Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Page 39

Fréttatíminn - 21.04.2011, Page 39
Fimm fyrstu sumardagarnir Te ik ni ng /H ar i um. Króksfjarðartréð náði því að verða 500 ára gamalt, ef marka má árhringina, áður en hraun rann yfir það og varðveitti til frambúðar. Fleira fínt finnst í surtarbrandsnámum við Breiðafjörðinn norðan- verðan og norður eftir Vestfjarðakjálkanum; steingerður hlynur og álmur sem þar uxu fyrir einhverjum milljónum ára. Þá voru fáir til að njóta blíðunnar, að minnsta kosti ekki tvífætlingar. Væri það ekki nokkurra jökla virði að fá slíka sælutíð á ný, að minnsta kosti ef bara er horft á hagsmuni okkar hér á norðurhjara? Í slíkri blessaðri blíðu, með hvítvínsglas eða gylltan bjór í krús, væri bærilegra að hlusta á umræðu um kvótann, forsetaræðið, þjóðaratkvæðagreiðslur, kreppuna, verðbólguna, atvinnuleysið, Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn, kjaraviðræðurnar, Evrópusambandið, aðild okkar, eða að minnsta kosti Vinstri grænna, að Líbíustríðinu, ösku- tunnumælingarnar í Reykjavík, sameiningu skóla og bensínverðið, svo ekki sé minnst á Icesave, að minnsta kosti ekki ógrátandi. Kannski dytti engum í hug að ræða þessi leiðindi í kali- fornísku veðri við Faxaflóa og nágrenni. Sú sælutíð er víst ekki fyrirsjá- anleg, ef miðað er við áðurnefnda páskaspá. Við eigum því ekki annarra kosta völ en klæða okkur vel, í úlpu, húfu og vettlinga, þótt vetrinum sé formlega lokið. Kreppan hangir enn yfir okkur. Fyrir samnings- lausan almúgann þýðir því lítið að velta fyrir sér sólarlandaferð- um. Grísaveisla, sangría og sjór, senjórítur, sjóskíði og bjór verða því að bíða um hríð, svo vitnað sé til lofsöngs Þórhalls Sigurðssonar, Ladda, til þess bílífis sem slíkum ferðum fylgir. Allt okkar viðhorf til tilverunnar breytist hins vegar ef vorið lætur sjá sig, þótt ekki sé nema einn dag. Grillarar þessa lands láta þá ekki á sér standa og borð veitingastað- anna verða dregin út á gangstétt, að minnsta kosti þar sem sæmilegt skjól er. Þetta reddast, er helsta viðkvæði Íslendinga. Það hlýtur að gera það. Hitinn fer áreiðanlega í einar sex gráð- ur fyrir mánaðamótin, ef ekki sjö. Gleðilega páska – og gleðilegt sumar! Aðalfundur Íslandsstofu verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl. 16:00 í Salnum, Kópavogi. Yfirskrift fundarins er Sækjum fram og verður sjónum einkum beint að starfseminni sjálfri og stefnumótun stjórnarinnar. Auk þess verður gerð grein fyrir viðamestu kynningarverkefnunum sem unnið er að um þessar mundir á erlendum mörkuðum. Dagskrá Ávarp Friðrik Pálsson, formaður stjórnar Litið yfir árið Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Fagráð Íslandsstofu Formenn fagráðanna hafa orðið Ábyrgar fiskveiðar Guðný Káradóttir, markaðsstjóri Inspired by Iceland Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður Bókasýningin í Frankfurt Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar Íslands, heiðursgests Bókasýningarinnar í Frankfurt 2011 Meginþættir Íslandsstofu Forstöðumenn hafa orðið Að loknum framsöguerindum verða veitingar í boði Íslandsstofu. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 511 4000, með tölvupósti islandsstofa@islandsstofa.is Aðalfundur Íslandsstofu Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 www.ils.is Lán og styrkir til tækninýjunga og umbóta í byggingariðnaði Umsóknarfrestur er til 20. maí 2011 Íbúðalánasjóður auglýsir til umsóknar lán og styrki til tækninýjunga og umbóta í byggingariðnaði. Lán eða styrki má veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhaldskostnaði íbúðarhúsnæðis, styttri byggingartíma eða stuðlað með öðrum hætti að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði. Rafræn umsóknarblöð er að finna á vefsíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is Nánari upplýsingar veitir Helga Arngrímsdóttir hjá Íbúðalánasjóði í síma 569 6900 og með tölvupósti helga@ils.is Ný stjórnmálahreyfing Hægri grænir, flokkur fólksins vill beita sér fyrir því að stórar banka- og við- skiptasamsteypur verði brotnar upp og seldar til breiðari hóps: meiri gæði, lægra vöruverð og þjónusta í vistrænu sam- keppnisumhverfi. Það er ekki allt fengið með stærðinni. Haftalaus milliríkja- viðskipti Sjálfbærni er sú grein grænna st jórnmála sem flokkurinn leggur meiri áherslu á heldur en aðrar grænar stjórnmálastefn- ur: bætt arðsemi með því að beita náttúruvænum viðskiptamódelum. Raunsæisstefna flokksins tekur mið af mörgum umhverfisstefnum, svo framarlega sem niðurstaðan er já- kvæð og hagnýt fyrir þegna lands- ins. Reglur sem spyrna gegn of- veiði í hafinu eru lýsandi dæmi um hvernig náttúruvæn viðskiptamódel vernda fiskstofna svo að þeir geti endurnýjað sig og arðbær veiði sé möguleg fyrir framtíðarkynslóðir. Niðurstaðan er sjálfbærar veiðar. Þessi raunsæisstefna er stundum kölluð blágræn hugmyndafræði, en báðar þessar stefnur aðhyllast umhverfisvæn haggildi. Raunveru- lega geta bæði íhaldssamir nátt- úruverndarsinnar og frjálslyndir félagshyggjumenn sem aðhyllast frjálst markaðs- hagkerfi aðhyllst stefnu flokksins um alhliða nátt- úruvernd. Flokkurinn ætlar að beita sér sérstaklega í málefnum kvenna, fjöl- skyldunnar og heimil- anna sem eru hornsteinn samfélagsins. Náms- mönnum, öryrkjum og eldri borgurum verður að sinna betur í íslensku samfélagi. Ísland er góð- ur f járfestingarkostur fyrir Íslendinga og góð- ur staður til að búa á í sátt og sam- lyndi. Íslendingar þurfa að endur- heimta hugrekki sitt til að takast á við þann fjölda vandamála sem steðja að þjóðinni. Við þurfum að leysa úr læðingi hafsjó hugmynda til nýsköpunar og vekja upp þann kynngikraft sem blundar í þjóðar- sálinni. Flokkurinn vill byggja upp nátt- úruvænt þekkingarþjóðfélag á Ís- landi; sýna umhverfi og auðlindum þjóðarinnar viðeigandi virðingu. Einstaklingsfrelsi er lykillinn að gæfu þjóðarinnar ásamt lágum sköttum, friðsömum og haftalaus- um milliríkjaviðskiptum, traustum gjaldmiðli og frjálsri samkeppni með sem minnstum ríkisafskipt- um. Guðmundur Franklín Jónsson formaður Hægri grænna, flokks fólksins Helgin 21.-24. apríl 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.