Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 21.04.2011, Blaðsíða 30
RAKVÉL & SKEGGSNYRTIR Sölustaðir: og öll betri apótek Lyf & heilsa Við hlustum! LYFJA Lifið heil skegg snyrtir rakstur er fyrst og fremst hugsaður þannig að foreldrar sem finnst þeir hafa „brugðist“ geti hist, rætt sín mál án þess að vera dæmd og sagt hreint út hvað þau eru að hugsa. Það er enginn þarna sem mun dæma við- komandi sem „lélegt foreldri“. Við hugsum oft hugsanir sem okkur langar ekki að hugsa og finnst að við eigum ekki að gera vegna þess að við séum foreldrar. En það er allt í lagi með þessar hugsanir, við erum ekki slæmir foreldrar þrátt fyrir þær. Stundum þarf maður að fá að pústa út, byggja ekki upp allt það sem er í gangi innra með manni og bera þær hugsanir og tilfinningar einn. Ég fann það þegar ég var með minn son lítinn að það vantaði mikið af úrræðum og þá sérstaklega þau sem eru ekki endilega fagleg, hvort sem foreldrarnir eru veikir sjálfir eða börnin. Á þeim tíma var ekki komið svona ungbarnakaffihús eins og það sem við sitjum inni á núna, þannig að ég sá fyrir mér kaffihús þar sem fólk gæti hist með börnin sín án þess að börnin væru „fyrir“. Hingað á Iðunnareplið koma nær- ingarráðgjafar, ungbarnanuddarar og margs konar fræðsluefni er í boði. Hér eru foreldrahópar á þriðju- dögum klukkan hálf ellefu og svo klukkan hálf eitt á miðvikudögum. Iðunnareplið er með heimasíðu og Facebook-síðu. Hingað getum við komið með börnin því hér er mynda- vél sem sýnir inn í barnaherbergið og í sumar verður stúlka sem annast börnin.“ Mikilvægt að feður leiti sér líka stuðnings Hulda Ósk segir að þegar hún finni að hún sé að fara í maníu finnist henni allt skemmtilegt nema: „... að þá finnst mér ég vera að bregðast sem móðir. Ég veit samt betur, ég veit að ég get ekki breytt þessum sjúkdómi, aðeins leitað mér hjálpar þegar á þarf að halda. En það eru ekki bara við mömm- urnar sem eigum stundum erfitt með foreldrahlutverkið; aðstand- endur gleymast oft og þeir eiga al- veg jafn erfitt. Mæðurnar leita sér kannski stuðnings en feðurnir ekki og því er mikilvægt að þeir komi líka í foreldrahópana. Mér finnst stórkostlegt að Ester hafi fengið þessa hugmynd sem nú er að verða að veruleika. Við höfum kynnt okk- ur hvert hægt er að leita fyrir fólk sem líður illa, finnst það ekki hafa tök á foreldrahlutverkinu. Það er erfitt að mæta á fundi, vita ekkert hvað bíður manns og þess vegna viljum við geta tekið á móti fólki og leiðbeint því. Hóparnir okkar hittast í Hlutverkasetrinu og þar er kaffi fyrir alla!“ segir Hulda Ósk. „Við Ester munum leiða fundina saman – ekki stjórna. Það er eng- inn stjórnandi í þessum hópi. Við munum leggja ríka áherslu á að það sem sagt er innan fjögurra veggja á þessum fundum fari ekki lengra, og aldrei sé rætt um einhvern sem ekki er viðstaddur. Það hefur sýnt sig í sjálfshjálparhópum að með því að hlusta á aðra með sambærilega reynslu fær fólk ótrúlega hjálp. Við munum spegla – ekki segja fólki fyrir verkum.