Bændablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 55
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Það er orðið nokkuð síðan nýtt
merki í „bílaflórunni“ var kynnt
hér á landi en á dögunum hóf
BL að flytja inn Dacia Duster
jepplinga frá Rúmeníu. Þegar
Jóhann Berg, sölumaður hjá BL,
hafði samband við mig og bauð
mér að taka bílinn heila helgi
til að prófa hann var ég ekki
lengi að drífa mig í BL og sækja
gripinn. Í bílnum er ekkert nýtt
sem ekki hefur komið í öðrum
bílum áður, en Dacia Duster er
að meirihluta í eigu Renault og
Nissan og verksmiðjan staðsett
í Rúmeníu. Samsetningin er að
drifbúnaður er úr Nissan og vél
og gírkassi frá Renault. Það litla
sem ég hafði heyrt um þennan bíl
var að hann ætti að vera ódýr og
væri einföld smíði og ætti því að
vera á mjög góðu verði, svo góðu
að búast mætti við nýju „Lödu
Sport æði“.
Ódýrasta útgáfan
ekki flutt til Íslands
Þrátt fyrir lágt verð er ódýrasti
bíllinn ekki fluttur inn vegna þess
að með breytingu á vöruflokkum
í innflutningi bíla fyrir um tveim
árum er enginn hagur í að flytja
inn ódýrasta bílinn frá Duster
vegna þess að hann færi í svo háan
vöruflokk (45%), en bíllinn sem er
í boði er í 20% vöruflokki.
Þegar maður skoðar verð miðann
á bílnum og ber hann saman við
aðra sambærilega bíla í sínum
stærðarflokki á maður verðsins vegna
ekki von á rafmagnsmótordrifnum
hliðar rúðum, rafmagns stillanlegum
hliðarspeglum, hita í sætum eða
USB-tengingu við útvarp, en allt
er þetta í Dacia Duster.
Nettur á fóðrum
Þegar ég sótti bílinn var óveðurs-
skotið 2. nóvember í hámarki og
fólk beðið að vera ekki á ferli að
nauðsynjalausu. Ekki var veðrið
mikið skárra daginn eftir en á sunnu-
deginum var þetta fína veður og ég
ákvað að taka stóran rúnt. Þegar upp
var staðið hafði ég ekið 470 km og
eytt aðeins um 30 lítrum af disíl,
eða tæplega 6,4 lítrum á hundraðið
að meðaltali.
Lágt gírhlutfall virkar vel í snjó
Akstursaðstæðurnar voru af öllu
mögulegu tagi fyrir utan að bíll-
inn var ekki prófaður á grófum
grjótslóða. Á glærum ís virkaði
spólvörnin vel og ABS bremsurnar
komu ekki of snemma inn þegar
neglt var niður í hálkunni. Í snjó er
gott að geta verið með jafn lágan
fyrsta gír og er í þessum bíl og
látið bílinn lulla áfram í gegnum
snjóþæfing með öll hjól læst. Sjálfur
á ég Nissan X-Trail með sama drif-
búnaði, en hann fer miklu hraðar í
fyrsta gír, sem mér finnst ókostur
í ófærð og snjó. Samkvæmt GPS-
mælingu í fyrsta gír og hægagangi
var Dacia Duster að fara 5,2 km á
klukkustund. Á holóttum malarvegi
á 80-90 km hraða var varla að maður
fyndi fyrir holunum og reyndi ég þó
sérstaklega að aka í verstu holurnar
til að prófa fjöðrunina.
Vélin skilar 110 hestöflum
Dísilvélin í bílnum er 1461cc (1.461
rúmsentímetri) og skilar bílnum 110
hestöflum. Ef verið er að taka fram
úr bíl og maður vill virkilega snerpu
fannst mér betra að gíra niður um
tvo gíra og gefa þá vel inn. Það sama
var að upp úr Hvalfjarðargöngunum
til norðurs var hann ekki að halda 70
í sjötta gír, en eftir að ég hafði gírað
niður um tvo gíra og gefið í þurfti
ég fljótlega að slá af til að forðast
myndatöku þarna inni í göngunum.
