Bændablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 59
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2012
Íslensk hönnun
H
austsýning Handverks og hönnunar fór fram
dagana 2.-5. nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur
og er þetta í áttunda sinn sem sýningin er haldin.
Um 150 þátttakendur sóttu um að fá að vera með að
þessu sinni, svo úr vöndu var að ráða fyrir dómnefndina,
sem valdi 57 aðila úr til að sýna verk sín. Listamennirnir
sjálfir kynna vörur sínar á sýningunni, þar sem gefur að
líta fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun.
Fjölmargir gestir heimsóttu sýninguna nú sem endra-
nær, enda margt áhugavert að sjá. /ehg
Handverk og hönnun:
Mikil aðsókn alla dagana
Keramikerinn Ragna Ingimundardóttir sýnir áhugasömum verk sín.
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir sem rekur Stúdíó Subbu var með vörur sínar
úr gleri og leir.
-
samfellur og smekki úr lífrænni bómull.
Þessir skemmtilegu jólasveinar vöktu athygli gesta, en Sigríður Júlía
Bjarnadóttir hefur gert þá í rúm tuttugu ár. Þeir eru gerðir úr íslenskri ull,
gæru, leðri og leir og standa á hrauni.
Að norðan var Horny Viking mættur, Guðmundur Örn Ólafsson og Sigurlaug Leifsdóttir, en Guðmundur stundar
eldsmíði svo úr verða meðal annars hnífar, horn og hálsmen.
María Manda umbúðahönnuður hlaut Skúlaverðlaunin í ár, fyrir besta nýja hlutinn meðal þátttakenda á sýningunni,
fyrir þessi standandi pakkakort. Þau eru hluti af jólakortalínu sem samanstendur af fjórum tegundum jólakorta og
pakkakorta. Sjá hér einnig að neðan.
Sími: 575 1111 • thorsverk@thorsverk.is
ÓRSVERK
ehf.
Vantar þig vatn?
Þjónustum m.a. bændur, sveitarfélög, sumarbústaðaeigendur og verktaka.
Traustir og ábyrgir aðilar.
Gerum verðtilboð ykkur að kostnaðarlausu.
Við borum eftir vatni um land allt!