Fréttatíminn - 21.04.2011, Blaðsíða 25
Middleton í Westminster Abbey.
Engum blöðum er um það að fletta
að hjónavígslan verður sú glæsi-
legasta í Bretlandi frá því að for-
eldrar Vilhjálms gengu í heilagt
hjónaband í St. Paul’s Cathedral
29. júlí á því herrans ári 1981 og
með hjónabandinu bætist fjórða
brúðkaupsmyndin í myndaalbúm
unga prinsins.
Langafi og langamma
Hinn 26. apríl árið 1926 gekk hinn
stamandi Albert, hertogi af York,
að eiga Elizabeth Angela Margu-
erite Bowes-Lyon. Albert varð
óvænt Georg VI konungur eftir
að ríkisarfinn bróðir hans fórnaði
krúnunni fyrir ástir fráskilinnar
bandarískrar konu. Eftir fráfall
Georgs VI árið 1952 var drottning
hans sjaldan kölluð annað en Elísa-
bet drottningarmóðir til aðgrein-
ingar frá nöfnu sinni og dóttur sem
tók við af föður sínum.
Amma og afi
Elísabet II drottning varð ástfangin
af tilvonandi eiginmanni sínum,
Philip prins, árið 1939 þegar hún
var 13 ára. Þau gengu síðan í hjóna-
band 20. nóvember 1947 í West-
minster Abbey.
Mamma og pabbi
Heimsbyggðin fylgdist andaktug
með samdrætti ríkisarfans Karls
prins og lafði Díönu Spencer og
sjaldan hefur í seinni tíð verið jafn
mikið um dýrðir í Lundúnum og
þegar þau gengu í hjónaband 29.
júlí 1981. Þá var Díana tuttugu
ára. Westminster Abbey, sem er
hefðbundinn staður fyrir kon-
ungleg brúðkaup, rúmaði ekki
þetta sannkallaða ævintýrabrúð-
kaup og athöfnin fór því fram í St
Paul’s Cathedral sem tekur fleiri
í sæti. 750 milljónir víða um heim
fylgdust með beinni útsendingu frá
hjónavígslunni og 600.000 manns
söfnuðust saman í kringum St
Paul’s Cathedral í von um að koma
auga á Díönu í brúðarkjólnum með
átta metra langt slörið. Eins og
alþjóð veit endaði prinsessuævin-
týrið um Díönu sem harmleikur en
góðar vættir munu vonandi vaka
betur yfir brúðhjónunum ungu og
að prinsinn ungi hafi eitthvað lært
af mistökum foreldra sinna.
Villi og Kata
Konunglegt brúðkaup Vilhjálms
prins og Kate Middleton verður
stærsti sjónvarpsviðburðurinn í
sögu konungsfjölskyldunnar frá því
að móðir hans og faðir voru gefin
saman fyrir þremur áratugum.Vil-
hjálmur og Kata verða gefin saman
í Westminster Abbey, rétt eins og
amma og afi brúðgumans. Kata og
Vilhjálmur trúlofuðu sig á meðan
þau voru í fríi í Keníu í fyrra eftir að
hafa verið saman í átta ár.
Laugardagurinn, 23. apríl, kl 14.00
Tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson í gervi Bogomil
Font mun flytja nokkrar suðrænar Kalypsovísur með íslenskum
textum ásamt hinum ótrúlega glaðbeitta og eggjandi
Davíð Þór Jónssyni á harmonikku og bongotrommu.
Grínaktug gleði og seiðandi stuð fyrir baðgesti Bláa Lónsins.
Annar í páskum, 25. apríl, kl. 13.00
Menningar- og sögutengd gönguferð. Þriggja tíma
gönguferð fyrir alla fjölskylduna um nágrenni Bláa Lónsins.
Möguleiki er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til
baka. Mæting við bílastæði Bláa Lónsins kl. 13.00. Ekkert
þátttökugjald er í gönguna.
Annar í páskum, 25. apríl, kl. 15.00 og 16.30
Vatnsleikfimi í boði Hreyfingar fyrir gesti Bláa Lónsins.
2 fyrir 1 í Bláa Lónið og maski á útibarnum
ef þú skráir þig í Vinaklúbbinn.
33% afsláttur af silica mud mask og mineral
moisturizing cream pakkningu.
Nýjung! Orkugefandi handameðferðir (15 min)
3 daga gestakort í Hreyfingu og Blue Lagoon Spa
í boði*
Kjörís býður börnunum upp á íspinna*
Öll börn sem borða á veitingastaðnum LAVA
fá páskaegg nr 3 frá Nóa Siríus*
SPENNANDI PÁSKADAGSKRÁ TILBOÐ ALLA HELGINA
*Gildir á meðan birgðir endast
PÁSKAR Í BLÁA LÓNINU
Lykill 1561
2 fyrir 1í Bláa Lónið
VINAKLÚBBUR BLÁA LÓNSINS
Vertu vinur, skráðu þig í Vinaklúbb Bláa Lónsins og njóttu
betri kjara af fjölbreyttri þjónustu. Skráðu þig núna og fáðu
2 fyrir 1 í Bláa Lónið og maska á útibarnum.
www.bluelagoon.is/vinaklubbur
2 fyrir 1
í Bláa Lónið
Frítt fyrir börn
13 ára og yngri í fylgd
með forráðamönnum
Gildir gegn
framvísun afrifunnar dagana
20. apríl – 31. maí 2011
Gildir ekki með öðrum tilboðum
yfir Páskana
Opnunartími
Grillhúsið | Tryggvagötu og Sprengisandi | Sími: 527 5000 | www.grillhusid.is | grillhusid@grillhusid.is
Grillhúsið Tryggvagötu
Föstudaginn langa: Opið
Laugardag: Opið
Páskadag: Lokað
Annar í Páskum: Opið frá kl. 16.00
Grillhúsið Sprengisandi
Föstudaginn langa: Lokað
Laugardag: Opið – lifandi tónlist
Páskadag: Opið
Annar í Páskum: Opið