Fréttablaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 45
SNJALLSÍMAFORRIT
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Kynningarblað Nýjungar, Betri þjónusta, Þægindi
Nova-appið er aðgangsmiði að stærsta skemmtistað í heimi þar sem við-skiptavinum Nova býðst úrval tón-
listar, þjónustu og spennandi 2 fyrir 1-til-
boð,“ upplýsir Harald Pétursson uppfinn-
ingamaður hjá Nova.
Appið sem Harald talar um bauðst Nova-
notendum í fyrsta sinn á dögunum.
„Fyrstu helgina eftir að appið kom út
sóttu það þúsundir notenda til að nýta sér
þjónustu, tilboð og skemmtun, enda ávinn-
ingur fyrir viðskiptavini Nova að tileinka
sér appið sem fyrst í snjallsíma sína,“ segir
Harald.
Nova-appið skiptist í fjóra hluta: Tónlist,
2 fyrir 1, Fyllt‘ann og Stólinn.
„Tveir fyrir einn er vinsæl þjónusta fyrir
viðskiptavini Nova þar sem tilboð koma úr
ólíkum áttum. Þar má nefna 2 fyrir 1 í bíó,
tilboð á gítarnámskeið, matsölustaði, versl-
anir og í raun þjónustu úr öllum áttum,“ út-
skýrir Harald.
Á Fyllt‘ann flipanum geta Frelsis-við-
skiptavinir Nova fyllt á inneign síma sinna
og einnig er hægt að fylla á önnur númer
sem er tilvalið fyrir foreldra sem fylla á far-
símanúmer barna sinna.
„Mjög þægileg og einföld leið til að fylla á
frelsið og fljótlegra en að fara í heimabanka
og fylla á þar,“ segir Harald.
Meðal unga fólksins er vinsælasti hluti
Nova-appsins Tónlist en þar finna allir tón-
list við sitt hæfi.
„Á Tónlistar-flipanum er úrval lagalista
DJ Nova í samstarfi við Tónlist.is. Þar má
nefna vinsælustu tónlistina hverju sinni,
tónlist fyrir krakka, partítónlist, bestu tón-
listina í ræktina og f leira. Þjónustan er
ókeypis fyrir viðskiptavini Nova en þegar
þeir eru á 3G-þjónustukerfinu greiða þeir
fyrir niðurhal. Hjá Nova erum við einmitt
með netpakka sem eru tilvaldir fyrir þá sem
hlusta á tónlist í símanum sínum,“ útskýr-
ir Harald.
„Á Tónlistar-flipanum er einnig hægt að
horfa á tónlistarmyndbönd Nova TV og velja
Vinatóna sem er sú tónlist sem heyrist þegar
hringt er í viðskiptavini Nova,“ segir Harald.
Stóllinn er fjórði flipi Nova-appsins.
„Þar koma fram upplýsingar og yfirlit
um notkun símanúmersins í hverjum mán-
uði, hvað viðkomandi hefur talað í margar
mínútur og fyrir hvaða upphæð, hvað hann
hefur notað mikið gagnamagn og fleira. Þar
er einnig hægt að stilla talhólf, hafa sam-
band við þjónustuver og kaupa netpakka,
svo fátt eitt sé nefnt.“
Harald segir gamanið rétt að byrja á
stærsta skemmtistað í heimi því jafnt og
þétt bætist við tilboð frá nýjum aðilum og
á döfinni sé ný útgáfa af Nova-appinu sem
verði afar skemmtileg viðbót fyrir viðskipta-
vini Nova.
„Í dag nýtist Nova-appið eigendum
iPhone og Android sem eru mest seldu
snjallsímarnir í dag. Við munum stöðugt
bæta við appið svo það nýtist viðskiptavin-
um Nova sem best. Nova er enda stærsti
skemmtistaður í heimi og þangað á alltaf
að vera skemmtilegt að koma,“ segir Harald.
Hægt er að sækja Nova-appið í App Store
og Google Play undir Nova Iceland.
Við munum stöðugt
bæta við appið svo það
nýtist viðskiptavinum Nova sem
best. Nova er enda stærsti
skemmtistaður í heimi og
þangað á alltaf að vera
skemmtilegt að koma.
Harald Pétursson er uppfinningamaður hjá Nova, stærsta skemmtistað í heimi. Þar hefur gleðin enn aukist eftir
að nýja Nova-appið bauðst viðskiptavinum fyrirtækisins. MYND/VALLI
Appað á stærsta
skemmti stað
í heimi
Með Nova-appinu í snjallsímum geta viðskiptavinir Nova
hlustað á lagalista DJ Nova, horft á Nova TV, fyllt á frelsið og
fengið 2 fyrir 1-tilboð úr öllum áttum. Með Nova-appinu er
stærsti skemmtistaður í heimi orðinn enn stærri og skemmtilegri
og er þó hvergi hættur að blómstra.