“ Að geta ekki staðið undir eigin væntingum … Ester segist ekki geta staðsett hvernig og hvar hugmyndin að for- eldrahópnum mótaðist endanlega. „Ég held að hugmyndin hafi byrjað að mótast þegar strákurinn minn var lítill. Ég talaði við Elínu Ebbu iðjuþjálfa, sem er með Hlut- verkasetrið í Borgartúni 1, síðast- liðið haust og hún hefur boðið okk- ur aðstöðu þar. Hlutverkasetur er staður fyrir fólk sem hefur misst hlutverk sitt í lífinu og vill halda sér í virkni og þar er til dæmis at- vinnuleg endurhæfing. Allar upp- lýsingar um Hlutverkasetrið er að finna á hlutverkasetur.is. Svona hópur hefur ekki verið til áður svo ég viti. Foreldrahóparnir verða annan og fjórða hvern miðvikudag milli klukkan tíu og tólf og við ætl- um ekki að hafa börn eldri en eins árs með í hópunum því eldri börn hafa ekkert gott af því að heyra það sem við þurfum að ræða. Næsti fundur okkar verður því í Borgar- túni 1 miðvikudaginn 27. apríl, en Borgartún 1 er hringlaga hús sem auðvelt er að finna. Fyrir utan þessa tíma verðum við með félagslíf, för- um til dæmis hingað í Iðunnareplið þar sem hún Tinna eigandi ætlar að vera með sérstakan afslátt fyrir okkur og hægt er að fá barnamat og safa sem hentar börnum – og kaffi fyrir þá fullorðnu; einnig gerum við margt fleira þar sem foreldrar og börn þeirra geta átt skemmtilegar stundir saman og stundum jafnvel án barnanna – það er allt opið. Fólk þarf ekki endilega að hafa fengið fæðingarþunglyndi, geðraskanir eða slíkt, aðeins það að þeim finnist foreldrahlutverkið ekki jafn auðvelt og þau héldu. Þegar maður er hald- inn samviskubiti yfir því að geta ekki staðið undir sínum eigin vænt- ingum með heimilið og barnið sitt – því þetta eru yfirleitt okkar eigin væntingar – þá er erfitt að hafa sig í að gera hluti eins og að ryksuga og skúra. Við þurfum oft að öðlast viðhorfsbreytingu; það skiptir ekki máli þótt einhver mæti og allt sé í drasli, þetta er mitt heimili og ef fólki líkar það ekki þá er það þess mál. Ef maður nær að losa sig við þetta viðtekna viðhorf að allt eigi að vera tandurhreint, barnið fái lífrænt ræktaðan heimalagaðan graut, þá hjálpar maður sér sjálfum mikið í því að sætta sig við hlutina eins og þeir eru og losna við þessa glans- mynd sem maður hefur af foreldra- hlutverkinu. Ég er stöðugt að reyna að breyta mínu viðhorfi til margra hluta í lífinu og tek bara einn dag í einu.“ Ekki fagaðili, aðeins móðir með reynslu „Í foreldrahópnum verður hægt að ræða hlutina án þess að vera dæmd- ur og stundum þarf maður líka að fá smá hjálp við að sjá björtu hliðarnar, því við verðum ekki beinlínis víðsýn í erfiðleikum. Það er ekkert aldurs- takmark og það skiptir ekki máli hvað hefur komið fyrir eða hvað börnin eru gömul, við munum öll eiga það sameiginlegt að hafa ekki fundist við ráða við aðstæður sem foreldri, finnast við vera svolítið ein, vera hrædd um að vera „dæmd“ og vanta félagsskap. Ég er reiðubúin að hitta fólk áður en það mætir á fundi því ég veit af eigin reynslu hversu erfitt getur verið að mæta á nýjan stað. Það má líka senda mér póst á netfangið ester.bragadottir@ gmail.com. En það er mikilvægt að muna að ég er ekki fagaðili – aðeins móðir með reynslu.“ Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is Í foreldra- hópnum verður hægt að ræða hlutina án þess að vera dæmdur. Hulda Ósk og Ester. Stuðningshópur fyrir foreldra sem finnst draumarnir hafa brostið. 30 viðtal Helgin 21.-24. apríl 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.