Bændablaðið - 15.11.2012, Page 53
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Lesendabás
Um nauðsyn þess að leggja ljósleiðara í dreifbýli
Fyrsta flokks fjarskipti eru
nauðsynleg í dreifbýli. Raunar
má halda því fram að góð fjar-
skipti séu nauðsynlegri í dreifbýli
en þéttbýli. Aðföng í dreifbýli
eru erfiðari, samskipti erfiðari,
vegalengdir eru meiri o.s.frv.
Skv. lögum skal vera hægt að
sjá ríkissjónvarpið og hlusta á
ríkisútvarpið á byggðum bólum
á Íslandi. Þessu er ekki alltaf til
að dreifa. Rás 1 í hljóðvarpi RÚV
næst nánast hvar sem er á land-
inu. Ríkissjónvarpið næst hins
vegar ekki alls staðar þrátt fyrir
að kveðið sé á um það í lögum.
Með lagningu ljósleiðara er hægt
að breyta þessu og bjóða upp á
hrað virkustu internet tengingar
sem í boði eru á hverjum tíma,
fullkomnar stafrænar sjónvarps-
útsendingar, útvarpssendingar (í
gegnum internetið) og talsíma.
Því miður er það svo að íbúar í
dreifbýli hafa verið eftirbátar íbúa
í þéttbýlinu á suðvesturhorninu
þegar hefur komið að góðum fjar-
skiptum. Gagnaveita Reykjavíkur
hefur af miklum myndarskap lagt
ljósleiðara í flest hús í Reykjavík,
á Seltjarnarnesi, Akranesi, Hellu og
Hvolsvelli svo nokkrir staðir séu
nefndir. Þetta hefur valdið straum-
hvörfum í fjarskiptaþjónustu, vöru-
framboð hefur aukist, nethraði fyrir
almenning hefur aukist og verð á
fjarskiptaþjónustu lækkað.
Á fyrri hluta 20. aldar var mikið
verk unnið með lagningu síma á
bæi í dreifbýli landsins. Með þessu
var rofin aldagömul einangrun
og íbúar í dreifbýli gátu skipst á
fréttum og hringt í aðra landshluta.
Næsta grettistak var þegar lagður
var sjálfvirkur sími til allra notenda
í dreifbýli. Því verki lauk árið
1986. Tengdust notendur sjálfvirka
símakerfinu með jarðstrengjum
því mönnum lærðist fljótt á Íslandi
að loftlínur eru viðkvæmar fyrir
íslenskri veðráttu. Nú er komið að
næstu byltingu í fjarskiptamálum
landsins, en það mun verða lagning
ljósleiðara til allra heimila landsins.
Landsbyggðin hefur setið á
hakanum þegar kemur að lagningu
ljósleiðara. Ríkið sagði sig frá einu
af meginhlutverkum sínum með
sölunni á grunnneti Landssímans.
Það er því á hendi sveitarfélaga og
áhugasamra einstaklinga að draga
vagninn þegar kemur að ljósleiðara-
væðingu í dreifbýli.
Ekki er mikið um að ljósleið-
arar hafi verið lagðir í dreifbýli
fyrir almenna notendur. Frá þessu
eru þó undantekningar. Gagnaveita
Skagafjarðar er framsækið fyrir-
tæki sem býður einstaklingum og
fyrirtækjum á Sauðárkróki og í
dreifbýli Skagafjarðar ljósleiðara-
tengingar. Í Blöndudal hafa
nokkrir bæir verið tengdir við
ljós leiðara. Á Eyjafjarðar svæðinu
hefur fjarskipta fyrirtækið Tengir
lagt ljósleiðara í hús á Akureyri
og á hluta Eyjafjarðar svæðisins.
