Fréttatíminn - 21.04.2011, Page 23
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
GleðileGa Páska
Opið alla páskana
njótið Páskanna í
notalegu umhverfi
lifandi tónlist á skírdag:
ingi gunnar verður á ljúfu nótunum
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
flokksins í kalda stríðinu og
barði miskunnarlaust á Sovét-
mönnum, kommúnistum og
allaböllum. Kapítalisiminn var
svarið en kommúnisminn stór-
hættuleg hugsanavilla. Eitt-
hvað virðist Styrmir vera að
linast í trúnni á efri árum þar
sem hann hefur undanfarið
talað fjálglega gegn viðbjóðs-
legu klíkusamfélaginu og, eins
og Eva Joly, sér Ísland fyrir
sér í fylkingarbrjósti í stríði
alþýðu allra landa gegn alheim-
skapítalismanum. Milton
Friedman víkur fyrir Marx
hjá gömlum vígamanni auð-
valdsins.
Arnþrúður
Karlsdóttir
Jón stóri
Á meðan Ingvi Hrafn barðist
gegn Icesave í sjónvarpi sá
Arnþrúður Karlsdóttir um
vörnina í útvarpi á Sögu þar
sem hún ræður ríkjum. Nei-
kórinn söng morgunmessu
alla virka daga í símatíma Út-
varps Sögu og andstæðingar
samningsins voru velkomnir
í spjall til Arnþrúðar og Pét-
urs Gunnlaugssonar. Út-
varpsparið dró fólk óhikað í
dilka eftir viðhorfum þess til
Icesave. Andstæðingar voru
í þeim réttum iðulega vænir
hafrar en „þeir sem endilega
vildu borga“ voru í besta falli
villuráfandi sauðir. Bjartur í
Sumarhúsum var kynntur til
leiks sem fyrirmynd allra góðra
Íslendinga á Sögu. Hinn misvel
þokkaði Jón stóri hafnaði
einmitt Icesave-samningnum á
Facebook-síðu sinni með vísan
í Bjart en erfitt er að gera sér
í hugarlund að lögreglukonan
fyrrverandi, Arnþrúður Karls-
dóttir, hafi viljað draga Jón með
glöðu geði í dilk með höfr-
unum.