Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 40
KYNNING − AUGLÝSINGÞvottavélar og þvottaefni FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 20124 Til að föt og klæði haldist falleg í sem lengstan tíma borgar sig að athuga þvottaleiðbeiningar vel áður en þeim er skellt í þvotta- vélarnar. Sum föt þola ekki mikinn hita og önnur þola alls engan þvott og þarf þá að setja þau í hreinsun í efnalaug. Nýjan fatnað ætti að þvo áður en hann er notaður. Þannig mýkist hann og óæskileg efni sem ef til vill hafa komist í hann í flutningi eða við framleiðslu nást úr. Svo liturinn haldist sem best í flíkunum þarf að flokka þvottinn eftir lit og hve hátt hitastig er gefið upp á hverri flík. Einnig er snið- ugt að aðgreina flíkur sem notaðar eru dags daglega og þær sem not- aðar eru spari. Föt sem eru með sterka liti þarf að þvo sér því ann- ars smitast liturinn yfir í aðrar flík- ur, sérstaklega þegar þau eru þveg- in í fyrsta skipti. Gallabuxur láta til dæmis einhvern lit í hvert skipti sem þær eru þvegnar. Heppilegt er að þvo þvott á röng- unni, sérstaklega litaðan þvott. Það fer betur með fötin á meðan á þvott- inum stendur og dregur úr líkum á að þau hnökri. Ekki er mælt með að geyma óhreina þvottinn lengi í þvottakörf- unni. Því fyrr sem þvotturinn er þveginn, því líklegra er að óhrein- indin náist úr efninu. Ef erfiðir blett- ir eru í fötunum er nauðsynlegt að meðhöndla þá sérstaklega með blettaeyði eða öðrum ráðum og þvo flíkina síðan á hefðbundinn hátt. Varast skal að nota of mikið þvottaefni. Uppgefið magn á þvottaefnum er yfirleitt miðað við vatn sem er kalkríkt en kalda vatn- ið hér á landi hefur lítið kalkinni- hald og nær ekki að leysa upp allt þvottaefnið ef mikið er notað. Þá sest það í þvottinn og skilur eftir gráa bletti. Oftast má helminga það magn sem upp er gefið. Til að vernda þvottavélina er nauðsynlegt að tæma alla vasa af smáhlutum og sniðugt er að renna öllum rennilásum á fötun- um. Gott er að þvo einstaka sinn- um á 60 gráðum til að hreinsa vél- ina og varast skal að ofhlaða hana. Skoðið leiðbeiningar Margir hafa lent í því að taka út bleikar flíkur úr þvottavélinni sem voru hvítar áður en þær fóru inn. Mikilvægt er að huga vel að því hvað sett er saman í vélina og hvaða stillingar vélarinnar eru valdar. Flíkur í sterkum litum ætti að fara saman í vélina. ● Fyrsta þvottavélin kom fram á sjónarsviðið árið 1760. Þetta var viðarkassi sem fylltur var af fötum og vatni og knúinn handafli. ● Þvottavélar nota rúmlega fimmtung alls vatns sem notað er í Bandaríkjunum. ● Í könnun sem VR gerði árið 2010 kemur fram að konur bera langmesta ábyrgð á þvotti heima fyrir. Á það við alla aldurs- hópa en yngri karlmenn (35 ára og yngri) eru þó mun duglegri en eldri karlmenn við þvottinn. ● Stór hluti allra sokka, eða um 93%, sem týnast í heiminum hverfur í þvottavélum. Engum hefur tekist að finna skýringuna á því enn þann dag í dag. ● General Electric, Kenmore, Maytag og Whirlpool eru fjórir stærstu þvottavélaframleiðendur í heimi. ● Þvottavélar sem hafa hurð að framan eru skilvirkari og þrífa betur en þær sem hafa hurð ofan á vélinni. ● Þvottavélar eru í þvottahúsum á helmingi bandarískra heimila. Aðrir staðir á heimilum eru til dæmis baðherbergi og eldhús. ● Rúmlega 21 milljón þvottavéla var seld í Evrópu á síðasta ári. ● Fyrsta rafknúna þvottavélin var kynnt til sögunnar árið 1908 og var hönnuð af Alva J. Fisher. Hún bar nafnið „The Thor“. Það var fyrirtækið Hurley Machine Company í Chicago í Bandaríkjun- um sem setti vélina á markað. ● Fyrstu þurrkararnir komu fram snemma á 19. öld í Englandi og Frakklandi. Þeir voru handknúnir og þá yfirleitt yfir eldi. Fyrsti