Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.09.2012, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 28.09.2012, Qupperneq 1
veðrið í dag VIÐSKIPTI Lýður og Ágúst Guð- mundssynir, stofnendur Bakka- varar, hafa varið um sex milljörðum króna í kaup á hlutum í Bakkavör af íslenskum aðilum, samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins. Á meðal þeirra sem hafa selt þeim hluti eru þrotabú Glitnis og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis- ins. Bræðurnir buðu fyrst um 70 aura í hverja nafnverðskrónu en bjóðast nú til þess að kaupa á yfir eina krónu. Innra virði félagsins miðað við eigið fé er 20 milljarðar. Á hluthafafundi Bakkavarar Group í gær var samþykkt að slíta íslenska félaginu en kröfuhafar eignast á móti hlut í nýju bresku móðurfélagi samstæðunnar. Á aðal- fundi Bakkavarar í maí var sam- þykkt að leyfa bræðrunum að kaupa fjórðungshlut í félaginu á um fjóra milljarða. Heimildir Fréttablaðs- ins herma að aðilar á þeirra vegum hafi síðan reynt að kaupa út aðra hluthafa. Hefur þeim orðið nokkuð ágengt og eiga nú ríflega 30% hlut í félaginu. Greint hefur verið frá því að félög í eigu bræðranna, Korkur Invest og BV Finance, hafi undan- farið komið með umtalsverða fjár- muni til landsins í gegnum fjár- festingarleið Seðlabankans. Þannig greindi Morgunblaðið frá því í gær að bræðurnir hefðu komið með 463 milljónir til landsins í júlí og þá gaf Korkur Invest út 1,5 millj- arða skuldabréf í maí eftir að hafa nýtt sér fjárfestingarleiðina. Fjár- festingarleiðin er liður í áætlun stjórnvalda um afnám gjaldeyris- hafta en með henni er fjárfestum gefinn kostur á að kaupa krónur fyrir erlendan gjaldeyri með um 20% afslætti. Stærsti einstaki hluthafi Bakka- varar nú er Arion banki með 34% hlut. Þá á Lífeyrissjóður verzlun- armanna 7% og Gildi lífeyrissjóð- ur um 5%. Þessir aðilar hafa stað- ið gegn því að bræðurnir eignist meirihluta í félaginu. Vill hópurinn frekar ræða við erlenda aðila sem hafa lýst yfir áhuga á að kaupa hluti á allt að 1,5 krónur á hlut. Þær þreif- ingar eru þó á frumstigi. - þsj / mþl PRENTSMIÐJURFÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 KynningarblaðPrentið hefur breystJólabók fyrir 50 árumTinni vekur athygliFyrsta prentunBlekið Ísafoldarprentsmiðja mun í nóvember taka í notkun hrað-virkustu og fullkomnustu arkar prentvél landsins. „Þessi viðbót gerir okkur kleift að framleiða stærstu arkaprents-verkefnin og öll helstu um-búðaverkefnin í mestu mögu-legum gæðum,“ segir Haraldur Þór Jónsson, sölu- og markaðs-stjóri. Í safoldarprentsmiðjan fagnar 135 ára af-mæli á þessu ári með því að koma af full-um krafti inn á umbúðamarkaðinn. Fullkomnasta arkaprentvél landsins„Við höfum gengið frá kaupum á nýrri arka-prentvél sem verður sú fullkomnasta og hrað-virkasta á íslenskum prentmarkaði. Hún er einnig með stærsta prentformatinu á landinu. Vélin verður komin í gang í nóvember,“ segir Haraldur Þór Jónsson, sölu- og markaðsstjóri Ísafoldarprentsmiðju. Hjá Ísafold er ávallt reynt að koma til móts við þarfir viðskiptavin-anna og eftir fjölda óska um umbúðaprent-anir var ákveðið að fara í þetta stóra verkefni. „Þessi viðbót gerir okkur kleift að framleiða stærstu arkaprentsverkefnin og öll helstu um-búðaverkefnin í mestu mögulegum gæðum.“ Ábyrgur rekstur Ísafold er eitt þeirra fyrirtækja sem státað geta af því að hafa farið í gegnum hrunið og krepp- una en standa enn á uppréttum fótum. „Við finnum fyrir því að fyrirtæki og einstakling- ar vilja í auknum mæli skipta við þá sem hafa staðið sig í kreppunni og eru með ábyrgan rekstur. Við erum að fara í fyrstu stóru fjár- festingu prentiðnaðarins á Íslandi f iog sjáu góða gengi má þakka starfsfólki Ísafoldar- prentsmiðju sem hefur lagt mikla vinnu í að auka vöruframboðið og bæta þjónustuna. Það hefur skilað sér í fleiri viðskiptavinum og ánægðari. Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing.“ Lækkað verð til frambúðarHaraldur segir fyrirtæki mun opnari fyrir því að skoða nýjar leiðir til hagræðingar í rekstri nú en áður. „Við höfum hlustað á okkar við- skiptavini og fundið ódýrari lausnir fyrir þá. Til dæmis höfum við náð frábærum á angri með nýj l Ísafoldarprentsmiðja fer í umbúðaframleiðslu-Stærsta fjárfesting í prentiðnaðinum eftir hrun „Við erum full tilhlökkunar að takast á við umbúðamarkaðinn og teljum okkur geta lækkað þar verð til frambúðar,“ segir Haraldur og hvetur alla umbúðanotendur til að hafa samband við Ísafoldarprentsmiðju. MYND/ANTONPRENTAÐ Í 135 ÁRÍsafoldarprentsmiðja er elsta prentsmiðja landsins, stofnuð 1877 og hélt því upp á 135 ára afmæli sitt á þessu ári. Daglega eru þar prentuð 90.000 eintök af Fréttablaðinu sem dreift er inn á heimili landsmanna. Þar eru leystar allar prentþarfir fyrirtækja og reglulega prentuð dag- blöð, fjölpóstur, bæklingar, tímarit, ársskýrslur, umbúðir, bréfsefni, umslög, nafnspjöld og fleira. Ísafoldarprentsmiðja er með umhverfisvottun Svansins og er aðili að rammasamningi Ríkis- kaupa. Hjá fyrirtækinu starfa 60 manns í 7.000 fermetra húsnæði í Suðurhrauni 1 í Garðabæ. Kynningarblað Þvottalaugar, þvottaráð, þvottastaðreyndir, þvottavélar, þvottaefni ÞVOTTAVÉLAR FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2012 &ÞVOTTAEFNI Milt án ilmefnaMilt er án allra ilmefna. Ilmefni geta orsakað ofnæmisviðbrögð, jafnvel þó aðeins sé um litla lykt að ræða. Of- næmi getur lýst sér sem erting í húð, útbrot og öndunaróþægindi. Ilmefni hafa ekki áhrif á hreinsivirkni þvotta- efnis og eru því ekki nauðsynleg. Milt án bleikiefnaMilt inniheldur ekki ljósvirk bleiki- efni, en slík efni geta valdið ofnæmi og eru skaðleg umhverfinu. Með notk- un á Milt-þvottaefni verndar þú um- hverfið þar sem minni losun er á efnum sem fara út í vatnið og geta skaðað lífríkið. Þvottaefni án bleiki- efnis er ekki aðeins umhverfisvænt heldur fer það einnig betur með trefj- ar fataefna. Milt fyrir barniðMilt fyrir barnið er sérstaklega þróað til þess að vernda húð barnsins, þar sem hún er oft þunn og viðkvæm. Börn geta verið viðkvæm gagnvart litar- og aukaefnum og er þeim hætt við að fá ofnæmi, útbrot eða exem. Því þarf að huga vel að hvaða þvottaefni skal nota við þrif á fatnaði, rúmfötum, handklæðum og taubleyjum.Þvoðu oftar með MiltMilt þvottaefni er sérþróað fyrir ís- lenskar aðstæður. Á Íslandi er vatn- ið steinefnasnautt („mjúkt“), en eigin- leikar vatns hafa áhrif á hversu vel þvottaefni nýtist. Of mikið magn þvottaefnis í hverjum þvotti getur aukið hættu á ofnæmi og mengun á umhverfinu. Þar sem Milt er sérþró- að fyrir eiginleika íslenska vatns- ins fást fleiri skammtar úr hverjum pakka. 2 kg af Milt-þvottaefni duga í alls 40 þvotta. Með minni skammta- stærð sparar þú peninga og verndar um leið náttúruna. Með not kun Milt-þvottaefn- is verndar þú húðina, umhverfið og styrkir íslenskan iðnað. Milt þvottaefni fyrir íslenskar aðstæður Mjöll Frigg er stærsti framleiðandi hreinlætisvara á Íslandi og hefur í áratugi þróað vörur sínar með þarfir íslenska markaðarins að leiðarljósi. Mjöll Frigg framleiðir Milt þvottaefni. Milt er umhverfisvænt og án ofnæmisvaldandi efna. ELDAÐ MEÐ HOLTAHOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónv p þátti Eld ð OF MIKIÐ KAFFI? Eiga kaffibollarnir það til að verða ívið margir yfir daginn? Í einum bolla af uppáhelltu kaffi eru 100 milligrömm af koffíni. Í svörtu tei eru hins vegar aðeins 35 milligrömm. Ef þú hefur áhyggjur af koffíninntökunni er ráð að skipta út öðrum hverjum k ffibolla fyrir te. VÖNDUÐ VARA ÁRATUGA REYNSLA HITAKÚTAR RYÐFRÍIR 28. SEPTEMBER 2012 HJÖRDÍS GISSURAR HEIMSÓTT HREFNA SÆTRAN BARNSHAFANDI FRÆGIR Á FRUMSÝNINGU MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Föstudagur skoðun 16 4 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Lífið Þvottavélar Prentsmiðjur 28. september 2012 228. tölublað 12. árgangur milljarða króna greiddu Bakka- vararbræður fyrir fjórð- ungshlut í Bakkavör. 