Fréttablaðið - 28.09.2012, Blaðsíða 48
28. september 2012 FÖSTUDAGUR24
BAKÞANKAR
Stígs
Helgasonar
Ég get ekki beðið eftir að ganga í Evr-ópusambandið. Mér er alveg sama
um myntsamstarf og álitaefni sem varða
sjávarútveg og landbúnað – ég er bara svo
spenntur að fylgjast með fólki rogast með
sprengfull koffort af rauðvíni um flugvelli
í útlöndum og heyra svo vodkaflöskurn-
ar rúlla hverja á eftir annarri úr bakpok-
unum í handfarangursrýminu á leið yfir
hafið.
230 lítrar. Stærstu vökvaumbúðir sem ég
hef þurft að handleika um ævina eru tutt-
ugu lítra bensínbrúsi svo að ég á erfitt
með að átta mig á þessari stærð, 230
lítrum. Nógu margir fundust mér tutt-
ugu lítrarnir í brúsanum. Það er ekki
nema von að samninganefnd Íslands
við Evrópusambandið hugsi til þess-
arar tölu með hryllingi; lítrafjöldans
sem hver íslenskur ferðamaður má
bera með sér af áfengi til Íslands
þegar og ef við göngum í ESB.
ÍSLENDINGAR munu
hætta að fara í ríkið. Skatt-
tekjur munu dragast saman
um mörg prósent. Fólk
mun missa vinnuna. Að
ógleymdri kolefnismengun-
inni sem fylgir því að fylla
öll tóm hólf í flugvélum af
sprútti og þyngja þær sem
því nemur. Það gætu verið
fimmtíu tonn á vél að því gefnu að næstum
allir taki hámarksmagn, sem við gefum
okkur auðvitað. Þetta eru því skiljanlegar
áhyggjur. Að okkur steðjar ógn.
VEGNA þess að það er auðvitað engin
spurning um að við munum öll sem eitt
nýta þessa heimild í botn. Íslendingar
eru bæði kaup- og áfengisóðir og aldrei
og hvergi eins mikið og þegar þeir álpast
til útlanda. Við munum ekki láta vesenið
við að ferja 230 lítra af áfengi á flugvöll-
inn, ofan á annan farangur, stoppa okkur.
Ferðatöskur geta jú verið dýrar, en áfengið
sem í þær kemst er enn meira virði. Og
fimmtíuþúsundkall í yfirvigt? Við hlæjum
að því.
SVO bjóða þessar rúmu heimildir líka
upp á skemmtilega ferðamöguleika. Við
kollegarnir – væntanlega eins og margir
aðrir – erum strax farnir að undirbúa kaup
á rúgbrauði sem við ætlum með reglulegu
millibili að flytja þrír saman yfir á megin-
landið með Norrænu. Ég er ekki að tala
um brauð eins og það sem Hákon Eydal
notaði til að sigta rauðspritt í gegnum á
Litla-Hrauni, heldur bíl. Hann munum við
svo keyra á milli vínbúða og drekkhlaða af
hinum nýfrjálsa Evrópuanda. Og af því að
við verðum þrír verða lítrarnir ekki 230,
heldur 690. Hvílík gósentíð! Verstur fjand-
inn að einn okkar er edrú. En það er þá
bara meira fyrir okkur hina.
230 lítrar af ógn
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. spil, 6. samtök, 8. saur, 9. hár,
11. mun, 12. nes, 14. óróleg, 16.
skammstöfun, 17. sigti, 18. yfirgaf, 20.
tvíhljóði, 21. svikull.
LÓÐRÉTT
1. höfuð, 3. pot, 4. kvk. nafn, 5. svelg,
7. vínandi, 10. yfirbreiðsla, 13. háð,
15. sleit, 16. bókstafur, 19. slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gosi, 6. aa, 8. tað, 9. ull,
11. ku, 12. skaga, 14. ókyrr, 16. eh, 17.
sía, 18. fór, 20. au, 21. flár.
LÓÐRÉTT: 1. haus, 3. ot, 4. sakaría,
5. iðu, 7. alkóhól, 10. lak, 13. gys, 15.
rauf, 16. eff, 19. rá.
Auðvitað ætla
ég í partíið
hjá Kleine-
wiener greifa í
kvöld! Ég verð
plötusnúður!
Geggjað! Vona
að þú spilir það
nýjasta með
Skraugnomh og
Znabelcabel!
You bet! Í kvöld ætla
ég að keyra það þungt!
Zatanflügel, Dio-Draugsel,
Ztaurklar, Trÿgd og duglega
af Abba...
Ha?
What?
Abbanezer
Schrüghne and the
schnauzerfückers
auðvitað! Halló!
Shit!
Þarna
hræddir
þú mig!
En það getur
verið að ég
byrji kvöldið á
smá salsa til
að fá fólkið út
á dansgólfið!
Awe-
some!
Sjáumst
í kvöld
Zlatan!
Jæja, Palli. Mér finnst að við
ættum að ræða örlítið um
staðreyndir lífsins.
Ókei.
Hversu mikið sem þú
vinnur mun ríkisstjórnin
alltaf hrifsa til sín stóran
hluta af peningunum
þínum.
Er ekki eitt-
hvað um
kynlíf líka?
Við skulum
fyrst afgreiða
erfiðu málin.
Hér stendur að þú
hafir fundið upp
hjólið og uppgötvað
eldinn – en hvað
hefurðu gert nýlega?
Hvert ertu
að fara?
Að hjálpa
pabba að þrífa
bílskúrinn.
Nei. Mér finnst
bara að ég eigi
að gera það.
Er verið
að refsa
þér? SVINDL!!
Ef ég hefði vitað að
það gerði Hannes
afbrýðisaman að
sýna þroska, hefði
ég gert það fyrir
löngu!
STARFS-
MANNASTJÓ
RI
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gói
Baunagrasið
og
Vegna mikillar aðsóknar
verða nokkrar sýningar í október
Fréttatíminn Morgunblaðið
Tilnefnt til
Grímunar 2012
sem besta
barnasýningin