Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 37
AUGLÝSING: OASIS KYNNIR Að sögn Ingibjargar Þorvaldsdóttur, eiganda Oasis, er leður ákaflega vinsælt um þessar mundir. „Hausttísk- an er sérstaklega falleg,“ segir hún. „Leður er áber- andi um þessar mundir í buxum, jökkum og sparikjól- um. Leðrið kemur í ýmsum litum, hermannagrænt er til dæmis vinsæll litur og sömuleiðis blár. Leður ein- skorðast ekki lengur við jakka, skó og töskur því það er farið að rata í hin ýmsu föt, jafnvel fínustu sparikjóla og gefa þeim töffaralegan blæ. Einnig er algengt að leður- belti séu notuð við kjóla. Leðurlíkið er líka mjög flott og vandað og erfitt að sjá muninn á því og ekta leðri. Framleiðendur eru orðnir færir í gerð leðurlíkis og það er á mun betra verði en leðrið,“ segir Ingibjörg þegar hún lýsir hausttískunni. „Það er mikið um blúndur á skyrtum og kjólum, svolít- ið rómantískt útlit en einnig er svokallað goth-útlit eftir- sótt. Við erum með skyrtur upp í háls, ermalausar eða með ermum í miklu úrvali. Þær eru mjög fallegar við gallabuxur eða fínni pils. Hér er einnig glæsilegt úrval af fallegum, þröngum buxum í mörgum litum. Þær eru háar í mittið og afar klæðilegar. Við erum með fjölda kvenna sem eru áskrifendur að buxunum okkar, enda heyrum við oft að það sé auðvelt að finna réttu stærðina hjá okkur. Þótt buxurnar séu þröngar þá eru þær fyrir allar stærðir með góðri teygju og sniði. Við erum með stærðir 8-16 og buxurnar eru jafn smart í öllum stærðum. Það er meira um buxur núna en hefur verið undanfarin ár. Leggings og kjólar halda velli en þröngar buxur koma sterkar inn á markaðinn,“ útskýrir Ingibjörg. „Yfirhafnir eru vinsælar hér í búðinni og núna erum við með sérstaklega mikið úrval af þeim. Allar konur ættu að finna yfirhöfn við sitt hæfi,“ segir Ingibjörg og bætir við. „Glamúr eða glimmer er áberandi í peysum en við eigum mikið úrval af þeim og fallegum bolum á góðu verði. Fatnað sem hentar vel í skóla eða vinnu. Einn- ig er mikið úrval af fallegum fylgihlutum, töskur, belti, skart og fleira.“ Oasis er í Kringlunni og Smáralind. Verslunin er á Face book og þar er alltaf mikil umræða í gangi. „Við erum duglegar að svara öllum og erum virkar á netinu. Fólk veit að við erum með gæði og gott verð. Þetta eru vörur sem endast,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg segir að hausttískan sé afar falleg en mikið úrval er af nýjum fatnaði í versluninni Oasis. LEÐURFATNAÐUR MEÐ TÖFFARALEGAN BLÆ Verslunin Oasis er með mikið úrval af vönduðum og fallegum fatnaði í nýjustu hausttísku. Í Oasis geta konur fundið klæðilegan og vandaðan fatnað á góðu verði. Leðurlíkiskjóll, „peplum“-snið. Gat í bakinu, teygjanlegur, einstaklega klæðilegt snið, rokkaður og flottur í sniðinu. Verð kr. 14.990. Kjóll með korse- lett-sniði. Sexí og skvísulegt. Gyllt belti, plíserað shiffon-pils. Verð kr. 18.990. Skemmtileg blanda af fínlegri blúndu og leðri í goth-stíl. Síðari að aftan. Shiffon- pils. Verð kr. 19.990. Jakki með leður- ermum. Prjónaður með ská-rennilás. Verð kr. 19.990. Leðurlíkispils í hermannagrænu, flott, sexí, A-snið. Hátt í mittið. Einnig til í brúnu og svörtu. Verð kr. 10.590.- Biker-leðurjakki, heitasta jakka-lúkkið í haust. Passar við allt. Úr leðurlíki, verð kr. 15.990. Til í gráu og svörtu. Einnig til úr ekta leðri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.