rafknúni þurrkarinn kom á markað árið 1915. ● Þvottavélar eru kannski ekki uppspretta mikilla menningar- afreka en þó gerði ítalski leikstjórinn Ruggero Deodato mynd- ina The Washing Machine (Vortice mortale) árið 1993. Deodato er helst þekktur fyrir hryllingsmyndina Cannibal Holocaust frá árinu 1980. Myndin segir frá lögreglumanni sem rannsak- ar morð á manni sem fannst sundurlimaður í þvottavél. Inn í rannsóknina flækjast unnusta látna mannsins og tvær systur hennar. Myndin var ekki tilnefnd til Óskarsverðlauna. ● Rokksveitin goðsagnakennda Sonic Youth gaf út plötuna Washing Machine árið 1995, stuttu eftir að hafa lokið hljóm- leikaferð sinni með Lollapalooza-tónlistarhátíðinni sama ár. Platan náði 39. sætinu á breska breiðskífulistanum. ● Konur í Bandaríkjunum sjá í 90 prósentum tilfella um þvottinn á heimilinu. ● Sumir hafa gengið svo langt að líkja tilkomu þvottavéla á sínum tíma og áhrifum þeirra á stöðu kvenna við getnaðarvarnarpill- una og rétt kvenna til að fara út á vinnumarkaðinn. Tímasparn- aðurinn samanborið við handþvott er gríðarlegur. ● Íslendingar ættu ekki að nota jafn mikið af þvottaefni og gefið er upp á erlendum pakkningum. Uppgefið magn á kíló af þvotti er oftast reiknað fyrir kalkríkt vatn en kalda vatnið hér á landi hefur lítið kalkinnihald og nær ekki að leysa upp allt þvottaefn- ið ef mikið er notað. Þá sest það í þvottinn og skilur eftir gráa bletti. Oftast má helminga það magn sem upp er gefið. Misgagnlegar stað- reyndir um þvottavélar Húsasmiðjan er með gott úrval þvottavéla og þar á meðal eru vélar frá Electro- lux en fyrirtækið er þekkt fyrir mikil gæði í raftækjum sínum. „Við bjóðum upp á þvottavélar frá Electrolux fyrir mjög breiðan hóp viðskiptavina en vélarnar taka frá sex kílóum af þvotti og allt upp í tíu kíló,“ segir Auður Auðunsdótt- ir, hjá söludeild Húsasmiðjunn- ar. „Við erum með mjög einfald- ar og góðar eitt þúsund snúninga vélar sem taka sex kíló. Einnig 1200 snúninga vélar sem taka líka sex kíló. Svo erum við með vélar sem taka sjö kíló og þær eru bæði 1400 snúninga og 1600 snúninga. Síðastnefnda vélin er með kola- lausum mótor, sem er aflmeiri og hljóðlátari.“ Auður segir allar þessar vélar eiga það sameiginlegt að vera mjög auðveldar í notkun en þær eru með skjái sem sýna bæði kerfi og þvotta- tíma. „Í dag eru þvottavélar með val um styttingu á þvottakerfum. Það þýðir að hægt er að velja hvaða þvottakerfi sem er og stytta þvotta- tímann niður í allt að þrjátíu mínút- ur. Það fer eftir því hvaða kerfi valið er hversu mikið er hægt að stytta tímann.“ „Við eigum von á nýjung í þvotta- vélalínuna hjá okkur í haust sem við bíðum spennt eftir. Það er 1400 snúninga vél frá Elektrolux sem tekur tíu kíló. Hún hefur sérstakt gufukerfi sem hentar vel fyrir fatn- að sem krumpast gjarnan en kerf- ið gefur nokkurs konar „gufu skot”. Stærð tromlunnar er 69 lítrar og vélin er með skynjara sem lætur vita ef hún er ofhlaðin. Mótorinn er með aukið afl og er sérstaklega hljóðlátur. Af öllu þessu má heyra að þetta er þvottavél sem vert er að koma og skoða. Sjón er sögu ríkari,“ segir Auður. Auk þessa má geta að Húsa- smiðjan var fyrsta fyrirtækið sem bauð fimm ára ábyrgð af vinnu og varahlutum heimilistækja og hún rekur sitt eigið raftækjaverkstæði. Auðveldar í notkun Húsasmiðjan býður upp á gott úrval gæðaþvottavéla sem eru auðveldar í notkun. Von er á nýrri vél frá Electrolux sem tekur allt að tíu kíló af þvotti. Raftæki frá Electrolux eru þekkt fyrir gæði. Auður á von á nýjung frá Electrolux í Húsasmiðjuna í haust. Hún segir það þess virði að koma og skoða þvottavélina sem von er á. MYND/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.