Fréttablaðið - 29.09.2012, Síða 98
29. september 2012 LAUGARDAGUR54 54
menning@frettabladid.is
Halla Steinunn Stefáns-
dóttir, listrænn stjórnandi
kammerhópsins Nordic
Affect, ætlar að upplýsa
gesti á tónleikum hópsins
á morgun um tónlistarlíf
London á 17. öld sem hún
segir hafa verið æði litríkt.
Tónleikar Nordic Affect, sem
haldnir verða í Þjóðmenningar-
húsinu á morgun, eru þeir fyrstu
í vetrartónleikaröð hópsins. Að
þessu sinni verður sjónum beint að
enskri sautjándu aldar tónlist. „Við
förum með tónleikagesti til Lond-
on sautjándu aldarinnar en þá ríkti
þar afar skemmtilegt tímabil í tón-
listinni. Karl II konungur var snú-
inn aftur úr útlegð og með honum
lifnaði yfir tónlistarlífi borgarinn-
ar sem hafði látið á sjá undir siða-
vandri stjórn Cromwell. Karl hafði
dvalið við frönsku hirðina í útlegð
sinni og vildi ólmur hafa sína hirð
eins og þá frönsku. Það þýddi meðal
annars blómlegt tónlistarlíf,“ segir
Halla Steinunn Stefánsdóttir fiðlu-
leikari og listrænn stjórnandi Nor-
dic Affect.
„Við ætlum að flytja margvís-
lega tónlist frá tímabilinu, allt frá
slögurum sem fluttir voru á pöbb-
um, lögum sem leikin voru á heim-
ilum og yfir í dásemdartónlist eftir
Purcell, sem er þekktasta tónskáld
tímans.“
Halla Steinunn, sem einnig er
þekkt fyrir tónlistarþætti sína á
Rás eitt sem fjalla um tónlist fyrri
alda, Girni, grúsk og gloríur, segir
frá bakgrunni verkanna á tónleikun-
um. „Ég segi frá bæði til að kynna
tónlistina og setja í samhengi. Mér
þykir mjög áhugavert að velta fyrir
mér úr hvaða jarðvegi tónlist sprett-
ur, það eykur skilning á tónlistinni.
Ég geri það á þessum tónleikum
meðal annars með því að glugga í
dagbók Pepys sem dvaldi við bresku
hirðina á 17. öld. Dagbókin hans
hefur varðveist og gefur góða inn-
sýn inn í þann heim.“
Ásamt Höllu Steinunni munu þær
Sara DeCorso fiðluleikari og Guð-
rún Óskarsdóttir semballeikari
koma fram á tónleikunum. Þær eru
allar með menntun í sagnfræðileg-
um hljóðfæraleik og því á heima-
velli í barokktónlistinni. „Við höfum
flutt töluvert af tónlist sem hefur
aldrei áður hljómað hér á landi. En
Nordic Affect spilar þó ekki bara
barokktónlist heldur höfum við líka
gert mikið af því að frumflytja verk
tónskálda,“ segir Halla Steinunn að
lokum.
Tónleikarnir hefjast klukkan
fjögur. sigridur@frettabladid.is
SKYGGNST INN Í HLJÓÐHEIM 17. ALDARINNAR
NORDIC AFFECT Halla Steinunn Stefánsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir og Sara DeCorso koma fram á tónleikum í Þjóðmenningarhús-
inu á morgun klukkan fjögur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tónleikarnir á morgun er þeir fyrstu í hinni föstu
vetrartónleikaröð Nordic Affect í Þjóðmenningarhús-
inu. Á næstu tónleikum sem fara fram í nóvember
verður meðal annars frumflutt ný tónsmíð eftir Guð-
mund Stein Gunnarsson. Tónleikarnir eru styrktir af
Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins og Menn-
ingarsjóði Reykjavíkurborgar. Kammerhópurinn Nordic
Affect hefur verið starfræktur frá árinu 2005 og hefur
á tónleikum sínum flutt allt frá danstónlist 17. aldar
til hinnar spennandi raftónlistar okkar tíma og hafa
geisladiskar með leik þeirra hlotið Kraumsverðlaunin
og Íslensku tónlistarverðlaunin. Meðal verkefna
hópsins á næstunni auk tónleikahalds er hljóðritun á
nýjum geisladiski með verkum eftir íslensk kventón-
skáld sem styrktur er af Menningarsjóði Hlaðvarpans.
TÓNLEIKARÖÐ OG GEISLADISKUR Í BÍGERÐ
Mér þykir mjög
áhugavert að velta
fyrir mér úr hvaða jarðvegi
tónlist sprettur.
HALLA STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR
NORDIC AFFECT
FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20
2. sýn: Föstudaginn 26. október
3. sýn: Laugardaginn 27. október
4. sýn: Sunnudaginn 4. nóvember
5. sýn: Laugardaginn 10. nóvember
6. sýn: Laugardaginn 17. nóvember
Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is - sími 528 5050 - midasala@harpa.is
WWW.OPERA.IS
Mótettukór Hallgrímskirkju
Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
29. des. kl. 17: kantötur I-IV
30. des. kl. 17: kantötur I,II,V,VIELDBORG, HÖRPU
Í H
ÖR
PU
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
SUN. 30.09.12 » 14:00
Ferð um óravíddir himingeimsins
Námsmenn fá 50% afslátt af miðaverði
UNGSVEIT
Baldur Brönnimann _ hljómsveitarstjóri
Gustav Holst _ Pláneturnar
www.sinfonia.is » www.harpa.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar
HOMO ISLANDICUS Málþing verður í Listasafni Íslands í dag milli ellefu og eitt í tengslum
við sýningu Ólafar Nordal, Musée Islandique . Málþingið er haldið í samstarfi við Háskóla Íslands.