Fréttablaðið - 28.09.2012, Síða 46

Fréttablaðið - 28.09.2012, Síða 46
28. september 2012 FÖSTUDAGUR22 timamot@frettabladid.is DITA VON TEESE er fertug í dag „Sumir segja að það sem ég geri sé ekki sérlega frelsandi. Ég segi að það sé nú ansi frelsandi að fá 20.000 dollara fyrir tíu mínútna vinnu.“ 40 Merkisatburðir 28. september 1930 Elliheimilið Grund í Reykjavík vígt. 1958 79,2% kjósenda í Frakklandi samþykkja nýja stjórnar- skrá í þjóðaratkvæðagreiðslu sem markar upphaf fimmta lýð- veldisins í sögu Frakklands. 1969 Brot úr Murchison-loftsteininum fellur til jarðar í Ástralíu. 1988 Önnur ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tekur við völdum. 1991 Stofnað er landssamband björgunarsveita og hlýtur það nafnið Landsbjörg. 2006 Lokað er fyrir hjáveitugöng Kárahnjúkastíflu og myndun Hálslóns hefst. 2010 Alþingi samþykkir að sækja Geir H. Haarde fyrir Lands- dóm á grundvelli laga um ráðherraábyrgð. Faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, HÖRÐUR SVANBERGSSON prentari, áður til heimilis að Lindarsíðu 4, Akureyri, lést sunnudaginn 9. september á Dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Árni Harðarson María Ingunn Tryggvadóttir Gunnhildur Harðardóttir Ársæll Guðmundsson Katrín Gunnarsdóttir Bjarki Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT STEINGRÍMSDÓTTIR Brúnavegi 9 – Hrafnistu, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 4. október kl. 13.00. Árni Gunnarsson Sjöfn Óskarsdóttir Vilborg Gunnarsdóttir Gunnar Aðalsteinsson Guðrún Erla Gunnarsdóttir Þorgrímur Páll Þorgrímsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR JÓNSSON lést 20. september sl. Bálför hefur farið fram. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans. Bryndís Bjarnadóttir Kolbrún Lilja Sigurðardóttir Carsten Hanghøj Karen Ósk Sigurðardóttir Ásmundur Jón Marteinsson afabörn foreldrar og systkini. 75 ára afmæli Ása Sigríður Ólafsdóttir frá Akranesi er 75 ára í dag 28. september. Í tilefni þess ætlar hún og fjölskylda hennar að hafa opið hús á morgun, 29. september frá 15.00 til 17.00 í veislusal Dvalarheimilis Höfða á Akranesi. Vonast er til þess að sem flestir láti sjá sig. Það sem vakti fyrir mér með útgáfu þessarar bókar hér var að freista þess að styrkja tengslin á milli okkar og þessara frænda okkar þarna á eyjunum,“ segir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, skáld og þýðandi, sem sent hefur frá sér ljóðasafnið Hjaltlandsljóð sem inniheldur þýðingar hans á ljóðum hjaltlenskra nútímaskálda. „Þetta eru fjarskyldir ættingjar okkar sem við höfum alltof lítil tengsl við. Það er von mín að þessi bók veki athygli á þeim tengslum sem við höfum í gegnum tungumál og menningu.“ Í safninu eru ljóð eftir ellefu skáld sem öll eru enn á lífi, utan eitt, og Aðalsteinn segist þekkja um helm- ing þeirra persónulega. Bókin er á þremur tungumálum, þ.e.a.s. ljóðin eru birt bæði á frummálinu og í þýð- ingu. Sum ljóðanna eru ort á ensku en önnur á mállýsku eyjaskeggja, hjalt- lensku, sem greinilega á að nokkru leyti rætur í norrænu tungumáli. „Já, það sem margir vita ekki hér er að þarna var talað norrænt tungumál alveg fram á sautjándu og jafnvel átj- ándu öld. Svo glatast sú tunga, hún verður undir þegar skoskan flæðir yfir eyjarnar með fólksflutningum og öðru, en það skín enn þá í þetta norræna tungumál bæði í orðasam- böndum og örnefnum. Hjaltlenskan