Fréttablaðið - 28.09.2012, Síða 30

Fréttablaðið - 28.09.2012, Síða 30
4 • LÍFIÐ 28. SEPTEMBER 2012 Hjördís Gissurardóttir, gullsmiður og fyrrverandi kaupmaður, býr í einu óvenjulegasta en jafnframt glæsilegasta húsi landsins á Kjalar- nesi. Í sjónvarpsþættinum Heimsókn, sem er á dagskrá Stöðvar 2 í opinni dagskrá annað kvöld, bankar sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindrason upp á hjá Hjördísi sem sýnir allt húsið en nýlega byggði hún við það séríbúð í allt öðrum stíl en þessar myndir sýna. HJÖRDÍS HEIMSÓTT Hjördís gefur áhorfendum góð ráð um hvernig gera megi huggulegt heima en jafnframt hvernig hefðir og venjur hennar fjölskyldu eru á heimilinu. Heimsókn, þáttur Sindra Sindrasonar, er í opinni dag- skrá á Stöð 2 á laugardagskvöldum að loknum fréttum. Það er óhætt að segja að Hjördís sé fagurkeri fram í fingurgóma eins og sést á þessari fallegu mynd. Úrslitin í fyrirsætukeppninni Elite Model Look 2012 fara fram í kvöld. Keppnin gefur stúlkum á aldrinum 14 til 22 ára tækifæri til að láta draum sinn rætast og feta í fót- spor heimsþekktra Elite-fyrirsæta eins og Cindy Crawford, Stephanie Seymour, Gi- sele Bündchen, Sigrid Agren og Constance Jablonski. Keppendur eru 17 talsins í ár. Elite-stúlkurnar í úrslitum Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.