Fréttatíminn - 21.04.2011, Síða 18
Siv Friðleifsdóttir telur stefnubreytingu hafa orðið í afstöðu Framsóknarflokksins til Evrópusam-
bandsins. Hugmyndir hennar um að Framsókn komi inn í ríkisstjórnina hafa vakið mikil viðbrögð
en Morgunblaðið birti af henni skopmynd þar sem hún falbauð sig fallandi stjórn. Í viðtali við Þóru
Tómasdóttur sagði Siv eðlilegt að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, bæðist afsökunar.
V
ið systkinin vorum alin
upp við að setja okkur í
spor annarra og barma
okkur ekki. Líta á
glasið hálffullt en ekki
hálftómt. En það er engin manneskja
gerð úr stáli. Mér þótti vænt um að
Helgi Sigurðsson teiknari bað mig
persónulega afsökunar á myndinni.
Ritstjórn Morgunblaðsins ber
ábyrgð á því sem birt er í blaðinu og
fyrir stuttu birtust heilsíðuauglýs-
ingar í blöðunum þar sem Morgun-
blaðið bað DV afsökunar vegna um-
fjöllunar Agnesar Bragadóttur um
blaðamann DV. Ég trúi því ekki að
ritstjórn Morgunblaðsins vilji sýna
konur í niðrandi ljósi. Okkur ritstjóra
Morgunblaðsins gekk vel að vinna
saman hér áður fyrr. Leiðir okkar
hafa ekki legið saman eftir að hann
hvarf úr stjórnmálum og tók að sér
að verða seðlabankastjóri og síðar
ritstjóri Morgunblaðsins. Miðað við
mín kynni af honum tel ég að hann
sé stærri maður en svo að hann vilji
láta þetta kyrrt liggja án viðbragða.
Blaðið hlýtur annað hvort að gefa
út opinbera afsökunarbeiðni eða út-
skýra hvers vegna þetta ætti að vera
í lagi.“
Varstu reið?
„Ég er alin upp við að barma mér
ekki.“
Hvers vegna heldurðu að þessi mynd
hafi vakið svona sterk viðbrögð?
„Ég held að það segi sig sjálft.
Fólki var misboðið.“
Ríkisstjórninni virðist ekki veita
af stuðningi, ætli hún að sitja áfram.
Hvers vegna viltu að Framsóknar-
flokkurinn fari inn í ríkisstjórnina?
„Traustið getur ekki orðið minna á
ríkisstjórninni. Sérstaklega eftir að
Icesave 3 var fellt í þjóðaratkvæða-
greiðslu og eftir niðurstöðu úr
atkvæðagreiðslu um vantraust á
stjórnina, sem var fellt með aðeins 32
atkvæðum. Ég studdi vantraustið á
þeim rökum að við þessar aðstæður
gengur ekki að vera með veika ríkis-
stjórn. Ég sé fyrir mér algjöra upp-
stokkun og nýja ríkisstjórn. Ég tel
skynsamlegast að hún verði mynduð
af Framsóknarflokki, Vinstri græn-
um og Samfylkingu sem gerðu með
sér nýjan stjórnarsáttmála. Stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, Sjálf-
stæðisflokkurinn, yrði þá í stjórnar-
andstöðu með Hreyfingunni og
gæti veitt nýrri ríkisstjórn verðugt
aðhald.“
Hvaða hlutverki sérðu fyrir þér að
Framsóknarflokkurinn gegni í ríkis-
stjórninni; eru sérstök ráðuneyti sem
þú vilt að flokkurinn taki að sér?
„Það er ekki tímabært að kveða
neitt upp úr um það. Ég tel að það
muni um Framsóknarflokkinn í því
að tala máli Íslands um Icesave á al-
þjóðavettvangi. Annaðhvort þurfum
við að sannfæra okkar viðsemjendur
um að þeir fái greidda lágmarks-
tryggingu – og komast þannig hjá
dómsmáli – eða það verður dóms-
mál og við þurfum að hafa öflugt
fyrirsvar. Nú sjáum við loksins
fram á betri tíma í efnahagsmálum;
verðbólgan er lág, hagvöxtur er að
aukast og kaupmáttur er líka aðeins
að aukast. Mesta áhyggjuefnið er at-
vinnuleysið og skuldavandi heimila.
