig má steypa ker
við háa grunnveggi og jafnvel hafa
þau í stöllum.
Umhverfisþættir
Þættir sem stjórna loftslagið í
skálanum eru hiti, raki, loftræsting,
skygging og lýsing.
Hiti: Gróðurskálum er oftast
skipt í þrjár gerðir eftir hitastiginu í
þeim og þeim ræktunar möguleikum
sem skálinn býður upp á.
Kaldir gróðurskálar. Í þeim er
engin hitalögn og hitastig ræðst af
veðurfari. Loftslagið í skálanum
líkist kaldtempruðu loftslagi
Vestur-Evrópu.
Svalir gróðurskálar. Í þeim er
hitalögn sem nægir til að halda
hitastigi ofan við frostmark yfir
vetrar mánuðina. Hiti á vetrum er
1 til 10 °C og ræðst að mestu af
veður fari. Í þessum skálum líkist
loftslagið heittempruðu loftslagi
Suður-Evrópu, við Miðjarðarhaf.
Í heitum gróðurskálum er
hitalögn sem heldur lofthita yfir
10 °C allt árið. Jarðvegshiti þarf að
vera stöðugur við 18 °C, þannig að
nauðsynlegt er að hafa hitalagnir í
beðum og gólfi. Loftslag í heitum
skálum líkist hitabeltisloftslagi við
miðbaug.
Raki: Í íbúðarhúsnæði er loftraki
oft of lítill til þess að plöntur þrífist
vel og vanþrif í þeim má oft rekja
til lítils loftraka. Til þess að halda
rakastigi háu í gróðurskálum er
nauðsynlegt að geta lokað þá
frá öðrum vistarverum hússins
með hurð. Heppilegur loftraki í
gróðurskálum er 60 til 80%, hann
má ekki fara niður fyrir 40%.
Loftrakann má tempra með því
að sprauta vatni á gólfin eða hafa
bakka með rökum vikri eða möl
í skálanum. Einnig er hægt að fá
fullkomna tölvustýrða vatnsúðara
til að stjórna rakastiginu. Gott er
að láta plönturnar standa þétt því
þá nýta þær vel rakann hver frá
annarri.
Loftræsting: Gróðurskálar þurfa
að hafa opnanleg fög sem eru 30 til
40% af grunnfleti þeirra. Hægt er
að fá sjálfvirkan glugga opnara til
að auðvelda loft ræstingu. Einnig
er gott að hafa viftu til að halda
loftinu á hreyfingu. Það skal haft
í huga að sé loftræsting góð er
gróðurskála loftslag bæði heilnæmt
og frískandi.
Skygging: Ef hitastig í skálanum
fer yfir 27 °C vegna sólgeislunar
verður að grípa til skyggingar til
að koma í veg fyrir að plönturnar
skemmist af völdum hitans. Til
skygginga má nota akrýldúk,
bambus- eða rimlagardínur og
þeir sem lengst vilja ganga geta
keypt ofinn spegildúk sem hleypir
inn birtu en ekki hita og í köldum
veðrum varnar hann hita útgeislun.
Lýsing: Þegar sólin er lægst á
lofti getur verið nauðsynlegt að
grípa til lýsingar. Þetta á aðallega
við um heita skála, til að plönturnar
geti ljóstillífað og haldið áfram
að vaxa. Hægt er að fá sérstakar
gróðurperur til lýsingar, en þær
gefa frá sér fremur skæra birtu sem
mörgum finnst óþægileg. Perur ætti
því aðeins að nota til þess að örva
gróðurinn tímabundið.
Einnig má ná fram skemmti-
legum áhrifum með því að hafa
lýsingu í garðinum og tengja þannig
garðinn og skálann.
Plöntur og ræktun
Það eru einkum fimm þættir sem
fólk þarf að huga að þegar fengist
er við ræktun í gróðurskálum,
jarðvegur, áburður, vökvun,
sjúkdómar og staðsetning.
Jarðvegur: Mold er mjög
breytileg að eðli og gerð, hægt að
fá sendna mold, leirkennda mold og
mýrarmold. Moldin getur verið þétt
eða gljúp, súr eða basísk. Best er að
nota góða pottamold og blanda hana
að þriðja hluta með sandi. Einnig er
nauðsynlegt að gæta vel að sýrustigi
jarðvegsins. Hætt er við að mold
í kerjum og pottum verði of þétt
í og loftlítil. Því er gott að setja
grjót eða hraun í botninn, við það
myndast loftrými milli steinanna
og ræturnar geta andað. Gott er að
skipta um mold á 4 til 5 ára fresti,
jafnvel þótt hún sé stungin upp og
blönduð áburði á hverju ári.
Áburður: Í gróðurskálum ætti
að notast við fljótandi og lífræna
áburðarlausn en ekki kornaðan
áburð eins og utanhúss. Fljótandi
áburður er auðleystari og skolast
fyrr út og því er minni hætta á að
áburðarsölt safnist fyrir í moldinni
og brenni ræturnar. Erfitt er að
benda á einhverja eina tegund eða
einn styrkleika af áburði sem hentar
öllum plöntum. Hver planta hefur
sína sérvisku og heillavænlegast er
að eiga góða handbók til að fletta
upp í.
Vökvun: Það á alltaf að vökva
með volgu vatni, um 18 °C, og ekki
mikið í einu. Þótt plöntur vilji hafa
háan loftraka er ekki þar með sagt
að þær vilji standa í blautum jarð-
vegi. Það ætti því aldrei að reyna að
hækka loftrakann með því að vökva
plönturnar meira en nauðsynlegt
er. Hver tegund þarf sína sérstöku
vökvun og það getur verið verra að
vökva of mikið en of lítið. Reglan
er því lítið í einu en oft.
Sjúkdómar: Loftslag í gróður-
skálum er kjörið fyrir sjúkdóma
og meindýr af öllu tagi og má því
reikna með að þurfa að fást við
slíkt frá upphafi. Flestir sjúkdómar
berast í skálann með plöntunum og
því verður að skoða hverja plöntu
gaumgæfi lega áður en hún er sett
í skálann. Gott er að fylgjast vel
með nývexti og ungum plöntum.
Allra best er að beita fyrirbyggjandi
aðgerðum, hreinlæti er nauðsynlegt
svo og að fjarlægja fallin blóm og
visnuð blöð. Græðlinga skal einungis
taka af heil brigðum plöntum og
nota smit fría mold. Ef upp koma
skordýra plágur á að beita líf rænum
vörnum, sé þess nokkur kostur.
Staðsetning: Breytilegt er
hvað hver tegund vill mikla birtu
og því verður að taka tillit til þess
þegar plöntunum er valinn staður
í skálanum. Plöntur með stór blöð
þola yfirleitt skugga betur en plöntur
með smá blöð. Kaktusar og mjólkur-
jurtir þurfa mikla sól en jurtir eins
og rifblaðka kjósa skugga. Hæð
plantna ræður einnig miklu um
staðsetningu þeirra; háar plöntur
eiga að vera innarlega í beðum en
þær lægri fremst. Með þessu njóta
lágu plönturnar sín betur og minni
hætta er á að þær falli í skugga þeirra
stærri.
Garðyrkja & ræktun
Gróðurskálar – sumar stóran hluta ársins
Garðhús. Gamaldags garðhús.
Hitabeltið.