Fréttablaðið - 29.09.2012, Page 111

Fréttablaðið - 29.09.2012, Page 111
LAUGARDAGUR 29. september 2012 67 FÓTBOLTI Strákarnir í Pepsi-mörk- unum á Stöð 2 Sport verða á vakt- inni í allan dag. Hitað verður upp fyrir leikina klukkan 13.45 og þegar lokaumferð Pepsi-deildar- innar er lokið tekur við tveggja tíma uppgjör Pepsi-markanna. Það hefst klukkan 15.50 og mun standa til 17.55. Í fyrri hlutanum verður lokaumferð deildarinnar gerð upp og í seinni hlutanum verður sumarið gert upp í heild sinni. Venju samkvæmt verður lið ársins, leikmaður ársins og mark ársins valið. Einnig verða mörg áhugaverð innslög í þættinum eins og ástarsamband ársins, dýfur ársins, óheppnasti leikmað- urinn og slátrari ársins svo fátt eitt sé nefnt. Hörður Magnússon mun stýra þættinum líkt og í allt sumar og með honum verða allir sérfræð- ingar þáttarins, þeir Hjörvar Hafliðason, Tómas Ingi Tómas- son og Reynir Leósson. Pepsi-deildin gerð upp: Tvöfaldur lokaþáttur HÖDDI MAGG Gamla markamaskínan stýrir umferðinni í Pepsi-mörkunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Snorri Steinn Guð- jónsson var í gær orðaður við sitt gamla félag, GOG, í dönskum fjölmiðlum. Snorri hefur verið án félags síðan stórliðið AG fór á hausinn í sumar. Danska blaðið Ekstrabladet segir að GOG sé að leita að leik- stjórnanda eftir að félagið seldi Henrik Knudsen til félags í Hvíta-Rússlandi. Hann lék með GOG frá 2007 til 2009 áður en hann gekk í raðir Rhein-Neckar Löwen. Þar var hann í eitt ár áður en hann samdi við AG. Snorri er eini leikmaður AG sem á enn eftir að finna sér nýtt félag, fyrir utan Steinar Ege sem lagði skóna á hilluna í haust. - esá Snorri verður í Danmörku: Orðaður við GOG SNORRI STEINN Hefur ákveðið að spila áfram í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FORMÚLA 1 Breski McLaren-öku- þórinn Lewis Hamilton mun aka fyrir Mercedes-liðið í Formúlu 1 á næsta ári. Hamilton hefur verið í viðræðum við Mercedes um nokk- urt skeið og segir helstu ástæðu þess að hann færi sig um set að í boði séu „nýjar áskoranir“. Áður en Mercedes gat gefið út formlega yfirlýsingu um vista- skipti Hamilton lýsti McLaren yfir að Sergio Perez myndi fylla sæti Lewis á næsta ári. Perez hefur ekið frábærlega í sumar fyrir Sau- ber-liðið og staðið þrisvar sinnum á verðlaunapalli. Mercedes hefur ekki gefið út hvert framhaldið verður hjá Michael Schumacher sem víkur fyrir Hamilton. Nico Rosberg mun aka þar áfram. Hamilton hóf feril sinn í Form- úlu 1 með McLaren árið 2007 og varð heimsmeistari strax ári síðar, árið 2008. „Nú er tími til kominn að takast á við ferskar áskoran- ir,“ sagði Hamilton. „Ég er mjög spenntur að hefja nýjan kafla í ferli mínum með því að færa mig um set.“ „Mercedes Benz býr yfir ótrúlegri arfleifð í kappakstri,“ sagði Hamilton jafnframt. Ross Brawn sagðist himinlif- andi yfir því að hafa skrifað undir samning við Hamilton. „Koma Hamiltons er vitnisburður um fyrirætlanir Mercedes í Formúlu 1. Ég held að saman geti Lewis og Nico orðið öflugasta og mest spennandi ökumannaparið í Form- úlunni,“ sagði Brawn. McLaren-liðið segist enn ætla að þrýsta á Hamilton um að vinna heimsmeistaratitilinn í ár. Hamil- ton á enn möguleika þó þeir séu litlir. Mexíkóinn Sergio Perez mun aka fyrir McLaren á næsta ári en Perez hefur staðið sig ógurlega vel fyrir Sauber-liðið í sumar. Perez hefur verið orðaður við Ferrari en Luca di Montezemolo, framkvæmdastjóri Ferrari, hefur sagt Perez of ungan og reynslulít- inn til að aka fyrir ítalska liðið. McLaren er greinilega ekki á sama máli og segist geta nýtt hæfileika Mexíkóans. „Það var ótrúleg frammistaða hans á braut- inni, þrjú verðlaunasæti og frábær hraðasti hringur í Mónakó í ár sem sannfærðu okkur,“ sagði Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren. - bþh Farsælu samstarfi McLaren og Lewis Hamilton er lokið þar sem ökuþórinn vantar nýja áskorun: Hamilton yfirgefur McLaren fyrir Mercedes HALLÓ? Hamilton hefur verið mikið í símanum síðustu daga. NORDICPHOTOS/GETTY Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins- félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér. Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Tökum bleikan bíl! Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.