Mikil dráttargeta
Þrátt fyrir að mér hafi fundist
bíllinn toga lítið í brekkum er hann
uppgefinn með 1.500 kg dráttargetu
og bíllinn sjálfur ekki nema 1.294
kg.
Að keyra bílinn var þægilegt,
sæti gott og ekki skemmdi fyrir
sætishitarinn sem hitar upp á mitt
bak.
Öll stjórntæki eru á þægilegum
stöðum en ég verð að hæla
hönnuðunum fyrir að hafa sett rofana
til að opna og loka hliðarrúðunum
í mælaborðið í stað hurðanna, en í
hurðunum eru mun meiri líkur á að
raki skemmi stjórnrofana. Það sama
á um stillitakka fyrir hliðarspeglana,
en sá takki er á milli sætanna en
ekki úti í hurðum þar sem rakinn
er mestur.
Litlir speglar
Tvennt fannst mér vera neikvætt við
Dacia Duster, en í innanbæjarakstri
eru gírarnir leiðinlega lágir þótt það
henti vél í erfiðri færð. Sé keyrt á
jafnsléttu hefur vélin þó bæði tog og
orku til að lagt sé af stað í öðrum
gír og skipt síðan upp í fjórða. Eins
þótti mér hliðarspeglarnir full litlir.
Að öðru leyti var ég mjög ánægður
með bílinn þó svo að einhverjir
segi hann of dýran miðað við verð
á honum erlendis. Samt held ég að
miðað við búnað í bílnum séu góð
kaup í Dacia Duster.
Einn galli er þó á bílnum til
viðbótar en hann sóðar sjálfan
sig svolítið út að aftan. Hægt er
að fá bretta kanta sem aukabúnað,
sem ættu að minnka sóðaskapinn.
Einnig ætti það að verja bílinn
fyrir lakkskemmdum svo ég myndi
persónu lega hiklaust taka bílinn
með brettaköntunum. Einnig er
hægt að fá bílinn sem virðisaukabíl,
en þá fylgir honum skúffa úr plasti
sem hægt er að taka úr og er auðvelt
að þrífa ef svo ber undir.
Mjög hrifinn
Ýmsir kostir eru í boði varðandi
aukahluti og litaval, en best er að
skoða vef BL (www.dacia.is) eða
hafa samband við sölumenn Dacia
hjá BL. Ég verð að viðurkenna að
ég er mjög hrifinn af Dacia Duster
og gæti vel hugsað mér að eiga
svona bíl.
Vélabásinn
Dacia Duster, nýtt merki hjá BL í bílaflórunni á Íslandi:
Mjög álitlegur jepplingur frá Rúmeníu
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Verð: 6.170.777
Lengd: 4.440 mm
Breidd (án spegla): 1.855 mm
Hæð 1.635 mm
Hestöfl: 134@4000
Helstu mál:
Dusterinn er þannig hannaður að
hann dregur upp á sig óhreinindi
að aftan.
Brettakantar geta skipt miklu máli
ef menn vilja hlífa lakkinu á bílnum
fyrir grjótbarningi.
Hæð frá vegi undir lægsta punkt er 21 sentímetri, en hægt er að auka hana
með örlítið stærri dekkjum.
Myndir / HLJ
TOP N+ ... betra gler
Glerverksmiðjan Samverk ehf
Eyjasandi 2, 850 Hella
Gasfyllt gler, aukin einangrun.
Þekking - Gæði - Þjónusta
Sími. 565-1800.
Heimasíða: www.velbodi.is
Fyrirtæki til sölu
Til sölu er bifreiða- og búvélaverksæðið
Pardus ehf. á Hofsósi.
Á verkstæðinu er einnig starfrækt rafmagnsþjónusta.
Félagið er í fullum rekstri og vel tækjum búið. Starfsmenn eru 6-8.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks - Sími 453 5900