Fréttablaðið - 29.09.2012, Qupperneq 65
LAUGARDAGUR 29. september 2012 15
Viðbygging við Sundhöll Selfoss
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir áhugasömum aðilum sem
myndu vilja koma að byggingu og/eða fjármögnum á viðbygg-
ingu við Sundhöll Selfoss sem stendur til að reisa.
Um tveggja hæða hús er að ræða auk kjallara að hluta samtals
tæplega 3000 fm.
Um er að ræða viðræður um fjármögnun og byggingu hússins
auk viðræðna um útfærslu á eignarhaldi eða leigu að fram-
kvæmd lokinni.
Áhugasamir sendi tölvupóst á Ástu Stefánsdóttur, framkvæmda-
stjóra Sveitarfélagsins Árborgar, asta@arborg.is eða hafi sam-
band í síma 480-1900 fyrir 4. október nk. Sveitarfélagið Árborg
áskilur sér rétt til að hafna öllum hugmyndum.
Skipulagsverðlaunin 2012
Skipulagsfræðingafélag Íslands og Vistbyggðaráð lýsa
eftir tillögum frá sveitarfélögum, stofnunum, fyr-
irtækjum eða einstaklingum vegna skipulagsverðlauna
2012. Lögð er áhersla á að tillögurnar stuðli að sjálf-
bærri þróun þar sem vistvænum áherslum er gert hátt
undir höfði og/eða auki fræðslu, vitund og umræður
er varðar vistvæna þætti í skipulagi.
Tilnefningarnar geta verið í eftirfarandi flokkum:
1. Lögbundnar skipulagsáætlanir (svæðis-, aðal-
eða deiliskipulag)
2. Annað (rammaskipulag, stefnumótun, áætlanir,
íbúaþing, verkefni, ritgerðir, rannsóknir, opinber
umfjöllun, úttekt o.fl.)
Skila skal tilnefningum og fylgigögnum á rafrænuformi
á skipulagsfræði@gmail.com, skilafrestur er til og með
19. október nk.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Skipulagsfræðinga-
félags Íslands www.skipulagsfraedi.is og á vef
Vistbyggðaráðs www.vbr.is
Decision-Making and Quantitative
Risk Analysis using @RISK
Palisade Corporation heldur námskeið í Hörpu dagana
8. og 9. nóvember. Námskeið þetta er ætlað notendum
@RISK hugbúnaðarins við áhættumat. Helstu efnisatriði
eru; Grunnþættir við áhættumat með hermun, aðlögun
líkindadreifinga að gagnasettum, sviðsmyndir,
tímaraða spár og margt fleira. Nánari upplýsingar um
námskeið og skráningu má sjá á www.grm.is
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í
desember, janúar og febrúar ef næg þátttaka fæst:
Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn, og kjötiðn í desember.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Í húsasmíði og pípulögnum í desember. Sveinspróf í málaraiðn í
janúar. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Í málmiðngreinum í janúar. Umsóknarfrestur til 1. desember.
Í snyrtigreinum í janúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í bílgreinum í janúar/febrúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í hönnunar- og handverksgreinum í janúar/febrúar.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyris-
sjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu
skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2012.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir
iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar,
veffang: www.idan.is og á skrifstofunni.
Kópavogsbær
ÚTBOÐ
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í
Snjómokstur og hálkuvörn í
Kópavogi, austur - og vestursvæði
Í verkinu fellst snjómokstur og hálkuvörn á stofn – tengi – og
safngötum í Kópavogi austan og vestan Kópavogsdals.
Helstu magntölur forgangsgatna eru:
Lengd gatna austur svæði 23 km.
Lengd gatna vestur svæði 25 km.
Útboðsgögn verða seld á kr. 10.000- í Þjónustuveri Kópavogs-
bæjar, Fannborg 2, l hæð, frá og með þriðjudeginum
2. október nk. Þegar útboðsgögn eru keypt skal skrá
samskiptaaðila bjóðanda í útboði.
Tilboðum skal skilað á sama stað þriðjudaginn 13. október
2012 fyrir kl. 11:00 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra
bjóðenda er þar mæta.
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
auglýsir eftir umsóknum til að vinna að
doktorsritgerð við deildina.
Umsækjandi skal uppfylla skilyrði til innritunar í doktorsnám
í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Nemar sem þegar eru
skráðir í doktorsnám við deildina geta einnig sótt um.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2012.
Umsókn skal vera á íslensku eða ensku.
Umsækjendur geta sótt um á þrenns konar máta:
• Nemandi sækir um að vinna við eitt af þeim verkefnum
sem kennarar bjóða upp á.
• Nemandi sækir um styrk vegna verkefnis sem hann hefur
þróað sjálfur.
• Nemandi og leiðbeinandi leggja fram sameiginlega
umsókn.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Viðskiptafræðideildar, Gimli
v/Sæmundargötu, 101 Reykjavík, í síðasta lagi 30. maí 2012.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar eru á heimasíðu
Viðskiptafræðideildar, www.vidskipti.hi.is
Styrkur til doktorsnáms við
Viðskiptafræðideild
Viðskiptafræðideild
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