Bændablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 56
57Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Sundlaugin Laugaskarði er svoköll-
uð gegnumrennslislaug, hituð upp
með jarðgufu, sem tryggir eðlilegt
sýrustig og hreinleika vatnsins.
Laugin er í skjólsælli hvilft sem veit
gegn suðri, norðan Varmár við veg-
inn að Garðyrkjuskóla ríkisins að
Reykjum í Ölfusi. Við laugina eru
tveir heitir pottar, gufubað, líkams-
ræktaraðstaða og stökkbretti. Um
75 þúsund manns sóttu sundlaugina
heim árið 2011.
Sundlaugarbygging var eitt af
fyrstu verkefnum Ungmennafélags
Ölfusinga eftir stofnun 1935. Árið
1936 kom Lárus J. Rist sund kennari
frá Akureyri til Hveragerðis. Lárus
hafði um árabil unnið við sund kennslu
á Akureyri og 6. janúar 1907 vann
hann það afrek að synda yfir Eyja-
fjörð. Lárus gekk í Ungmennafélag
Ölfusinga og varð fljótlega mikil-
virkur í félagsstarfinu. Hann var stór-
huga og setti sér það markmið að í
Hveragerði skyldi byggð vegleg sund-
laug, stærsta sund laug landsins. Lárus
tók forystu í sundlaugar nefnd og valdi
sundlauginni stað í gilinu fyrir ofan
Varmá og fyrir neðan gróðurskálana
á Reykjum. Þar seytlaði volgur lækur
milli grasigróinna bakka og hjálpaði
hann til að grafið var fyrir lauginni
á þessum stað. Árið 1938 var vatni
hleypt í sundlaugina sem var 12 x
25 m. Menn héldu áfram uppbygg-
ingu og árið 1945 var komin 50 m
löng sundlaug með steyptum botni
og var þá lengsta sundlaug landsins.
Búningsklefar voru fyrir 30-40 manns
og áföst íbúð fyrir litla fjölskyldu.
Árið 1946 lét Lárus af störfum
fyrir aldurs sakir og ungur íþrótta-
kennari, Hjörtur Jóhannsson frá
Núpum, var settur kennari við skólana
í Hveragerði og Garðyrkjuskólann á
Reykjum. Hann var þá nýútskrif-
aður frá Íþróttakennaraskóla Íslands
á Laugarvatni. Hjörtur settist að í
Laugaskarði og tók við forstöðu stað-
arins og sundkennslu. Hann hélt áfram
uppbyggingu staðarins ásamt konu
sinni Margréti Þorsteinsdóttur. Alla
tíð voru þau hjónin vakin og sofin yfir
hag laugarinnar. Fyrirhyggja og fram-
sýni einkenndi störf þeirra og mikill
metnaður fyrir fögru umhverfi og
nýbyggingum í Laugaskarði. Hjörtur
gegndi starfi forstöðumanns frá 1946
til dauðadags árið 1985.
Nýframkvæmdir og breytingar við
sundlaugina hafa verið fjölmargar:
1949 – miklar endurbætur vegna
landsmóts UMFÍ
1955 – nýbygging búningsklefa
1963 – nýtt sundlaugarhús
1977 – heilsurækt tekin í notkun
1984 – sundlaugarbotn lagfærður
1985 – sjúkraþjálfunarstöð opnuð
1987 – nýbygging með náttúru-
legu gufubaði
Sundlaugin í Laugaskarði er opin frá
7.00-20.30 á virkum dögum nema á
föstudögum en þá er lokað klukkan
17.30. Um helgar er laugin opin frá
10.00-17.30.
Frekari upplýsingar má nálgast
með því að hringja í síma 483-4113
eða með því að senda póst á netfangið
laugaskard@hveragerdi.is.
