Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.09.2012, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 28.09.2012, Qupperneq 22
FÓLK|HELGIN Alþjóðlegi hjartadagurinn verður haldinn hátíðlegur um víða ver-öld á morgun. Á Íslandi samein- ast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, og Heilaheill um að halda daginn og leggja helgina undir. Á hverju ári er tilteknu málefni gerð skil á hjartadaginn og í ár er áherslan á forvarnir gegn hjarta- og æðasjúkdóm- um hjá konum og börnum. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum strax í frumbernsku heilbrigða lífshætti sem einkennast af neyslu á hollum mat, tóbakslausu lífi og því að hreyfa sig reglulega. Þó þetta hljómi skynsamlega leiðir nýleg rann- sókn, sem gerð var í fjórum löndum og náði til 4.000 fullorðinna, í ljós að helmingur þátttakenda taldi sig þurfa ekkert að hugsa sérstaklega um hjartað til að halda því heilbrigðu fyrr en upp úr þrítugu í fyrsta lagi. Þetta er í sam- ræmi við niðurstöður Capacent Gallup- könnunar Hjartaverndar frá árinu 2009. Í henni var ítarlega spurt um vitund og þekkingu almennings á hjarta- og æða- sjúkdómum og áhættuþáttum þeirra. Samkvæmt könnuninni var þekkingin minnst meðal yngra fólks og sögðust 53 prósent 25-34 ára hafa mjög litla eða enga þekkingu á áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma en hlutfallið var 29% meðal 55-64 ára. Mýtan um að hjartasjúkdómur sé sjúkdómur karla, þeirra eldri og oft betur stæðu er sömuleiðis lífseig. Hið rétta er að jafn margar konur deyja árlega og karlar vegna hjarta- og æða- sjúkdóma á heimsvísu. Til að að setja umfang hjarta- og æðasjúkdóma í sam- hengi má benda á að rúmar 17 milljónir manna deyja á ári hverju í heiminum úr hjarta- og æðasjúkdómum en rúmar 3,8 milljónir deyja úr malaríu, alnæmi og berklum samanlagt. Hjartasjúkdómur er dánarorsök einnar konu af hverjum þremur sem deyja í heiminum. Á ári hverju fæðist ein milljón barna með hjartagalla og á Íslandi fæðast allt að 60 börn á ári. Góðu fréttirnar eru þær að hægt er að fyrirbyggja stóran hluta hjartasjúkdóma og heilaáfalla með því að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl strax á unga aldri. Í tilefni dagsins verður meðal annars efnt til hjartagöngu um Laugardalinn. Gangan hefst við anddyri Laugardals- hallar klukkan 10.30. Þá verður boðið upp á bronsleika fyrir börn og hjarta- dagshlaup en nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á www.hjarta- heill.is. KONUR FÁ LÍKA FYRIR HJARTAÐ Alþjóðlegi hjartadagurinn er á morgun. Í ár verður lögð sérstök áhersla á for- varnir gegn hjarta- og æðasjúkdómum hjá konum og börnum. Fjölbreytt dag- skrá verður hér á landi, þar á meðal hjartaganga um Laugardal. DÁNARORSÖK EINNAR AF HVERJUM ÞREMUR Jafn margar konur og karlar deyja úr hjarta- og æðasjúkdómur á ári hverju. Hjartasjúkdómur er dánarorsök einnar konu af hverjum þremur sem deyja í heiminum. Auk þess 20% afsláttur af nokkrum gerðum af kjólum, tunicum bolum og jökkum Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Verslunin Belladonna á Facebook Tilboðið gildir til 30. september 20% afsláttur af svörtum síðbuxum frá og Vísindavaka Rannís verður haldin í Háskólabíói í kvöld. Markmiðið er að kynna vísindamennina sem standa að baki rannsóknum á hinum ýmsu sviðum og vekja athygli á fjölbreytni og mikilvægi vísindastarfs í landinu. „Vísindin eru allt í kringum okkur og skipta miklu í okkar daglega lífi. Vísinda- mennirnir að baki þeim eru hins vegar ekki alltaf mjög sýnilegir. Á Vísindavöku gefum við almenningi kost á að hitta vísindamennina sjálfa og spyrja þá spjör- unum úr. Við erum að skapa samræðu milli vísinda og almennings og er þetta eitt besta tækifæri sem til þess gefst hér á landi,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, kynn- ingarstjóri Rannís. Dagurinn er tileinkaður evrópskum vísindamönnum og haldinn hátíðlegur í 320 borgum í Evrópu undir heitinu Researchers‘ Night. „Erlendis er við- burðurinn kynntur sem samverustund fjölskyldunnar og lögð áhersla á að hann sé haldinn miðsvæðis svo sem flestir geti notið. Hér tökum við í sama streng enda tel ég Vísindavöku vera frábært tækifæri fyrir fjölskyldur til að gera eitthvað öðru- vísi saman á föstudagskvöldi og er margt í boði fyrir bæði börn og fullorðna,“ segir Aðalheiður. Hátt í sjötíu sýningarbásar verða á staðnum og fá gestir að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir ásamt því að virða fyrir sér hinar ýmsu afurðir vísindanna. „Þá leggjum við sífellt meiri áherslu á lifandi vísindi og uppákomur á sviði sem þýðir að við drögum vísindamennina hreinlega upp á svið og gerum þá að hálf- gerðum uppistöndurum. Þarna verður allt frá örfyrirlestrum lækna upp í sprengju- gengi sem kynna efnafræði með látum. Þá verða skurðlæknar með skurðstofu í beinni auk þess sem úrslit í tölvuhakk- arakeppni HR fara fram,“ upplýsir Aðal- heiður. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menn- ingarmálaráðherra mun setja Vísindavök- una klukkan 17 og afhenda viðurkenningu Rannís fyrir framúrskarandi vísinda- miðlun á árinu. Vakan stendur til 22. VÍSINDIN LIFNA VIÐ RANNÍS KYNNIR Vísindavaka Rannís verður haldin í Háskólabíói í kvöld. Markmiðið er að kynna vísindamennina sem standa að baki rannsóknum á hinum ýmsu sviðum og vekja athygli á mikilvægi vísindastarfs í landinu. VÍSINDAMENNIRNIR UPP Á SVIÐ „Við leggjum sífellt meiri áherslu á lifandi vísindi og uppákomur á sviði sem þýðir að við drögum vísindamennina hreinlega upp á svið og gerum þá að hálfgerðum uppistöndurum,“ segir Aðalheiður. Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín. Birtingur treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Júlíu Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is Br an de nb ur g Við skutlum Júlíu heim FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.