4 Meðan þú sprettir úr spori þá sprettur svitinn fram. Taktu hressilega á því án þess að hafa áhyggjur. Maður verður að ná andanum. RISAlagersala Forlagsins er á Fiskislóð 39 Opið alla daga kl. 10–19 Yfir 2500 titlar90 % afslát tur Allt a ð Erum ekki ofurgrúppa Hipphoppbræðingssveitin Fallegir menn er skipuð þekktum mönnum úr íslensku tónlistarlífi. popp 38 TÓNLIST Tónlistarhátíðin Sónar verður haldin í fyrsta sinn í Hörpu dagana 14. til 16. febrúar. Þetta staðfesti skipuleggjandinn Björn Steinbekk við Fréttablaðið en gat að öðru leyti ekki tjáð sig um hátíðina né hverjir koma þar fram. Hátíðin hefur verið haldin í Barcelona frá 1994. Frá 2002 hefur hátíðin fært út kvíarnar. meðal annars til Tókýó, Höfðaborgar, London, Buenos Aires, Seúl og nú Reykjavíkur. Meðal flytjenda á Sónar í sumar voru Fatboy Slim, New Order, Hot Chip og Squarepusher. - fb / sjá síðu 38 Heimsþekkt tónlistarhátíð í Hörpu í febrúar: Sónar-hátíðin til Íslands LANA DEL REY Kom fram á Sónar í Barcelona í sumar. STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir hyggst hætta í stjórnmálum fyrir kosningar næsta vor. Hún segir að í heildina litið sé hún ánægð með þann árangur sem náðst hefur á hennar langa ferli í stjórnmálum, þó eðlilega hafi skipst á skin og skúrir. Þegar hún lætur af störfum mun hún hafa setið á Alþingi í 35 ár. „Ég er sérstaklega ánægð með þetta tímabil mitt sem forsætis- ráðherra, en ég ætlaði nú aldrei að taka það að mér. Ég hafði hugleitt að hætta að loknu kjörtímabilinu 2007, en það sér enginn sína ævina fyrr en öll er og hrunið gerði auð- vitað strik í reikninginn.“ Jóhanna segir ríkisstjórnina hafa náð mjög góðum árangri við endur- reisn samfélagsins og hún skili af sér góðu búi hvað Samfylkinguna varðar. Hún segir það ekki sitt heldur landsfundar að hafa skoðun á eftirmanni sínum. „Ég hef mjög sterkar skoðanir á því að minn flokkur eigi að halda áfram því góða verki sem þessi ríkisstjórn hefur unnið, að innleiða jafnaðarstefnuna enn betur inn í samfélagið.“ Fréttablaðið ræddi við nokkra sem nefndir hafa verið sem arf- takar Jóhönnu. Af þeim vildi eng- inn nema Össur Skarphéðinsson útiloka formannsframboð. - kóp /sjá síðu 6 Samfylkingin kýs sér nýjan formann á landsfundi í byrjun næsta árs: Jóhanna hættir í stjórnmálum BJART MEÐ KÖFLUM sunnan og vestan til en úrkoma norðan- og austanlands. Strekkingsvindur um tíma. Hiti á bilinu 0 til 9 stig. VEÐUR 4 6 4 5 5 8 Vill styrkja tengslin Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hefur sent frá sér ljóðasafnið Hjaltlandsljóð. tímamót 22 Þetta er illskiljanlegt Rektor HR undrast að þurfa að sæta meiri niðurskurði en aðrir háskólar. föstudagsviðtalið 12 Milljarðastríð um Bakkavör Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa varið um sex milljörðum í kaup á hlutum í Bakkavör. Stórir aðilar standa gegn því að bræðurnir eignist meirihluta. MIKKI MÆTTUR Mikki mús birtist óvænt í Smáralindinni í gær til að kynna nýja matreiðslubók frá Disney. Að sögn kunnugra var heilmikið mál að fá þessa stórstjörnu til landsins en Mikki mun einnig heilsa upp á gesti á tónleikum Sinfóníunnar í Hörpu á morgun þar sem spiluð verða þekkt lög úr Disney-kvikmyndum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HK í stuði Íslandsmeistararnir halda áfram að blása á hrakspár. sport 34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.