Sundlaugin Laugaskarði, Hveragerði
Laugar landsins
Söfnunarstaður Flutningsaðili Sími Ullarpokar fást hjá Sími
Mosfellsbær Ístex hf. Völuteig 6. 566-6300 Ístex hf. Völuteig 6. 566-6300
Borgarnes Magnús Kristjánsson 434-1205 KB. Búrekstrardeild 430-5500
Snæfellsnes Velverk. Ystu Görðum 894-7257 Ragnar og Ásgeir Grundarfirði 430-8100
Búðardalur KM þjónustan Búðardal 434-1611 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Saurbær KM þjónustan Búðardal 434-1611 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Króksfjarðarnes KM þjónustan Búðardal 434-1611 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Barðaströnd Barði Sveinsson / Nanna 456-2019 Barði Sveinsson Innri-Múla 456-2019
Þingeyri Akstur og löndun ehf 897-6733 Neðri Hjarðardalur 456-8137
Flateyri Akstur og löndun ehf 897-6733 Akstur og löndun ehf 897-6733
Ísafjarðardjúp Akstur og löndun ehf 897-6733 Akstur og löndun ehf 897-6733
Hólmavík Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt. 892-4646
Bitrufjörður Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt. 892-4646
Borðeyri Strandafrakt 892-4646 Þórarinn Ólafsson, Bæ 1 894-9468
Hvammstangi Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag V-Hún, pakkhús 455-2325
Blönduós Ullarþvottastöð 483-4290 Vörumiðlun á Blönduósi 455-6600
Sauðárkrókur Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag Skagfirðinga, Verslunin Eyri. 455-4610
Akureyri Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi Oddeyrargötu 460-3350
Húsavík Rúnar Jóhannsson 847-6616 Úddi Fóðurvöruverslun. Trausti 464-3450
Mývatn Rúnar Jóhannsson 847-6616 Úddi Fóðurvöruverslun. Trausti 464-3450
Kópasker Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Þórshöfn Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Vopnafjörður Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Egilsstaðir Baldur Grétarsson 861-1961 Fóðurblandan, Egilsstöðum 570-9860
Höfn Sigurður Rúnar Magnússon 848-4505 KASK Höfn Hornafirði 470-8222
Kirkjubæjarklaustur Sigurður Rúnar Magnússon 848-4505 N1 - Kirkjubæjarklaustri 487-4628
Vík Sigurður Rúnar Magnússon 848-4505 Klakkur verslun 487-1223
Hvolsvöllur Þórður Jónsson 893-2932 Þórður Jónsson 893-2932
Flúðir Þórður Jónsson 893-2932 Flúðaleið 486-1070
Selfoss Þórður Jónsson 893-2932 Fóðurblandan 482-3767
Móttökustaðir fyrir ull og afhending umbúða
Út er komin bókin
„Gísli á Uppsölum“
eftir Ingibjörgu
Reynisdóttur. Gísli
Oktavíus Gíslason
á Uppsölum
bjó einn á bæ
sínum í Selárdal
í Arnarfirði.
Hann hafði
hvorki rafmagn
né rennandi vatn og
enga hitaveitu af neinu tagi.
Á veturna sat hann aleinn í niða-
myrkri heilu sólarhringana, kapp-
klæddur til að reyna að halda frá
sér nístandi kuldanum. Þegar verstu
óveður gengu yfir þurfti hann að
skríða til gegninga. Oft liðu margir
mánuðir án þess að hann talaði við
nokkurn mann. En Gísli var líka
hugsandi maður, skrifaði um líf sitt
og skoðanir og orti ágæt kvæði.
Gísli varð landsfrægur þegar
Ómar Ragnarsson gerði sjónvarps-
þátt um ævi hans árið 1981. Fólk
sat agndofa við skjáinn og trúði því
varla að svona gæti nokkur maður
lifað á 20. öld. Margir hrifust af
nægjusemi Gísla og æðruleysi hans.
En á bak við myndina af hinum
sérlundaða og heimspekilega ein-
setumanni lágu einnig aðrir þræðir
frá gleymdum tíma. Í fortíð Gísla
leyndust bæði grimmilegt einelti
og brostnir draumar um ástir og
hamingju.
Ingibjörg Reynisdóttir hefur
skrifað hina hrífandi sögu um Gísla á
Uppsölum þannig að allir geta notið.
Þetta er einlæg frásögn og stundum
átakanleg, en einnig grípandi og
skemmtileg. Bókin hefur þegar
vakið mikla athygli, enda geymir
hún skýra og fallega og örlítið sorg-
lega lexíu frá horfnum tíma, sem þó
er sígild: Að okkur ber að gæta okkar
minnstu bræðra.
Saga Gísla á
Uppsölum