Fréttatíminn - 21.04.2011, Blaðsíða 8
Vodafone IS 3G 10:32
App, app mín sál!
Fermingartilboð í öllum verslunum
Stórsnjallir símar á frábæru verði auk úrvals
framúrskarandi fermingargjafa.
Prófaðu nýjustu tæknina og sjáðu framtíðina með
þínum eigin augum. Láttu ekki app úr hendi sleppa.
2.499 kr.
á mán. í 12 mán.
Fullt verð: 29.990 kr.
2
bíómiðar
í Sambíóin
fylgja
á meðan birgðir endast
200 MB
á mán. fylgir
með í 6 mán.
LG Optimus Me
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F asteignamógúlarnir Nick og Christian Candy, sem voru meðal viðskiptavina og
viðskiptafélaga Kaupþings, seldu
á dögunum dýrustu íbúð heims.
Um er að ræða íbúð á þremur
efstu hæðunum í One Hyde Park,
lúxusturni á besta stað í London.
Kaupandinn er úkraínski stál- og
kolakóngurinn Rinat Akhmetov
sem borgaði 136 milljónir punda
eða um 25 milljarða fyrir íbúðina.
Hann hyggst jafnframt gera hana
upp fyrir tólf milljarða til viæbótar.
Akhmetov, sem er 44 ára, er
einn af ríkustu mönnum heims
og eru eignir hans metnar á tíu
milljarða punda eða 1.850 milljarða
íslenskra króna. Hann er mikill
knattspyrnuáhugamaður og er for-
seti úkraínska stórliðsins Shakhtar
Donetsk. Hann hefur verið lykil-
maður í uppbyggingu liðsins sem
skilaði sér í sigri í UEFA-keppn-
inni árið 2009 og því að félagið
komst í átta liða úrslit meistara-
deildarinnar í ár.
Og Akhmetov fær ýmislegt fyrir
aurana sína í One Hyde Park. Fyrir
utan glæsileg híbýli fylgir með
margs konar lúxus til viðbótar.
Kvikmyndahús, 21 metra löng
sundlaug, gufuböð, líkamsræktar-
salur, golfhermir, vínkjallari og
herbergisþjónusta frá Mandarin
Oriental, einu af flottari hótelum
London sem er við hliðina á lúxus-
byggingunni.
oskar@frettatiminn.is
Fasteignamarkaður Dýrasta íbúð heims selD
One Hyde Park er glæsileg bygging.
N
or
di
c
Ph
ot
os
/G
et
ty
Im
ag
es
N
or
di
c
Ph
ot
os
/G
et
ty
Im
ag
es
Úkraínskur auðkýfingur
borgaði 25 milljarða
fyrir íbúð í London
Stál- og kolakóngurinn Rinat Akhmetov keypti lúxusíbúð í London
og hyggst gera hana upp fyrir tólf milljarða til viðbótar
Það ætti ekki að væsa
um Rinat Akhmetov
þegar hann dvelur í
London.
Gríðarleg ásókn er í störf hjá
Iceland Express Handling,
nýju þjónustufyrirtæki Iceland
Express, að því er fram kemur
í tilkynningu félagsins. Þegar
umsóknarfrestur um störfin
rann út í gær voru komnar yfir
700 umsóknir um þau tæplega
80 störf sem eru í boði. Iceland
Express stofnaði Iceland Express
Handling fyrir nokkru til
að annast flugafgreiðslu
á Keflavíkurflugvelli, en
áður hafði félagið keypt
þessa þjónustu af öðrum.
„Forráðamenn Iceland
Express höfðu lengi haft
hug á að sjá um þjónustu
við eigin vélar, enda hefur félagið
stækkað ört. Tilgangurinn er
að bæta þjónustu við farþega í
takt við markaðssókn og bjartari
tíma. Iceland Express flýgur til
23 áfangastaða í sumar, þar af
fjögurra í Ameríku. Félagið hefur
ráðið til sín fjölda nýrra starfs-
manna undanfarna mánuði,“
segir enn fremur. -jh
700 umsóknir um 80 störf Ríkissjóður greiðir fyrirfram skulda-
bréf í erlendum gjaldmiðli
Seðlabanki Íslands, fyrir hönd ríkissjóðs, býðst til að kaupa
á nafnverði, að hluta eða í heild, þau erlendu skuldabréf
ríkissjóðs sem falla í gjalddaga árin 2011 og 2012. Um er að
ræða tvö skuldabréf í evrum sem upphaflega voru að fjárhæð
1.250 milljónir evra, eða sem svarar 204 milljörðum króna, að
nafnvirði. Seðlabankinn hefur þegar keypt hluta þessara bréfa
á markaði, en enn eru um 800 milljónir evra, 130 milljarðar
króna, útistandandi. Þessi kaup eru þáttur í lausafjár- og
skuldastýringu ríkissjóðs, en einnig liður í gjaldeyrisforða-
stýringu Seðlabanka Íslands. Gjaldeyrisforði Seðlabankans
nam 767 milljörðum króna, eða 4,7 milljörðum evra, í lok
mars síðastliðins. Seðlabankinn og ríkissjóður eru því, að því
er fram kemur í tilkynningu Seðlabankans, í góðri stöðu til
að greiða þau erlendu lán sem falla í gjalddaga samkvæmt
lánasamningum á næstu árum, þar á meðal þau skuldabréf
sem hér um ræðir. Tilboðið stendur til 5. maí. -jh
s tjórnlagaráð hefur þegar fundað fimm sinnum frá því að það var sett 6. apríl en síðasti fundur ráðs-
ins fyrir páska var síðastliðinn þriðjudag. Almennir
fundir stjórnlagaráðs nefnast ráðsfundir og eru þeir
æðsta vald stjórnlagaráðs. Á þessum fundum hafa
m.a. formenn ráðsins verið kosnir, starfsreglur þess
og tillaga að fyrsta áfangaskjali verið samþykktar,
auk tillögu um óformlega starfshópa. Til umræðu á
þriðjudaginn var tillaga stjórnar um tölu nefnda og
verkaskiptingu þeirra og kosning nefndarformanna
og varamanna þeirra. Starfsreglur stjórnlagaráðs
voru samþykktar samhljóða á þriðja fundi ráðsins
hinn 13. apríl. Í þeim er fjallað um stjórnsýslu og
starfshætti stjórnlagaráðs, frumvarp til stjórnar-
skipunarlaga og meðferð þess, starfsmenn ráðsins
og önnur ákvæði. Eins og fram hefur komið í Frétta-
tímanum var Salvör Nordal kjörin formaður stjórn-
lagaráðs og Ari Teitsson varaformaður. -jh
Stjórnlagaráð hefur fundað fimm sinnum
8 fréttir Helgin 21.-24. apríl 2011