Fréttablaðið - 28.04.2012, Síða 44
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473, Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Verkefnið „Sælkeralandið Ísland / Iceland Local Food Guide“ er fjölmiðlunarverkefni þar sem finna má upplýsingar um veitinga-
staði og framleiðendur um allt land sem bjóða upp
á staðbundinn íslenskan sælkeramat og íslenskar
sælkeraafurðir. Upphafsmaður verkefnisins er Vala
Matt, arkitekt og sjónvarpskona, en hún er mikill
sælkeri og áhugamaður um sælkeramat. Hugmynd-
ina fékk hún fyrir ári þegar hún ferðaðist um landið.
„Ég var að vinna að verkefni úti á landi og lenti
í erfiðleikum með að finna veitingastaði sem seldu
mat úr fersku íslensku hráefni. Núna hefur orðið
algjör bylting um allt land hjá veitingastöðum og
framleiðendum. Svo er náttúrulega ævintýralegt úr-
val staða hér í Reykjavík. Bæði innlendir og erlendir
ferðamenn sem ferðast um landið vilja borða eitt-
hvað annað en dæmigert sjoppufæði.“ Hún segist
ekki hafa fundið neinar góðar upplýsingar á einum
stað um þá fjölda staða sem í boði eru á lands-
byggðinni og ákvað því í kjölfarið að hella sér út í
verkefnið.
MEGINÁHERSLAN Á SÆLKERABÆKLING
Að hennar mati var vænlegast til árangurs að búa
til fallegan bækling og heimasíðu á netinu. Þar væri
hægt að nálgast nauðsynlegar upplýsingar um veit-
ingastaði og framleiðendur í Reykjavík, á Akureyri
og á landsbyggðinni. Bæklingurinn er að hennar
sögn miðpunktur verkefnisins en vefurinn hugsaður
sem fyrsti viðkomustaður ferðamanna. Þar geti þeir
kynnt sér úrvalið áður en þeir heimsækja Ísland eða
áður en lagt er af stað út á land. Einnig er vefurinn
gagnlegur þegar farið er út að borða í Reykjavík en
á honum er hægt að fara inn á heimasíður staðanna,
bæði í tölvu eða snjallsímanum. „Bæklingurinn
mun ekki bara kynna veitingahús og framleiðendur
heldur einnig innihalda spennandi uppskriftir og
umfjöllun um sælkeralandið Ísland.“
Vala segir að þrátt fyrir alla þá tækni sem við
búum við í dag sé gott að hafa slíkan bækling í
höndunum í stað þess að stóla einungis á fartölvur,
spjaldtölvur og snjallsíma. „Nettengingar víða um
land eru misgóðar, meira að segja þótt netið sé í
símanum. Ef maður dettur inn á milli fjalla getur
sambandið verið slæmt. Því fannst mér heppilegast
að leggja áherslu á bæklinginn sem miðpunktinn til
að hafa yfirsýnina alltaf við höndina enda gott að
hafa hann í vasanum eða hanskahólfinu í bílnum.“
Sérstaða verkefnisins er að hennar sögn sú að hér
er í fyrsta skipti hægt að fá aðgang að samanteknum
upplýsingum um sælkeralandið Ísland í heild sinni.
VEITINGASTAÐIR Á HEIMSMÆLIKVARÐA
Vefurinn icelandlocalfoodguide.is er kominn í loftið
og verið er að leggja lokahönd á íslensku síðuna.
Bæklingurinn verður tilbúinn í maí. Inni á vefnum
má finna upplýsingar frá hverju landsvæði fyrir sig.
Þar eru einnig skemmtileg myndbrot frá ýmsum
veitingastöðum á landsbyggðinni og fleiri mynd-
bönd eru væntanleg innan skamms segir Vala.
Bæklingnum verður dreift á alla ferðamannastaði, til
dæmis hótel, veitingastaði og upplýsingamiðstöðv-
ar fyrir ferðamenn um allt land. Hann verður bæði
á íslensku og ensku en upphaflega stóð bara til að
hafa hann á ensku.
Vala segist þó hafa séð fljótlega að bæklingurinn
ætti jafn vel við Íslendinga sem erlenda ferðamenn.
Enda eru margir þessara veitingastaða í algjörum
sérflokki að hennar sögn. „Það er búið að vera
þvílíkt ævintýri að kynnast öllum þessum frábæru
veitingastöðum og framleiðendum. Ég er búin að
uppgötva marga staði sem ég vissi ekki að væru til
og eru í algjörum sérflokki. Þeir eru að framreiða
mat sem gæti sómt sér vel á bestu veitingahúsum í
London, París og Róm. Þetta er því algjört sælkera-
ævintýri.“
SÆLKERALANDIÐ ÍSLAND UPPGÖTVAÐ
GÓÐIR STAÐIR Undanfarin ár hafa sprottið upp veitingastaðir og matvælaframleiðendur sem leggja áherslu á ferskt íslenskt hrá-
efni. Nú geta ferðamenn nálgast þessar upplýsingar á einum stað.
ÆVINTÝRI
„Það er búið að vera því-
líkt ævintýri að kynnast
öllum þessum frábæru
veitingastöðum og fram-
leiðendum,“ segir Vala
Matt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN