Fréttablaðið - 29.09.2012, Page 76
Snjallsímaforrit10
KOMA STERKIR INN
LG koma mjög sterkir inn í
snjallsímabaráttuna með flottum
tækjum á góðu verði. LG voru
sem dæmi fyrstir til að íslenska
Android-stýrikerfið og tók það
alla leið með því að íslenska
QWERTY-lyklaborðið. Þá eru þeir
búnir íslenskri orðabók.
LG hafa verið mjög framarlega
í tækninýjungum og voru sem
dæmi fyrstir til að koma með
tvíkjarna síma og fleira. LG hafa
slegið í gegn með LG Optimus
L-seríunni sem þeir kynntu til
sögunnar á þessu ári og hefur
hún selst gríðarlega vel og
komið vel út í alla staði. L-serían
byggist á flottri hönnun og
fá eigendur símanna töluvert
meira fyrir minna.
L9 sem er væntanlegur er með
4,7 tommu skjá, HD-upptöku
og nokkrum nýjungum eins
og breytilegu QWERTY-lykla-
borði, sem tekur sem dæmi
tillit til þess hvort eigandinn
er örvhentur og fleira. Hann
mun einnig vera búinn þeim
möguleika að taka ljósmynd
með því að segja „cheese“. Þá
verður hann búinn skemmtilegri
nýjung sem heitir Q translator
sem gerir eigandanum kleift
að nota myndavélina til að
þýða erlend tungumál. Verðið á
honum er fáránlegt eða um það
bil 59.900 út úr búð.
VIÐSKIPTAVINIR
FÁ FORGANG
Tal er með tvær verslanir, í
Kringlu og Smáralind. „Við erum
líka með umboðsverslun í
Eldhafi á Akureyri, sú verslun er á
Glerártorgi.“
Í verslunum Tals er veitt almenn
afgreiðsla sem og sala á
símtækjum og þjónustu.
Í þjónustuveri Tals 1817 er tekið
á móti öllum þeim fyrirspurnum
sem viðskiptavinir kunna að
hafa. Núverandi viðskiptavinir
eru þar í forgangi. Fyrirspurnum
sem þola ekki bið, eins og um
bilanir í síma og interneti, er
svarað hratt og örugglega. Við-
skiptavinir geta einnig nýtt sér
netsamtal á www.tal.is eða sent
tölvupóst úr snjallsímanum.