Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Qupperneq 44

Fréttatíminn - 21.04.2011, Qupperneq 44
44 matur og vín Helgin 21.-24. apríl 2011 Banfi Cum Laude Ítalía, Toscana 2007 14,5% Verð: 3.498 kr. Þroskað vín, rúbínrautt með plómum og smá lakkrís í lyktinni. Í því er mikil fylling og hellingur að gerast. Það er þurrt og maður finnur fyrir tanníni en samt ekki of mikið. Sætur berja- keimur með krydduðum reyktum tón. Smá súkkulaði í eftirbragði og greinileg eik. Það borgar sig að umhella víninu á karöflu og leyfa því að anda smástund til að súrefnið nái að milda tannínin. Það borgar sig líka að drekka þetta aðeins kælt til að vinna á móti háu magni vínanda. Vina Pedrosa Crianza Spánn Ribera Del Duero 2007 13,5% Verð: 3.579 kr. Þetta er virkilega skemmtilegt vín frá Ribera Del Duero-hérað- inu á Spáni og ber sterk einkenni þess sem finnst helst af sveita- lykt og bóndastemningu. Það koma mörg góð vín frá þessu svæði og þetta er eitt af þeim skemmtilegri. Þrátt fyrir sveitastemninguna er það fágað með miklum og góðum ávexti og berjum í bragði. Létt tannín og ristaður eikarkeimur. Þetta er aðgengilegt og mjúkt vín eins og Spánverjum er einum lagið að töfra fram. Campo Viejo Reserva Spánn, Rioja 2006 13,5% Verð: 2.399 kr. Hér er um að ræða reserva- útgáfuna af hinu prýðisgóða Campo Viejo. Reserva þýðir að vínið hefur fengið að eldast í tvö ár, þar af eitt ár á eikartunnu. Eikarkeimurinn er líka vissulega til staðar í þessu víni, sem og van- illa sem kemur líka frá eikinni. Það er mjúkt með meðalfyllingu og þroskuðu tanníni sem hittir beint í mark. Léttur berjaávöxtur, greinileg kirsuber og skemmtilega kryddaður eftirkeimur. Þetta er flott vín með páskalambinu. Frakkland, Futs de Chene 2008 13,5% Verð 2.399 kr. Lífrænt ræktað vín frá Rous- sillion-héraðinu í frönsku Kata- lóníu. Framleitt í smáum stíl af vínbónda sem passar vel upp á allt framleiðsluferlið og notast við hefðbundnar að- ferðir. Það er kröftugt með góðri fyllingu. Kryddaður keimur, jafnvel pipraður, og dökkur ávöxtur. Ungt og sýruríkt sem gefur ferskan blæ. Það er tannínríkt og því er afar mikilvægt að umhella víninu á karöflu og leyfa því aðeins að anda áður en það er drukkið. Gott til drykkjar núna og líka frábært til geymslu. Vín sem eldist vel. Rauðvíni hellt í glas Hvernig veistu hvort rauðvínið sem þú ert að drekka er gott eða ekki? S varið er einfalt. Annað hvort finnst þér það gott eða ekki. Alveg sama hvað hver segir, þín upp- lifun er það eina sem skiptir máli. Þetta er bara spurning um að treysta eigin dómgreind. Og kannski sakar ekki að þekkja nokk- ur af þeim atriðum sem vert er að hafa í huga þegar tappi er tekinn úr flösku. Ef flöskunni er lokað með korki skaltu skoða og lykta af korkinum. Þetta er ekki gert til að dásama lyktina af góðu rauðvíni heldur til að fullvissa sig um að korkurinn sé ekki myglaður og vínið þar af leið- andi „korkað“ og ónýtt. Því næst getur borgað sig að umhella vín- inu í karöflu. Þetta á þó alls ekki við um öll vín og á aðallega við um eldri vín til að forðast að fá setlög- in úr flöskunni með og líka ef um yngri tannínrík vín er að ræða því súrefni binst við tannínið og hjálpar til við að losa um bragðið af víninu. Þegar víninu hefur verið hellt í glas skaltu fyrst skoða litinn. Litur rauðvíns breyt- ist eftir því sem það eldist. Ungt rauðvín hefur fjólubláan lit, sem svo dökknar og roðnar með aldrinum, og eldra vín er brúnleitt. Síðan skaltu lykta af víninu. Lyktin segir þér meira til um gæði vínsins en bragðið. Lyktarskynið greinir á milli hundraða lyktarafbrigða en þú skynjar bara fjórar grunnbragðtegundir, súrt, sætt, beiskt og salt (það er samt ekkert salt í víni og því þarftu ekkert að hugsa meira um það). Taktu þér tíma við að lykta. Hristu aðeins upp í víninu og leyfðu ilminum að brjótast fram. Hugsaðu um lyktina sem þú finnur og reyndu að greina hana. Það er ekki einfalt að lýsa lykt og krefst æfingar en það er gaman að prófa. Þá er komið að því að bragða á víninu. Taktu lítinn sopa og leyfðu því að fljóta í 4-5 sekúndur í gegnum munninn þannig að allir bragðlaukar tungunnar komist í snertingu við vínið. Reyndu að finna hvort það hefur sætan eða beiskan keim, hversu mikil sýra og ávöxtur er í því og ekki síst skaltu finna fyrir tanníninu, sem er ekki bragð heldur snerti tilfinning í gómnum og á tungunni. Of mikið tannín, sérstaklega í ungu víni, þurrkar upp munninn og gerir hann staman þannig að þú munt eiga erfitt með að greina aðra eiginleika vínsins. Að lokum, og jafnframt það mikilvægasta, er eftirbragðið. Er gott jafnvægi í víninu þannig að enginn einn þáttur yfirgnæfir annan? Hversu lengi varir eftirbragðið? Eitt helsta einkenni gæðavíns er langt og gott eftirbragð sem getur varað allt upp í þrjár mínútur. Njóttu sopans smástund og hugsaðu um og greindu eiginleika vínsins sem þú varst að bragða. Miðaðu þetta við þinn eigin smekk og þú getur ekki klikkað. Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson matur@frettatiminn.is Fjögur góð með páskalambinu Við mælum óhikað með þessu fjögurra stjörnu rauðvíni með páskalambinu í ár: Pujol Cotes du Roussillon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.