Bændablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 48
49Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum er eini
vettvangurinn í landinu þar
sem stundaðar eru rannsóknir
á dýra sjúkdómum á mörgum
fræða sviðum. Tilraunastöðin
er metnaðarfull háskóla stofnun
með margvís lega starfsemi og
starfar fyrst og fremst sem
rannsókna stofa.
Starfið hófst árið 1948 með
rannsóknum á sauðfjár sjúkdómum
en í dag eru rann sakaðir sjúk-
dómar í flestum spendýra-
tegundum Íslands og allmörgum
fugla- og fisk tegundum. Til-
gangur rannsókn anna er að efla
skilning á eðli sjúk dóma og
skapa nýja þekkingu. Heil brigð
dýr eru forsenda arðvænlegs
landbúnaðar og fiskeldis. Einnig
er mikilvægi heilbrigðra dýra sem
bera ekki sjúkdóma í menn hvati
að hagnýtingu rannsóknanna.
Mikilvægt er að stofnunin geti
brugðist sem skjótast við nýjum
og aðkallandi vandamálum á sviði
sjúkdómagreininga.
Sérhæfður húsakostur
Á Keldum hefur verið byggður
upp sérhæfður húsakostur sem
hentar starfseminni. Þar má nefna
rannsóknarhús, smádýrahús,
fjárhús, hesthús, krufningarstofu
og öryggisrannsóknarstofu.
Rannsóknarhúsunum hefur
verið vel við haldið og stöðugar
endurbætur hafa átt sér stað.
Aðstaðan hefur verið löguð
að kröfum gæðakerfis Keldna og
faggildingaraðila. Þá má nefna
að krufningastofa, þar sem tekið
er á móti smáum og stórum
skepnuhræjum og lifandi dýrum
sem á að aflífa, var endurnýjuð á
Keldum árið 1997. Einnig er fyrir
hendi tilraunadýraaðstaða fyrir
smádýr, kindur, hross og fisk.
Smádýraaðstaðan var endurbætt
1998 og hana þyrfti að stækka ef
hún ætti að þjóna öllu landinu. Ekki
má heldur gleyma að fullkomnasta
öryggis rannsóknastofa landsins
(Biosafety level 3) var reist á
Keldum 2006-2009 í kjölfar
viðbúnaðar við fuglaflensu.
Fjölbreytt vísindastarf
Framtíðarsýnin er skýr, við viljum
efla viðkomandi fræðasvið.
Áherslan innan fræðasviða
beinist að fjölbreyttu vísindastarfi
og þjónustu og að hún haldist í
hendur við atvinnulífið og þá
vaxtarbrodda sem þar er að finna.
Helstu fræðasviðin eru príonfræði,
veirufræði, bakteríufræði,
sníkjudýrafræði, meinafræði,
ónæmisfræði og sameindalíffræði.
Tilraunastöðin miðlar þekkingu
og upplýsingum til alþjóðlega
vísindasamfélagsins og í þeim
tilgangi að styrkja innlent
atvinnulíf.
Víðtækt samstarf er við erlendar
alþjóðlegar stofnanir og háskóla.
Innanlands eru ákveðin verkefni
unnin í samstarfi við stofnanir og
háskóla og aðstaða og tæki eru
samnýtt. Einnig er samstarf við
stjórnsýslustofnanir innanlands,
s.s. MAST. Samhliða þessu er
fjölbreytt og gefandi samstarf
við atvinnulífið, má þar nefna
landbúnað, fiskeldi og matvæla-
framleiðslu.
Fjárskortur hamlar
starfseminni
Niðurskurður á fjárlögum á
síðastliðnum árum hefur bitnað
á Keldum ekki síður en öðrum
opinberum stofnunum. Við
rann sóknir á dýrasjúkdómum
og við sjúkdómagreiningar
skiptir miklu máli að hafa öflugt
rannsókna teymi með reyndum
sérfræðingum á fræðasviðum
Tilrauna stöðvarinnar.
Á undanförnum árum hefur
ekki reynst unnt að ráða nýja
sérfræðinga í stað þeirra sem
hafa hætt sökum aldurs, vegna
skerðinga á fjárlögum. Þetta er
neikvæð þróun og hættumerki
sem ber að taka alvarlega, en mjög
brýnt er að efla dýrasjúkdóma fræði
við Tilrauna stöðina með ráðningu
nýrra sér fræðinga. Ef það er ekki
gert er hætta á að uppbyggingar-
starf liðinna ára beri skaða af.
Vegna rannsóknaumhverfisins
á Keldum er mjög hentugt að
skilgreina ramma um rannsókna-
nám af ýmsum stærðargráðum, allt
upp í doktorsnám. Uppbygging
hefur verið á þessu starfi.
Rannsóknirnar eru að hluta
til fjármagnaðar með sértekjum
úr samkeppnissjóðum. Styrkir
erlendis frá hafa verið verulegir
á ákveðnum tímabilum, en
misjafnt er hvernig erlendir
rannsóknasjóðir henta áherslum
í starfi Tilraunastöðvarinnar. Því
miður hefur fjármögnun innlendra
samkeppnissjóða ekki fylgt
þeirri vakningu sem verið hefur
í íslensku rannsóknasamfélagi.
Fjármögnunin hefur heldur
ekki fylgt hækkuðu verðlagi
síðastliðin ár. Samkeppnissjóðir
eru mjög veikir á Íslandi og hafa
hlutfallslega mun minna fjármagn
að spila úr en sambærilegir sjóðir
í nágrannalöndunum.
Vonandi eru nýir tímar í
augsýn, því í frumvarpi til fjárlaga
2013 er gert ráð fyrir auknum
fjárveitingum til RANNÍS. Einnig
stendur til að endurfjármagna
Framleiðni sjóð landbúnaðarins,
sem á undanförnum árum hefur
verið öflugur bakhjarl ýmissa
verkefna Tilrauna stöðvarinnar.
Nýlega var undir ritaður
búnaðarlaga samningur af hálfu
Bænda samtakanna og ríkis-
valdsins sem tryggir fjár muni
sjóðsins á komandi árum.
Þrátt fyrir fjárhags legar hremm-
ingar eru ennþá öflugir innviðir að
Keldum sem hlúa þarf að. Mörg
verkefni ganga vel, en að ýmsu
er að huga í framtíðinni. Mörgum
áleitnum rannsókna spurningum er
ósvarað.
Á komandi vetri verður
fjallað um þessi verkefni í
Bændablaðinu og sérfræðingar
Tilraunastöðvarinnar munu skrifa
um rannsóknarefni sín.
Sigurður Ingvarsson
Dr. Med. Sc.
Forstöðumaður og prófessor
Tilraunastöð Háskóla Íslands
í meinafræði að Keldum
Rannsóknir og þjónusta á Keldum
í þágu dýraheilbrigðis
Sigurður Ingvarsson
www.isfell.is
Hífi- og
festingabúnaður
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Framleiðum
Vélboða mykjudreifara
í mörgum stærðum
Heimasíða. www.velbodi.is