Á Grenivík er búið að leggja ljós-
leiðara í öll hús. Á Héraði hefur
verið lagður ljósleiðari á nokkra
bæi norðan við Löginn. Í Öræfum
var fullkomið ljósleiðaranet tekið
í notkun árið 2010. Loks hefur
Skeiða- og Gnúpverjahreppur ráðist
í það verkefni að leggja ljósleiðara
til allra lögbýla í sveitarfélaginu
ásamt þeim húsum öðrum þar sem
eigendur eru reiðubúnir að greiða
sjálfir fyrir heimtaugar. Stefnt er að
því að kerfið komist í gagnið í lok
árs 2012 eða byrjun árs 2013. Fleiri
sveitarfélög hafa hug á að feta í fót-
spor Skeiða- og Gnúpverjahrepps
og láta leggja ljósleiðara í sveitar-
félögum sínum, má þar nefna
Ásahrepp, Hvalfjarðarstrandar-
hrepp og Flóahrepp. Undirritaður
hvetur þau og önnur sveitarfélög
til dáða, til að fylgja góðu fordæmi
þeirra sem þegar hafa riðið á vaðið.
Árið 2001 voru sett lög sem
gerðu ráð fyrir að íbúar í dreifbýli
sem þess óskuðu skyldu fá ISDN
tengingu (0,128 Mbits) við
internetið. Þá þegar var umrædd
gagnaflutningstækni úrelt og hefði
þótt fráleitt að reyna að bjóða
íbúum í þéttbýli suðvesturhornsins
slíkar tengingar. Næsta skref í
internetmálum dreifbýlisins var að
bjóða svokallaðar „háhraðanets-
tengingar“. Því miður var þessu
hugtaki snúið á haus því hraðinn átti
að vera „allt að“ 2 Mbits. Í huga þess
sem hér skrifar getur fjarskiptanet
ekki flokkast sem háhraðanet fyrr
en í fyrsta lagi við 100 Mbits. En
hvað fæst með lagningu ljósleiðara?
Er ekki nóg að notast við núverandi
„háhraðanetstengingar“ sem í boði
eru í dreifbýli? Svarið við þessu er
neikvætt. Aðeins ljósleiðari getur
flutt það gagnamagn sem þarf til
að bjóða raunverulega háhraðanets-
tengingu við internetið, afþreyingu
(myndbandaleiga, sjónvarps-
útsendingar), möguleika til fjar-
kennslu, möguleika til fjarvinnu,
möguleika á læknisvitjun sem fram
gæti farið í gegnum internetið og svo
framvegis. Í grein sem undirritaður
ritaði í Morgunblaðið og birtist þann
28.10. 2007 kom eftirfarandi fram:
„Á tyllidögum verður ráðamönnum
tíðrætt um byggðastefnu og að
styrkja þurfi hinar dreifðu byggðir
landsins. Ég vil benda á að lagning
ljósleiðara utan þéttbýlissvæðisins
á suðvesturhorninu er ein öflugusta
styrking við byggðir landsins sem
hugsast getur.“ Þessi orð eiga enn
við í dag.
Fyrir sveitarstjórnarmenn sem
vilja fræðast um lagningu ljós-
leiðara skal bent á tvö rit sem
FTTH (Fiber To The Home)
Council í Banda ríkjunum gefur
út. Hægt er að nálgast ritin á
slóðunum www.05.is/ljos_gogn/
ftthprimer2011.pdf og www.05.
is/ljos_gogn/ftthprimer2012.pdf.
Í téðum ritum er svarað mörgum
spurningum varðandi tækni, kosti
og galla og margt fleira varðandi
lagningu ljósleiðara.
Bent skal á að þegar ráðist er í
hvers konar lagnaframkvæmdir er
afar brýnt að leggja ídráttarrör fyrir
ljósleiðara samhliða. RARIK hefur
á undanförnum árum plægt í jörð
hundruð kílómetra af þriggja fasa
raf strengjum. Í fæstum tilvikum
hefur verið hugað að því að leggja
ljósleiðara samhliða og er þetta
miður þegar haft er í huga að allt
að 90% kostnaðar við lagningu
ljósleiðara eru fólgin í jarðvegs-
vinnunni. Í september síðastliðnum
varð mikið tjón á dreifikerfi RARIK
í Mývatnssveit. Ljóst er að nýtt
dreifikerfi verður plægt í jörðu.
