Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Page 38

Fréttatíminn - 21.04.2011, Page 38
Fimm fyrstu sumardagarnir Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL S Sumarið kemur víst yfir sæinn í dag, eða svo segir almanakið að minnsta kosti. Þess hefur þó ekki orðið vart, að minnsta kosti ekki sunnan heiða. Vorið á líka að koma á undan sumrinu. Það hefur heldur ekki látið á sér kræla. Hraglandi og hríð skiptast á við rok og rigningu. Allt er það heldur óyndislegt. Bjartsýnir menn hafa þó leyft sér að kíkja á vef Veðurstofunnar vegna þess að páskarnir fara í hönd með fimm daga fríi. Á skírdag er gert ráð fyrir rign- ingu, á föstudaginn langa heldur úrkoman áfram en frekar eru líkur á að hann hangi þurr á laugardaginn. Það verður þó skammvinn sæla því á páskadag tekur slydda við af rigningunni. Sú slydda breytist í slyddu- él þegar líður á annan páskadag. Þetta er veðurspá fyrir fimm fyrstu sumardagana á Íslandi á því herrans ári 2011, að minnsta kosti sunnan og vestan heiða. Veðrið verður víst heldur bærilegra fyrir norðan og austan. Landinn kemur föl- grænn undan vetri þótt litaraft sumra sé yfir í blátt, jafnvel fjólublátt. Það eru ekki fallegir húðlitir. Allar spár um hlýnun jarðar virðast vera bull eitt, ef marka má þessa hryssingslegu apríl- daga sem fylgja í kjölfar hins svala mars þegar sjaldan eða aldrei sá í auða jörð. Þessum veðurleið- indum verður þó að taka með jafnaðargeði í þeirri von og trú að öll él birti upp um síðir. Kannski er óþolinmæðin of mikil eða við orðin of góðu vön. Sumartíð hefur nefnilega verið bærileg undanfarin ár, að minnsta kosti á þéttbýlasta hluta landsins. Því voru margir farnir að trúa spádómum um almenna jarðarhlýnun og jafn- vel vonast eftir henni. Sagt er að sú hlýnun sé tæpast af hinu góða fyrir lönd og þjóðir en því verður varla haldið fram um Ísland. Hér er einfaldlega of kalt. Landið er að sönnu fallegt en þolir svo sannarlega gráðu eða tvær aukalega svo kuldahrollurinn fari úr okkur. Kuldaboli er fráleitt skemmtileg skepna. Þótt jöklar kunni að hopa er það seinni tíma vanda- mál. Einn eða fleiri sæmilegir vordagar ættu varla að hafa veruleg áhrif í þá átt. Þess eru dæmi að veður hafi verið allt annað og betra á landinu bláa. Í ágætri kynningu Náttúrufræðistofnunar á nýju húsnæði fyrir stuttu mátti meðal annars sjá þykkan trjábol sem fannst steingerður í námunda við Króksfjarðar- nes í Austur-Barðastrandarsýslu. Hann sýndi, ef rétt er munað, um tíu milljóna ára gamalt tré, rauðvið, líkt og nú vex í því frjósama Kaliforníuríki í Bandaríkjun- Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtækið á sviði útleigu atvinnu- húsnæðis á Íslandi. Reitir hafa yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar veitir Halldór Jensson 840 2100 halldor@reitir.is www.reitir.is Vönduð umgjörð fyrir vinnandi fólk Glæsilegir skrifstofugarðar Skrifstofugarðarnir á Höfðabakka bjóða uppá einn hagkvæmasta kostinn í skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Í boði er allt frá 150 m² til 5000 m² rými og möguleiki á margskonar útfærslum og staðsetningu innan skrifstofugarðanna. Í dag eru 25 fyrirtæki með starfsemi á svæðinu. Stækkunarmöguleikar eru miklir og getur húsnæðið því vaxið með fyrirtækinu. Reitir fjármagna breytingar sem henta hverjum og einum og skapa þannig vandað atvinnuhúsnæði sem tekur mið af hagkvæmni í rekstri og mismunandi þörfum. Skrifstofugarðarnir eru með vistvæna vottun samkvæmt alþjóðlega staðlinum BREEAM. Svæðið er vel tengt helstu umferðaræðum borgarinnar. TIL LEIGU Höfðabakki 9 110 Reykjavík H ægri grænir, flokkur fólks-ins er ný stjórnmálahreyf-ing. Við viljum opið þjóð- félag og beint lýðræði sem byggist á frelsi, hugrekki, mannúð og ný- sköpun. Flokkurinn vill að lög og reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur verði lögfest strax eftir næstu kosningar. Með þjóðaratkvæða- greiðslum er hægt að útkljá helstu deilumál þjóðarinnar. Þjóðin verð- ur að vera samhent og takast á við vandamálin sem steðja að, sátt verður að nást í stærstu deilumálum þjóðarinnar, við þurfum tvo vængi til þess að hefja okkur til flugs. Hægri grænir, flokkur fólksins, er flokkur framtíðarinnar og leggur áherslu á að njóta náttúrunnar án þess að ganga á möguleika kom- andi kynslóða til hins sama. Fram- tíð Íslands er samofin framleiðslu á mat, vatni og orku. Hægri grænir, flokkur fólksins, er grænn borgaraflokkur. Hægri grænir, flokkur fólksins, er flokkur tíðarandans og raunsæis- stjórnmála. Hægri grænir, flokkur fólksins, er umbótasinnaður náttúruverndar- flokkur. Hægri grænir, flokkur fólksins, er frjálslyndur framfaraflokkur. Náttúran býr yfir náttúrulegum verðmætum og f lest vinnanleg náttúruverðmæti skilgreinum við sem endurnýjanlega framleiðslu, vistgæði sem hafa mælanlega og áþreifanlega verðmætaaukningu með vinnslu. Nýting náttúrulegra verðmæta er undirstaða þjónustu- hagkerfisins. Flokkurinn vill sem minnst ríkisafskipti af þessu ferli þó svo að þessi náttúrulegu verðmæti séu í ríkiseigu. Ekki allt fengið með stærðinni Flokkurinn vill stuðla að „grænu velferðarsamfélagi“, því viljum við leggja áherslu á lífræna og holla fæðu, græna orku, rafbíla, græna bankastarfsemi, vatns- og vind- orku, metangas, bíódísil, bíógas og endurvinnslu, sjálfbærni lands og sjávar og síðast en ekki síst að halda landinu í byggð. Íslenskt grænmeti, ávextir og aðrar landbúnaðarvör- ur ættu að vera eftirsóknarverðar vegna íslenska vatnsins og ómeng- aðs lands sem við eigum. Þar ætt- um við að hafa forskot á aðrar þjóð- ir. Virkjum það sem við eigum og verðum í forystu þjóða á þessum vettvangi. Flokkurinn vill trúa því að íslenskt velferðarsamfélag og viðhald þess byrji og endi á Íslandi. Flokkurinn telur að frjáls sam- keppni efli heilbrigða uppbyggingu og þess vegna er góð samkeppnis- löggjöf einn af hornsteinum flokks- ins. Við teljum að hagræðing náist ekki eingöngu með stærð stofnana heldur einnig gæðum þeirrar þjón- ustu sem þær veita. Flokkurinn Ný stjórnmálahreyfing Hægri grænir, flokkur fólksins Helgin 21.-24. apríl 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.