Fréttatíminn - 21.04.2011, Blaðsíða 20
ENGIR TVEIR ERU EINS
Engir tve
ir einsta
klingar e
ru nákvæ
mlega e
ins. Þett
a skiljum
við hjá V
erði og þ
ess vegn
a viljum
við kynn
ast
viðskipta
vinum o
kkar bet
ur. Við læ
rum að þ
ekkja þá
svo að þ
eir fái ör
ugglega
þá þjónu
stu sem
þeim he
ntar.
Við viljum
sjá til þ
ess að þ
ú sért m
eð réttu
trygging
arnar, h
vort sem
um er a
ð ræða l
íf- og he
ilsutrygg
ingu,
trygging
u fyrir h
úsið, bíl
inn eða
fyrirtæk
ið.
VIÐ VILJ
UM KYN
NAST ÞÉ
R BETUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/
S
IA
.I
S
/V
O
R
5
35
25
0
4/
11
breytingum á Stjórnarráðinu sem
hafa verið umdeildar í okkar flokki.
Svo höfum við bæði talað fyrir nýrri
ríkisstjórn með Framsókn og erum
ekki hrifin af þjóðstjórn.“
Hafa ríkisstjórnarflokkarnir leitað
sérstaklega til ykkar?
„Þeir hafa ekki leitað til okkar með
þeim hætti sem þú ert að gefa í skyn.“
Hafa ríkisstjórnarflokkarnir ekki
leitað til ykkar sem mögulegra fulltrúa
inn í ríkisstjórnina?
„Það hefur ekki verið rætt við okk-
ur um að ganga inn í ríkisstjórnina,“
segir Siv og neitar því að viðræður
séu á því stigi að henni hafi verið boð-
inn ráðherrastóll í ríkisstjórninni.
Mikil stefnubreyting
Þú ert með langmesta stjórnmál-
areynslu í þingflokki Framsóknar-
flokksins og eftir að hafa verið ráð-
herra, þingflokksformaður og ritari
flokksins lítur nú út fyrir að þú sért á
hliðarlínunni í flokknum.
„Nei, það er ekki þannig. En það
er ákveðinn hópur í flokknum sem
telur andann í honum vera að breytast
að einhverju leyti. Sá hópur hefur
stundum verið kallaður frjálslyndur.
Hópurinn vill klára aðildarviðræður
við Evrópusambandið og sjá þá hvað
býðst. Ég kalla það frjálslyndi að leyfa
fólki að sjá hvað er í pakkanum og
gera svo upp við sig hvort rétt sé að
ganga í ESB. Þetta eru ekki endilega
ESB-sinnar heldur vilja þeir skoða
hlutina með opnum huga í stað þess
að loka fyrir allt á þessu stigi. Ég til-
heyri þessum hópi.
Á nýafstöðnu flokksþingi voru bæði
felldar tillögur um að slíta aðildarvið-
ræðunum og að klára þær. Eins var
samþykkt að hagsmunum Íslands
væri best borgið utan Evrópusam-
bandsins. Þessi hópur flokksmanna
vill ekki ákveða það á þessari stundu,
eins og gert var á flokksþinginu.“
Eruð þið gagnrýnin á flokksforyst-
una?
„Ekki á flokksforystuna heldur á
andann sem birtist meðal annars í
þeirri stefnubreytingu sem varð á
síðasta flokksþingi. Í janúar 2009 sam-
þykkti flokkurinn aðildarviðræður
við Evrópusambandið með ákveðnum
skilyrðum.
Það varð því talsvert mikil breyting
á stefnu flokksins á síðasta flokks-
þingi þegar niðurstaðan varð sú að
hagsmunum Íslands væri best borgið
utan sambandsins. Það hljómar ekki
mjög í anda aðildarviðræðna með
ákveðnum fyrirvörum eins og flokks-
þing samþykkti 2009.“
Ekki hluti af erfiðri fortíð
Þú hefur gegnt mörgum ábyrgðar-
stöðum fyrir flokkinn en gerir það ekki
lengur. Hvers vegna?
„Ég tel mig gegna ákveðnum
ábyrgðarstöðum fyrir flokkinn. Ég er
einn af varaforsetum Alþingis fyrir
hönd flokksins, sit í heilbrigðisnefnd
og er formaður velferðarnefndar
Norðurlandaráðs. Ég tel mig hafa
sterka rödd innan flokksins og þarf
ekki endilega að vera í einhverjum
stólum til þess. Ég er ánægð með að
það sé hlustað á minn málflutning
þótt það séu ekki allir sammála mér.“
Hvernig hafa samskipti ykkar Sig-
mundar Davíðs verið?
„Þau hafa verið góð.“
Hefurðu ennþá pólitískan neista?
„Já, ég finn að ég er full af krafti. Í
síðustu kosningum náði listi fram-
sóknarmanna í Suðvesturkjördæmi
Siv segir nýjan anda í Framsóknarflokknum og að stefnubreyting hafi orðið í Evrópu-
málum á nýafstöðnu flokksþingi.
Þó að stjórn-
málamenn
séu ber-
skjaldaðri
en aðrir fyrir
umræðu um
þeirra störf
og persónu
tel ég ekki
að einka-
mál þeirra
eigi heima
í fjölmiðla-
umræðunni.
20 viðtal Helgin 21.-24. apríl 2011