er síðan blanda af skosku og norrænu. AÐALSTEINN ÁSBERG SIGURÐSSON: GEFUR ÚT HJALTLANDSLJÓÐ Freistar þess að styrkja tengsl við fjarskylda ættingja okkar NÚTÍMASKÁLD Aðalsteinn segist hafa reynt að endurspegla samtímaljóðlist á Hjaltlandseyjum í bókinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Af þessum ágæta sjónarhóli sé ég augu þín, saltstokkið andlit þitt, skrjáfandi, hvíslandi orðabólstra á tungu þinni, norður af Norrænu. Þennan kjafthátt skortir listina til að slíta hjarta þitt frá gamalgrónum raunatúnum, þar sem flæðir í belg og biðu með óskýru japli orðalag annarra landa. ÓSKIPULAG eftir Robert Alan Jamieson Blaðið List á Vestfjörðum 2012, sem gefið er út af Félagi vestfirskra listamanna, kemur út nú eftir helgi. Blaðið kemur út í 4.000 eintökum og verður dreift inn á öll heimili á Vestfjörðum og víðar. Ritið kemur nú út í annað sinn og hefur eins og í fyrra ákveðið þema. Í ár er sjónum beint að sýningarrýmum á Vestfjörðum; öllum þeim fjölmörgu stöðum sem standa listamönnum til boða þegar þeir vilja koma fram og sýna sig eða list sína. Fjallað er ýtarlega um menningarhúsið Edinborg og tónleikasalinn Hamra, auk fjölda annarra listvænna staða. Ritstjóri er Sunna Dís Másdóttir. List á Vestfjörðum 2012 kemur út Danska söngkonan Cathrine Legardh og kvartett hennar leika á níundu tónleikum djasstónleikaraðar veitingastaðarins Munnhörpunnar í Hörpu laugar- daginn 29. september. Auk Legardh skipa hljómsveitina þeir Kjartan Valdemarsson á píanó, Valdemar K. Sigur- jónsson á bassa og Einar Scheving á trommur. Þau munu flytja sígræn djasslög af ýmsum toga auk nokk- urra frumsaminna laga. Tónleikarnir hefjast klukkan 15 og standa til klukkan 17. Aðgangur er ókeypis. Þetta verða síðustu tónleikarnir í djasstónleikaröð Munn- hörpunnar í ár. Legardh syngur í Munnhörpunni DJASSAÐ Catrine Legardh og kvartett hennar leika í Munnhörpunni á laugardag. Þótt skoskan sé ráðandi þá morar hún í orðum og hugtökum úr norrænu.“ Og notar fólk hjaltlenskuna í daglegum samskiptum? „Já, og það varð vakning seint á síðustu öld að fara að nota mállýskuna meira sem ritmál, þannig að það hefur færst í aukana að fólk noti hana í ritmáli, einkum yngra fólk.“ Hvað hafðirðu að leiðarljósi þegar þú valdir ljóðin í bókina? „Eiginlega bara kynni mín af ljóðlist þarna. Ég hef viðað að mér efni á staðnum, spurst fyrir og fengið leiðbeiningar frá nokkrum aðilum. Því miður er ekki til svona safn með hjaltlenskum nútímahöfundum, það var síðast gefið út ljóðasafn með samtímaskáldum fyrir fimmtán árum, en aðeins þrjú af þeim skáldum sem ég er að þýða eru með í því safni, það er orðið svo gamalt. Ég reyndi að vera sem næst nútímanum.“ Hvað vakti upphaflega áhuga þinn á eyjunum? „Þegar ég var rétt rúmlega tvítugur fór ég til Orkneyja til að skrifa. Ég hef enga hugmynd um hvers vegna ég fór þangað frekar en eitthvað annað, en ég var þarna í nokkrar vikur, kynntist þeirra menningu og bókmenningu og fór upp úr því að þýða ljóð eftir höfuðskáld Orkneyinga, George Mackay Brown. Síðan leið langur tími þar til mér barst boð um að koma til Hjaltlands, en það heimboð var á grunni þess að ég hafði verið að þýða Orkneyjarskáldið. Þegar ég kom til Hjaltlands varð eiginlega ekki aftur snúið, ég fann að þetta var eitthvað sem mig langaði og varð að gera.“ fridrikab@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.