Áríðandi er að nota nú tækifærið
og setja niður ídráttarrör fyrir
ljósleiðara í leiðinni og í framhaldinu
að setja upp ljósleiðarakerfi í
sveitarfélaginu.
Árið 2009 og 2010 var lagður
ljósleiðari í flest hús í Öræfum.
Verkefnið tókst með ágætum og sér
fjarskiptafyrirtækið Vodafone um
að veita sömu þjónustu í sveitinni
og í boði er á höfuðborgarsvæðinu.
Upphafsmaður verkefnisins var
sá er þessar línur ritar. Gerð var
vefsíða þar sem sögu verkefnisins
er lýst. Lesendur er hvattir til að
skoða síðuna því þar er að finna
gagnlegar upplýsingar ef fræðast á
um lagningu ljósleiðara og lýsingu
á tækninni sem þar kom við sögu.
Slóðin er www.05.is/ljos.
Nýverið kom fram í fréttum að
byggð ætti undir högg að sækja
á Flateyri. Óskað var sérstaklega
eftir því að lagður yrði ljósleiðari
til bæjarins til að auka möguleika
á fjarvinnu. Kom fram að nú þegar
væri unnin fjarvinna í gegnum tölvur
í bænum en sökum takmarkaðrar
flutningsgetu í netsamskiptum
væri ekki hægt að auka þá vinnu.
Dræmar undirtektir munu hafa
fengist við bón bæjarbúa um
lagningu ljósleiðara til bæjarins. Ég
bendi bæjaryfirvöldum á að leggja
sjálf ljósleiðarastreng til bæjarins og
tengjast þannig landsneti ljósleiðara.
Einnig hefur komið fram að afleitt
atvinnuástand sé á Raufarhöfn.
Það sveitarfélag getur ekki heldur
státað af ljósleiðaratengingu. Hér
væri einnig ráð fyrir sveitarfélagið
að ráðast í lagningu ljósleiðara til
bæjarins.
Að lokum vill undirritaður benda
á tvennt:
1. Við hönnun og uppsetningu á
ljósleiðaraneti í dag skal
ávallt miða við 1.000 Mbits
flutningshraða til notanda, ekki
100 Mbits.
2. Ekkert nema ljósleiðari getur
tryggt nægilega öfluga og örugga
fjarskiptatengingu til framtíðar,
íbúum og fyrirtækjum til hags-
bóta.
Greinarhöfundur tekur að sér
ráðgjöf varðandi uppbyggingu á
ljósleiðarakerfum, s.s. frumvinnu,
gerð kostnaðaráætlunar, hönnun
ljósleiðarakerfis í samstarfi við
hönnuð, umsjón með jarðvegsvinnu,
tengingar í samstarfi við fagmenn á
því sviði og samninga við fjarskipta-
fyrirtæki um efnisveitu (internet,
sjónvarp o.s.frv.). Hægt er að hafa
samband í síma 695-3413 eða með
tölvupósti á netfangið á i@05.is.
Ingólfur Bruun
Höfundur er hugmyndasmiður
Fjarskiptafélags Öræfinga,
sjá nánar www.05.is/ljos
Ingólfur Bruun
Léttar, öflugar og ódýrar hliðgrindur
Hentugar fyrir bændur og veiðifélög
Tekið er við pöntunum á elvarey@gmail.com og om@mo.is
Stærri gerð:
Breidd 4,27 m, hæð 1 m. Þéttir möskvar.
Verð: 1 stk. kr. 24.900.
2-5 stk. kr. 21.900.
6 stk. eða fleiri kr. 19.900.
Minni gerð:
Breidd 1,50 m, hæð 1 m.
Verð 1 stk. kr. 14.900.
2-5 stk. kr. 11.900.
6 stk. eða fleiri kr. 9.900.
Verðið er
án VSK
Verðið er
án VSK
Aurasel ehf.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!