Bændablaðið - 15.11.2012, Side 57
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Bjarni Valur hóf félagsbúskap með
foreldrum sínum Kristrúnu Jóns-
dóttur og Guðmundi Kristmunds-
syni árið 1984. Hann kynntist konu
sinni, Gyðu Björk, árið 1987 og
tóku þau alfarið við búskapnum
árið 1996.
Býli? Skipholt 3.
Staðsett í sveit?
Hrunamannahreppi.
Ábúendur? Bjarni Valur
Guðmundsson og Gyða Björk
Björnsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Kristrún móðir Bjarna, Bjarni Valur
og Gyða Björk ásamt börnum sínum;
Bergsteini Birni, Jóni og Guðrúnu
Eddu. Auk þess þrír smalahundar
og fjósköttur.
Stærð jarðar? 350 hektarar.
Gerð bús? Blandað bú, kýr, kindur
og hestar.
Fjöldi búfjár og tegundir? 130
nautgripir, þar af 50 mjólkurkýr,
225 vetrarfóðraðar kindur og 24
hross!
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Mjaltir kvölds og morgna, líka á
jólunum. Þessa dagana fer allur
aukatími í hesthúsbyggingu.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það er fátt sem er
leiðinlegt, en smalamennska og
fjárrag er ávallt skemmtilegt. Vorið
er svo yndislegur tími.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Með svipuðu sniði en vonandi
í góðri framþróun.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Í góðum málum
en alltaf má gera betur.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Vel utan ESB og með sjálfbærri
nýtingu landsins gæða.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Sérstaða íslensk land-
búnaðar, hreinleiki og gæðafram-
leiðsla.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólkurvörur og grænmeti.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar kvígurnar sluppu
saman við kvígur frá næsta bæ og
þær reknar inn í kálfafjósið þar sem
gólfið hrundi og nokkrir gripir fóru
ofan í haughús sem var leiðinlega
fullt. Það fór allt vel með góðra
manna hjálp og sannaðist þá að gott
er að eiga góða nágranna. Einnig
var gaman þegar nýtt fjós var
tekið í notkun 15. mars 2006.
Guðrún Sturlaugsdóttir hönnuður
og eigandi Gastu, þar sem fram-
leiddir eru fylgihlutir úr leðri
og laxaroði, ákvað ásamt manni
sínum að breyta um lífsstíl fyrir
tveimur árum. Þau byrjuðu á því
að henda út „sukk“-vörum úr
eldhús skápunum, eins og nammi,
kökur, kex og fleira, og hætt að
kaupa það inn. Í dag, 40 kílóum
síðar hjá Guðrúnu, er enginn
hvítur sykur eða hvítt hveiti til á
heimilinu. Hún hefur verið dugleg
að búa til sínar eigin uppskriftir
og heldur úti síðu á Fésbókinni
sem nefnist Heilshugar.
„Við notum meira af ávöxtum og
grænmeti og í stað sykurs nota ég
Steviu sem er náttúrulegt sætuefni.
Ég á einnig til 70% súkkulaði sem
ég baka stundum úr sem dæmi. Það
gengur vel að halda sig við efnið.
Ég ráðlegg fólki að skoða skápana
sína vel og pæla í hvað stendur aftan
á umbúðunum, hvað fólk er með
í skápunum sínum og byrja smátt
og smátt að skipta út rusli fyrir
heilbrigðan, góðan og náttúrulegri
mat. Mörg matvæli eru stútfull af
sykri og aukaefnum sem margir átta
sig ekki á. Maður þarf bara að vera
meðvitaður um hvað maður kaupir
inn á heimilið og þar sem margir
eiga börn er gott að benda á að það
erum við sem kaupum inn á heimilið
og ráðum hvað börnin borða og við
erum þeirra fyrirmyndir, svo þar
liggur oft vandinn þegar börn eru
of þung börn,“ segir Guðrún, sem
gefur hér innsýn í hvernig matseðill
heimilisins fyrir einn dag getur litið
út:
Morgunmatur: Hafragrautur með
chiafræjum, frosnum eða ferskum
bláberjum.
Millimál: Hristingur sem ég bý
mér til úr ávöxtum, grænmeti eða
öðru góðu sem ég á í ísskápnum.
Eða tvö hrökkbrauð með hummus
og banana.
Hádegisverður: Við förum oft
og borðum úti í hádeginu því það er
mikið úrval til af hollum skyndibitum.
Millimál: Ávöxtur og prótínstöng
(helst heimatilbúin, sjá uppskrift).
Kvöldverður: Grænmetislasagna
sem er algjört nammi. Ég hef haft
þetta í kvöldmat fyrir sveitamann
og hann varð voða hissa hvað þetta
smakkaðist vel og fannst alveg
magnað að það væri ekkert kjöt í
þessu lasagna.
Bilað góðar súkkulaðiprótínstangir!
(Aðeins um 100 kaloríur hver stöng!)
Innihald í 12 stangir:
› ½ bolli haframjöl
› 2 msk. (um 40 g) vanillu 100%
mysuprótín, t.d. frá Nutramino
› 1 tsk. kanill
› 30 g saxaðar möndlur
› 30 g rúsínur
Öllu þurrefni blandað saman í skál.
Í sér skál er eftirfarandi blandað saman:
› 30 g súkkulaði (70% súkkulaði)
› 50 g hnetusmjör
› ½ bolli hrísmjólk (eða annar vökvi,
mjólk eða vatn!)
› 15 g hunang
Aðferð:
Þetta er sett í örbylgjuofn í um 30-40
sekúndur og síðan blandað við
þurrefnið og allt hrært vel saman. Best
er að taka til dæmis formkökuform eða
annað kassalaga form og setja í það
smjörpappír sem hylur vel allt formið
og hella blöndunni ofan í botninn.
Sett í frysti í nokkrar klukkustundir
og síðan tekið út og skorið í 12 bita.
Best er að geyma þetta síðan í frysti
eða kæli, það er til dæmis hægt að
pakka hverjum bita inn í smjörpappír.
Mexíkósk kjúklingasúpa
› 2-3 hvítlauksrif
› 1-2 laukar saxaðir og steiktir í kókosolíu
í potti
› 2 dósir hakkaðir tómatar (án sykurs),
skellt út í
› 1 l tómatsafi (án sykurs), bætt við
Aðferð:
Þegar allt innihaldið er komið í pott
er það látið krauma. Síðan er rifnum
grilluðum kjúklingi bætt við og
súpan krydduð að vild, til dæmis með
cayenne-pipar, salti, pipar, chili, fersku
kóríander og svo framvegis. Borið
fram með sýrðum rjóma og ferskum
kóríander.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
MATARKRÓKURINN
Heilshugar að breyttu mataræði
Skipholt 3
Prótínstangirnar hennar Guðrúnar eru hollur og góður skyndibiti þó að þær innihaldi bæði súkkulaði og hnetusmjör.