Ef ekkert gerist í atvinnumálum er
hætta á að við festumst í langtímaat-
vinnuleysi upp undir tíu prósent. Það
er stórt samfélagslegt vandamál og
þar munar verulega um Framsókn
sem hefur verið öflugur atvinnu-
málaflokkur í gegnum árin.“
Þjóðstjórn óholl í lýðræðisríki
Siv segir nauðsynlegt að tryggja
pólitískan stöðugleika nú þegar
efnahagur landsins virðist vera að
vænkast. Óráð væri að ganga til
kosninga. „Ég tel að það sé eins og
að hella olíu á eld. Það var kosið til
Alþingis árið 2007. Kosningum var
flýtt þegar kjörtímabilið var hálfnað
og því voru aðrar alþingiskosningar
2009 þar sem varð mikil endurnýjun
þingmanna. Að mínu mati er fráleitt
að ganga til kosninga núna, það
myndi tefja uppbyggingu verulega,
ýta undir mikinn óróleika og vera
þannig beinlínis til skaða. Ég hef
heldur aldrei talað fyrir þjóðstjórn. Í
hverju lýðræðisríki þarf að vera virk
stjórnarandstaða sem veitir ríkis-
stjórninni aðhald. Það er óheilbrigt
í lýðræðisríki að mynda þjóðstjórn
nema til að fást við mjög afmörkuð
verkefni í mjög stuttan tíma. Fyrir-
komulagið myndi alltaf kalla á kosn-
ingabaráttu milli flokkanna og það
kæmi því lítið jákvætt út úr slíkri
stjórn á þessum tíma.“
Siv segir ríkisstjórnina hafa orðið
fyrir mörgum áföllum að undanförnu
sem hafi veikt hana verulega. „Það
er saga til næsta bæjar að ekki allir
stjórnarsinnar samþykki fjárlögin.
Síðan falla þrír þingmenn Vinstri
grænna fyrir borð. Fyrir utan það eru
tveir ráðherrar í ríkisstjórninni í dag
sem hafa talað opinskátt gegn ýmsu í
stjórnarsáttmálanum, þeir Ögmund-
ur Jónasson og Jón Bjarnason. Það er
auðvitað óbærilega veik staða.“
Vill stjórnarmyndunarviðræður
Væri ekki búið að styrkja ríkis-
stjórnina með þessum hætti ef sam-
flokksmenn þínir væru sammála
þér?
„Innan míns flokks eru uppi
að minnsta kosti tvö sjónarmið.
Annað er það sem ég hef talað
fyrir, um að Framsókn myndi nýja
ríkisstjórn með Samfylkingu og
Vinstri grænum. Hitt er að mynda
þjóðstjórn til skamms tíma. Núna
er hins vegar allt opið og möguleik-
arnir eru að hér hefjist stjórnar-
myndunarviðræður, eins og ég hef
talað fyrir, á næstu vikum. Eða að
ríkisstjórnin sitji áfram og treysti á
þennan mjög svo tæpa meirihluta.
Ef ekkert kemur út úr öðrum hug-
myndum verður staðan auðvitað
óbreytt og hætta á stöðnun vegna
veikrar ríkisstjórnar.“
Fordæmi eru fyrir því að þing-
menn fari inn í ríkisstjórnir án þess
að flokkurinn komi með. Gætir þú
hugsað þér að gera það?
„Ég er ekkert að hugsa um það.
Ég tala fyrir því að Framsóknar-
flokkurinn fari sem heild inn í
ríkisstjórnina.“
Ef það er ekki vilji flokksins, úti-
lokar þú að fara inn í stjórnina án
hans?
„Það er ekkert hægt að hugsa ef
þetta eða hitt. Margir hafa spurt
hvort við Guðmundur Steingríms-
son séum á leið út úr Framsóknar-
flokknum. Sú umræða sprettur
væntanlega fram vegna þess að við
höfum sérstöðu í stórum málum
eins og varðandi ESB-umsóknina,
en þar var Birkir Jón Jónsson sama
sinnis og við. Síðan töluðum við
bæði gegn Icesave 1 og 2 en fyrir
jái í Icesave 3 og vildum komast hjá
áhættunni við dómsmál. Við höfum
einnig talað fyrir stjórnlagaráði
ásamt Höskuldi Þórhallssyni og
Miðað við
mín kynni af
honum tel ég
að hann sé
stærri maður
en svo að
hann vilji láta
þetta kyrrt
liggja án
viðbragða.
Blaðið hlýtur
annað hvort
að gefa út
opinbera
afsökunar-
beiðni eða
útskýra hvers
vegna þetta
ætti að vera í
lagi.
Siv um Davíð Oddsson,
ritstjóra Morgunblaðsins
Framhald á næstu opnu
Siv Friðleifsdóttir vill að mynduð verði ný ríkisstjórn Framsóknar, Samfylkingar og Vinstri grænna. Hún neitar því að henni hafi verið boðinn ráðherrastóll í núverandi ríkisstjórn. Ljósmyndir/Hari
18 viðtal Helgin 21.-24. apríl 2011